Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 11

Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 11
HtorflimMaMb /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987 B 11 KNATTSPYRNA / ENGLAND „Stend ávalK við gefin loforð...“ - sagði Mirandinha eftir að hafa skorað fyrir Newcastle Allt á fullu Alan Smith, miðheiji Arsenal, sækir hér að Tom McAUister, markverði West Ham á laugardaginn, en McAllister náði að góma knöttinn. Að neðan er það enski landsliðs- fyrirliðinn hjá Manchester United, Bryan Robson, sem skallar að marki Tottenham á Old Trafford. Richard Gough (4) og Gary Mubbett (6) eru til vamar en Paul McGrath, leikmaður United, er einnig í baráttu um knöttinn. Robson náði ekki að skora þama en United stóð uppi sem sigurvegari. Reuter FYRIR leik Newcastle og Sout- hampton í 1. deild ensku knattspyrnunnar á laugardag- inn lofaði Brasilíumaðurinn Mirandinha að hann myndi skora. Það gerði hann og eftir markið dansaði hann „samba“ að varamannabekk Newcastle og sagði við McFaul, fram- kvæmdastjóra: „Ég stend ávallt við gefin loforð..." Newcastle vann 2:1 og var það fyrsti heimasigur liðsins á keppnistímabilinu. Mirandinha, sem hefur lofað 20 mörkum í vetur, skoraði á 62. Frá mínútu, Colin Bob Clarke jafnaði fjór- Hennessy um mínútum síðar ,En9landl en Paul Goddard skoraði sigurmarkið á 75. mínútu. QPR enn á toppnum „Það er erfítt að leika gegn QPR og leikkerfi þeirra er árangursríkt. Þeir bíða eftir að mótheijarnir geri mistök og nýta sér þau,“ sagði Ray Harford, framkvæmdastjóri Luton, eftir 2:0 tap gegn QPR. Dean Co- ney skoraði fyrra markið á 70. mínútu og Terry Fenwick það seinna úr umdeildri vítaspymu fimm mínútum fyrir leikslok. Bann- ister, miðherji QPR, sá til þess að Les Sealey, markverði Luton, var ekki vísað af velli. Sealey, sem fékk gult spjald í byijun, felldi Bannist- er, en miðheijinn reis strax upp og sagði við dómarann: „Hann felldi mig ekki, ég rann á plastinu". QPR er nú með fjögurra stiga forskot á toppnum. Chelsea skaust í annað sætið með 3:0 sigri gegn Watford. „Ef ég væri á Spáni hefði ég líklega verið rekinn," sagði Dave Bassett, fram- kvæmdastjóri Watford, sem er óþægilega nálægt botninum. „Ég þarf að byggja upp nýtt lið og stað- reyndin er að fáir leikmenn eru öruggir í liðinu," bætti hann við, en Bassett hefur áhuga á að fá Glyn Hodges frá Newcastle. Þeir voru saman í sex ár hjá Wimble- don, en Hodges fór til Newcastle í sumar og hefur ekki fundið sig þar. Gordon Durie skoraði tvívegis fyrir Chelsea á laugardaginn, seinna markið úr vítaspyrnu, en Kerry Dixon átti síðasta orðið. Neil Webb skoraði bæði mörk For- est gegn Norwich, sem hefur aðeins sigrað þrisvar í síðustu 15 heima- leikjum. Stuðningsmenn liðsins eru orðnir þreyttir á árangrinum og vilja Ken Brown, framkvæmda- stjóra í burtu. „Komið með Terry Venables — þið hafið efni á því“ var boðskapur þeirra á laugardag- inn. Sansom skoraði Kenny Sansom, sem varð 29 ára á laugardaginn, hélt upp á afmælið með marki. A undanförnum sjö árum hefur hann leikið meira en 350 leiki, en aðeins skorað sex mörk. Rúmlega 40 þúsund áhorf- endur á Highbury sáu hann skora á 82. mínútu og Arsenal vann West Ham 1:0. Liam Brady lék að nýju með Arsenal eftir sjö ára fjarveru og var vel fagnað, en leikurinn var ekkert sérstakur. West Ham er í þriðja neðsta sæti og það sem verra er fyrir liðið — Frank McAvennie hefur ekki enn skorað mark á tíma- bilinu og reyndar ekki í síðustu 20 leikjum. Meistarar Everton töpuðu í fyrsta sinn á heimavelli í eitt ár — bikar- meistarar Coventry unnu 2:1 á Goodison. Cyrille Regis og Dave Philips skoruðu fyrir gestina, en Wayne Clarke minnkaði muninn á 45. mínútu. Sigurður Jónsson lék ekki með Sheffield Wednesday, er liðið vann Charlton 2:0. Leikurinn var lélegur og kemur staða liðanna í deildinni ekki á óvart. Lee Chapman var maður leiksins og skoraði bæði mörk Sheffield. Untted með tak á Spurs Tottenham hefur ekki unnið deild- arleik á Old Trafford í 10 ár og á laugardaginn unnu heimamenn 1:0 að viðstöddum 47.600 áhorfendum. Brian McClair skoraði eina mark leiksins á 45. mínútu úr umdeildri vítaspyrnu eftir að Ossie Ardiles hafði fellt Jesper Olsen við vítateig- inn. Chris Waddle og Clive Allen léku ekki með Spurs vegna meiðsla og Remi Moses hjá United er einn- ig meiddur. Gestimir sóttu stíft eftir markið, en Bryan Robson var ör- uggur í vöm United og hinn 19 ára Gary Walsh sýndi stórgóða markvörslu og geta heimamenn þakkað honum sigurinn. „Ég hef aldrei leikið svona vel fyrir Un- ited,“ sagði Walsh, og Alex Fergu- son, framkvæmdastjóri, sem hefur reynt að fá markmenn frá Sov- étríkjunum, Vestur-Þýskalandi og Ítalíu, sagði að strákurinn hefði verið frábær og staðið undir þeim kröfum, sem hann hefði gert til hans. Neil Slatter skoraði sigurmark Ox- ford gegn Derby og Robert Maxwell, stjómarformaður Derby síðan í sumar og áður formaður Oxford í fjögur ár, bauð gestunum upp á kampavín að leik loknum. Sonur hans, Kevin, tók við stöðunni hjá Oxford og ákváðu feðgamir fyrir leik að sá er tapaði, skyldi bjóða sigurvegurunum upp á veit- ingar. Portsmouth vann Wimbledon 2:1 í slagsmálaleik, þar sem leikmenn hugsuðu ekki um boltann fyrstu 30 mínútumar. Sanchez skoraði fyrir gestina á 25. mínútu, en Quinn jafn- aði skömmu fyrir hlé. Lögreglumað- ur sagði við dómarann í hálfleik að hann myndi handtaka tvo leikmenn gestanna ef þeir héldu áfram svívirðingum og sluppu þeir með skrekkinn. Úrsllt/B14 Staðan/B14 KNATTSPYRNA /FRAKKLAND Hateley meiddur en Mónakó sigraði samt Leikmenn Bordeaux ekki eins góðirog gegn íslenska ólympíulandsliðinu en sigruðu þó Laval 1:0 á heimavelli Mónakó heldur enn þriggja stiga forskoti á Niort eftir nauman 1:0 sigur gegn Lille. Niort átti aftur á móti í litlum vandræðum Frá Bemharði Valssyni iFrakklandi með Brest og vann 3:0. Marseille fékk háðuglega útreið á heimavelli gegn Auxerre — tapaði 1:0 og náði aldrei að sýna sitt rétta andlit. Áhangendur liðsins, sem eru mjög óánægðir með frammistöðu þess á keppnistímabilinu, bauluðu á leikmenn, er þeir gengu til bún- ingsklefa að leik loknum. Bordeaux, sem lék gegn islenska ólympíuliðinu í vikunni vann Laval 1:0 á heimavelli. Bordeaux komst aldrei í gang og var samleikurinn aldrei nógu hraður til að koma varn- armönnum Laval úr jafnvægi. Það var Senac, sem þama lék sinn fyrsta leik fyrir Bordeaux, er skoraði eina mark leiksins með skalla eftir hom- spymu frá Ferreri. Mark Hateley lék ekki með Mónakó vegna meiðsla og bitnaði það á sóknarleik liðsins. Fofana tókst þó að framfylgja hlutverki Hateley og skoraði eitt mark fyrir Mónakó. Þeir Amaros og Hoddle léku mjög vel, sköpuðu nokkur ágæt mark- tækifæri en án árangurs. PSG vann St. Etienne 3:0 eftir þó .iiIUiVJáí) ii«3'K| Ji<r nokkra erfiðleika í upphafi leiks. Parísarliðið getur þakkað Ray Wilk- ins sigurinn, sem með útsjónarsemi og leikni stýrði liðinu til sigurs. Racing Paris gerði góða ferð til Toulouse. Liðið náði markalausu jafntefli, sjöunda jafntefli þess í 11 leikjum, og er því enn með í topp- baráttunni. Maxime Bossis, sem ekki hefur leikið lengi með liðinu vegna meiðsla, var með um helgina og styrkti koma hans vamarleik Racing til muna. Úrslit/B14 Staöan/B14 MorgunblaðiÖ/Bemharð Willlam Ayacha og félagar í liði Paris Saint Germain unnu 3:0-sigur á St. Etienne og eru að braggast eftir heldur slaka byijun. SKOTLAND Stórsigur Rangers Mark Falco skoraði sína fyrstu þrennu í Skotlandi, þegar Rangers vann botnlið Morton 7:0. Ally McCoist skoraði einnig þijú ^■■■■i mörk — hans fjórða FráBob þrenna í ár. Robert Hennessy Fleck innsiglaði iEnglandi sfðan stórsigur meistaranna, sem leika gegn Kiev í Evrópukeppni meistaraliða á morgun. John Colquhoun skoraði sigurmark Hearts gegn Dunfermline og er Hearts með eins stigs forystu f úr- valsdeildinni. White tryggði Celtic 1:0 sigur gegn St. Mirren, en Grant og Falconer skomðu fyrir Aberdeen gegn Hibs. Sturrock skoraði tvíveg- is og McCloud átti síðasta orðið í 3:0 sigri Dundee United gegn Fal- kirk. Úrslit/B14 Staðan/B14 i;nim níGRn<í om ►Öíll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.