Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 9
IWorgimblaMb /IÞROTTHt ÞRJXXJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
B 9
i, ætla ég mér í gegn. Hvað sem það kostar... Hér lætur Gunnar sig ekki muna um að „fljúga" upp eina þrautina í torfæru
Gunnlaugur Rögnvaldsson
irunina í Hellu-torfæru-
erfítt að láta „afkvæmið" frá sér,
ég auglýsti einu sinni þann rauða
en hætti svo við að selja hann,
tímdi því ekki. Jeppinn er orðinn
hluti af sjálfum mér og ber höfuð
og herðar yfir aðra svipaða keppn-
isbíla. Það ásamt góðri aðstoð
vina hefur fært mér titilinn. Góð-
ur vinur úr Grindavík, Gestur
Jónsson, hefur ekki látið sig muna
um að flakka hvert á land sem
er með mér. Síðan hef ég fengið
mikla aðstoð’ frá Jeppapartasölu
Þórðar í höfuðborginni.
Þetta er kostnaðarsöm íþrótt, ef
vel er að þessu staðið, en maður
gleymir slíku og öllu öðru þegar
í þrautimar kemur, jeppinn mallar
rólega áfram, en stekkur síðan
öskrandi af stað, þegar „fjölin"
er stigin í botn. Það er frábær
tilfinning og veitir algjöra útras,"
sagði Gunnar.
Góðurárangur
Eins og Gunnar sagði hóf hann
að keppa í torfæruakstri í fyrra-
sumar. Arangur hans í keppni er
mjög góður, sérstaklega í sumar,
þar sem hann hefur sigrað fjórum
sinnum og einu sinni orðið í öðru
sæti. Árangur hans er annars
þessi:
1986
Hella....
Grindavík
Akureyri..
1987
Akureyri..
Hella....
Ólafsvík...
Grindavík
Akureyri..
.4. sæti
.1. sæti
.6. sæti
.1. sæti
.1. sæti
.2. sæti
.1. sæti
.1. sæti
Hefuráttá þríðja
hundrað bíla!
Gunnar hefur átt á þriðja hundrað bfla um
ævina. „Ég hef oft ætlað að ná mér upp pen-
ingalega með því að kaupa bfla og selja aftur,
en það fór aðallega niður á við,“ sagði hann
hlæjandi, aðspurður um kynni sín af bflum.
„Ég ólst raunverulega upp með jeppum, var
í sveit á yngri árum, en ég fæddist á Akur-
eyri árið 1955. Ég keyrði alls konar farartæki
í sveitinni, en fékk ekki króníska jeppadellu
fyrr en ég var um tvítugt. Þá eignaðist ég
fallegasta Broneo-jeppann, sem ég hef augum
litið. Hann var allur í krómi — ægifagur;
hreinn gullmoli. Eftir að ég seldi hann þá var
það eina sem gilti að eiga jeppa. Ég átti líka
einn sérstæðan, Corvair með átta cylindra
vél, byggðan ofan á Wagoneer grind. Það var
sérstakur jeppi.“
Willys keppnisbílinn keypti Gunnar í fyrrasum-
ar, „fór þá nánast beint í fyrstu keppnina
mína og varð í flórða sæti. Ég hafði nostrað
við jeppann, sem var smíðaður af miklum
jeppamanni á Akureyri. Annar eigandi hans
keppti í torfæruakstri, ég liðsinnti honum og
keypti síðan af honum jeppann. Sá var uppal-
inn í jeppaumboði og þekkti gripinn út og
inn. Hann var því í góðu ásigkomulagi. Ég
er hins vegar ekki nægur kunnáttumaður
hvað viðgerðir varðar, þarf að fá aðstoð frá
öðrum. Þar að auki er ég hræddur um að ég
yrði leiður á jeppanum ef ég þyrfti alltaf að
liggja í honum með skiptilykil og skrúfjám.
Ef ég nota jeppann næsta sumar þá tek ég
hann í gegn í vetur, geri hann verklegri. Ég
var nánast varahlutalaus í sumar, en hef feng-
ið alla rétta hlutina núna. Jeppinn verður því
í góðu ásigkomulagi á næsta ári, til að veija
titilinn eða vinnan annan. Hann er seigur sá
rauði..."
Willys '74
Jeppinn er frá árinu 1974 og með styrktri grind. Vélin er 401
CID, 330 hestöfl og við hana hafa verið settar flækjur og fjög-
urra hólfa blöndungur. Að öðru leyti er vélin óbreytt. Gírkassinn
er 4 gíra af Chrysler gerð, fram- og aftur hásingamar Dana
44. Diskalæsing er að framan og knastalæsing að aftan (no-
spin). Millikassinn er Dana 20. Gunnar prófaði Mudder dekk
á Akureyri, en hefur notað kaldsóluð dekk frá Kaldsólun í
Reykjavík. Hann taldi Mudder dekkin hoppa meira en hafa
gott grip. Demparar jeppans em frá Gabriel, framfjaðrimar
af Ranco-gerð og afturfjaðrir úr rússa-jeppa.
Morgunblaöið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Gunnar sltur stoltur á Willys jeppa sínum, sem veitt hefur honum marg-
ar ánægjustundir — einnig stress, og nýtist honum og flölskyldunni sem
einkabfll.
Buslað {torfsarukeppnlnnl á Hellu, sem vannst eins og fjögur önnur
mót á árinu, og tryggði íslandsmeistaratitilinn.