Morgunblaðið - 11.10.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987
C 17
Svona kemur Gitta
Nielsen ítölum fyrir
sjónir i sjónvarpinu, og
er ekki að undra að
margir sitji límdir fyrir
framan skjáinn. Ljósa
hárið er Litað, en
afganginn af sér segir
Gitta vera ósvikinn.
Gitta er
orðin sjón-
varpssljarna
eir eru til sem segja að Brig-
itte Nielsen sé hæfileikalaust
framakvendi, sem hafi einungis
notað aumingja Sylvester Stallone
sem stökkpall til að koma sjálfri
sér á framfæri. En Gitta hefur
nú sýnt og sannað að hún plumar
sig ágætlega á eigin fótum, og
hún er nú í augnablikinu einhver
alvinsælasta sjónvarpsstjaman á
Ítalíu, þar sem hún kemur fram
í þáttunum „Festival“.
Það hefur auðvitað ekki orðið
til að minnka áhuga manna á
Gittu, að hún var eitt sinn gift
einum frægasta leikara heims, en
það sem einkum heillar ítali er
glæsileiki hennar og fjörleg fram-
koma. Gitta er köliuð „La Vikinga
Stangona" á Ítalíu, sem útleggst
„hin háa víkingastúlka", og talið
er að 15-16 milljónir ítala - eink-
um karlmenn - horfí á þættina
hennar, þar sem hún talar og
syngur á reiprennandi ítölsku í
eggjandi klæðnaði. Gitta er sögð
vera helsta tromp stærstu einka-
sjónvarpsstöðvar Ítalíu, Canale 5,
í samkeppninni við ríkissjónvarp-
ið, RAI.
Tilboðunum hefur rignt yfír
Gittu í Ítalíu eftir að sjónvarps-
þættimir byijuðu, og herma sögur
að henni hafi verið boðið jafnvirði
50 milljóna íslenskra króna fyrir
að leika í einhveijum spaghetti-
kvikmyndum. En Gitta hefur gert
samning um að koma fram í sjón-
varpi næstu 13 mánuði, og stefnir
hún að sögn að því að verða vin-
sælasta stjaman á gjörvallri
Ítalíu.
Nokkrar umræður hafa orðið
um það í óvönduðum slúðurblöð-
um að undanfömu, hvort að Gitta
eigi útlit sitt eingöngu móður
náttúru að þakka, eða hvort feg-
runarfræðingar og silikonspraut-
ur hafi komið þar við sögu. Gitta
hefur brugðist hin versta við þess-
um rætnu rógsögum, og segist
vera 100% úr holdi og blóði, en
hins vegar viðurkennir hún að
ljósa hárið hennar sé litað, og
segist hún hafa skipt svo oft um
háralit að hún muni bara alls ekki
hvemig það var upphaflega.
Viltu læra að mála á silki
Elín Magnúsdóttir myndlistarkona
heldur kvöldnámskeið í silkimálun í
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3. Námskeið-
in hefjast 20. október.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 681936
allan daginn og 19055 milli
kl. 13.00 og 17.00 á daginn.
-VETRARLÍNAN
IMÝ SENDING -
SENDUM BÆKLINGA
HVERFISGÖTU 105 - SÍMI 91 -23444