Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1987
ÞRIDJUDAGUR 8. DESEMBER
BLAÐ
Lyftingar:
Fjögur
heimsmet
- í heimsbikarkeppninni í Seoul
Búlgararnir Mikhail Petrov og Alexander Varbanov
settu samtals fjögur heimsmet á heimsbikarkeppn-
inni í lyftingum í Seoul um helgina.
Petrov keppti í 67,5 kílógrammaflokki og snaraði 158
kflógrömm, sem er hálfu kílógrammi meira heldur en
gamla metið, en hann átti það sjálfur. Hann jafnhattaði því
næst 197,5 kíló og hafði þar með bætt heimsmetið í saman-
lögðu um þijú kílógrömm, eða 355,5 kílógrömm.
Þá var komið að Alexander Varbanov í 75 kílógramma-
flokki. Hann jafnhattaði 215,5 kílógrömm, hálfu kílói meira
heldur en eigið heimsmet. Samanlagt lyfti Varbanov svo
380,5 kílógrömmum, en það er einnig nýtt og glæsilegt
heimsmet.
m Knattspyrna:
Omarí
uppskurð
- sleit liðbönd á ökla og
verðurfráí6vikur
ÓMAR Torfason landsliðsmaður í knattspyrnu sleit lið-
bönd á vinstri ökla í leik með liði sínu Olten í 2. deild
svissnesku knattspyrnunnar á sunnudaginn. Ómar verð-
ur skorinn upp á morgun og verður frá í 5 til 6 vikur.
Omari hefur gengið vel með liði sínu og gert 9 mörk í deild-
inni í vetur. Hann var „tæklaður" illa í deildarleik á
sunnudaginn eftir 25 mínútna leik og kom í ljós í gær að liðbönd
í vinsti ökla eru slitin.
„Það var lán í ólani að þetta kom fyrir núna því það er frí í
deildarkeppninni fram í febrúar. Ég ætti því ekki að missa
mikið úr vegna þessa,“ sagði Ómar.
Olten er í 10. sæti í 2. deild og kemur því ekki til með að leika
um 1. deildarsæti að þessu sinni þvi 6 efstu liðin leika í úrslita-
keppni um laus sæti í 1. deild. Ómar sagði að gengi liðsins
hafi verið slæmt framanaf vetri en síðan hafi liðið verið á upp-
leið. Hann er samningsbundinn hjá Luzem en er á lánssamningi
hjá Olten fram á vorið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ægir bikarmeistari
Sundfélagið Ægir úr Reykjavík endurheimti bikarmeistaratit-
ilinn um helgina, er 1. deildarkeppnin fór fram í Sundhöll
Reykjavíkur. Þetta var í 18. skipti sem Ægir sigrar i keppn-
inni, en hún fór nú fram í 23. skipti. Hér tekur Ólafur
Brynjólfur Einarsson, fyrirliði Ægis, við Speedo-bikamum.
Nánar verður fjallað um mótið í máli og myndum síðar.
Úrslit/B 10.
BÍLAR: STÖKKBREYTING/B8 og B9
AUKhf. 3.218/SÍA