Morgunblaðið - 11.10.1987, Blaðsíða 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987
fclk í
fréttum
Whitney skipað
að slá sér upp
Nýstár-
leg megrunar-
aðferð
Hér er góð frétt fyrir þá sem bryðja blómkál
og setja sjálfum sér stólpípu upp á hvem dag,
en gengur samt illa að ná af sér aukakílóunum.
Bandaríkjamaðurinn Steve Silva hafði reynt allttil
að megra sig, en án árangurs, þegar hann fékk
hugljómun í Parísarferð árið 1979. Hann hóf að
hlaupa upp og niður tröppumar í Eiffel-tuminum,
og hefur vægast sagt náð ótrúlegum árangri á
þessum átta árum sem hann hefur haldið þessum sið.
Steve var 215 kíló að þyngd þegar hann
skakklappaðist upp á topp í fyrsta sinn, en hann
hefur misst 135 kíló þama í þrepunum, og er nú
einn helsti íþróttamaður heims í stigahlaupi. Hann
reyndi um daginn að setja nýtt heimsmet í lóðréttu
míluhlaupi, og var 2 klukkustundir, 2 mínútur, og
54 sekúndur að hlaupa sjö og hálfum sinnum upp
og niður Eiffel-tuminn, sem er aðeins eina mínútu
frá tummetinu sem landi Steves, Dale Neils, á.
Þess má geta að Eiffel-tuminn er 300 metra
hár, og í honum eru 1.792 þrep, og er
megrunaraðferð þessi því alls ekki fyrir lofthrætt
fólk.
Stigamaðurinn Steve Silva hefur misst 135 kíló
einhversstaðar í Eiffel-turninum.
wm
Reuter
Reagan huggar sjúka
n
■ i ún Angelica litla Weaver, sem þjáist af
arfgengum sjúkdómi sem hamlar starfsemi
lungna og meltingarfæra, átti sér þá ósk heit-
asta að hitta Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seta, en bjóst ekki við að henni yrði nokkum
tíma að ósk sinni. Sámtök nokkur, sem láta
svona sjúkdóma til sín taka, heyrðu af þessarri
ósk Angelicu, og komu henni áleiðis til forseta-
skrifstofunnar. 0g viti menn, Reagan fann sér
tíma frá ábyrgðarstörfum til að heilsa upp á
Angelicu, og var þessi mynd tekin við það
tækifæri.
Þó að mað-
ursé
ríkari og
frægari en
flestir aðrir, er
ekki þar með
sagt að eng-
inn vilji ráðsk-
ast með mann.
Þetta fékk
Whitney Ho-
uston að
reyna um dag-
inn, þegar
talsmenn út-
gáfufyrirtæk-
is hennar báðu
hana vinsam-
legast að
verða sér úti
um karlkyns
félagsskap
sem fyrst, til
að stefna sölu
fötum hennar
ekki í voða. Þeir héldu því fram
að einlífí söngstjömunnar ýtti
undir slúðursögur um að hún hefði
engan áhuga á hinu kyninu, og
að þær sögur gætu aftur varpað
skugga á kyntáknsímynd hennar
og spillt fyrir sölu á plötum henn-
Whitney Houston lætur engan
stjórna sínu einkalífi.
ar. Ekki vildu
umboðsmenn-
imir ganga
svo langt að
skipa Whitney
að hefja sam-
búð með
einhveijum
karlmanni, en
þeir lögðu
hart að henni
að láta sjá sig
í karlmann-
legum félags-
skapí
kvöldmat á
einhveijum
ft-ægum veit-
ingastað. Þeir
töldu sig geta
tryggt henni
ekki dónalegri
fylgisveina en
Eddie Murphy
og Robert de
Niro, en Whitney lét sér ekki segj-
ast, og tilkynnti útgáfufyrirtæk-
inu að hún gæti séð um sig sjálf
hér eftir sem hingað til, og að hún
tæki öll afskipti af einkamálum
sínum óstinnt upp.
Tom
Cruise
hjálpar
öðrum
að er engin ástæða til að kúra
kvenmannslaus í kulda og
trekki þó að maður líti ekki út eins
og Tom Cruise, eða svo segir Tony
nokkur Scott, sem leikstýrði honum
í myndinni „Top Gun“. Tony segir
að það hafí verið ákaflega erfítt að
stugga burt kvenfólki sem safnaðist
kringum leikarann - sem þá var
ógiftur - en að lokum hafí hann séð
að hann gæti haft gagn af kven-
hylli kappans. „Ég hékk í kringum
Tom, og þar kom að því að ein-
hveijar gáfust upp við að reyna að
afvegaleiða hann, og þá sneru þær
sér oft að næsta manni“ segir Tony,
og gefur í skyn að hann hafi verið
viljugt fórnarlamb.
Það stendur annars til að Tom
Tom Cruise er ægilega sætur,
og leikstjóri hans segir það hafa
hjálpað sér í kvennamálum
sínum.
Cruise fari að leika í nýrri mynd,
sem á að heita „Rainman", og mót-
leikari hans þar er enginn annar en
Dustin Hoffman. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvenær tökur á mynd-
inni hefjast, eða hver á að leikstýra
henni, en sá getur farið að hugsa
sér gott til glóðarinnar ef hann er
þannig innrættur, og ef það er eitt-
hvað að marka galgopalegt talið í
Tony Scott.
COSPER
I OÍo'bq CQSPER
Það þarf að skipta um olíu, vél og hjólbarða.