Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 12
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Hvevjir eru bestir? essari spumingu veltum við töluvert fyrir okkur s.l. vetur og birtum skoðanakönnun sem gerð var í Bandaríkjunum með |þátttöku þjálfara, Einar dómara, leik- Bollason manna, blaða- skrifar manna og áhorfenda. Nú ætla ég að breyta til og velja sjálfur bestu leikmenn í öllum stöðum. Auðvitað má endalaust deila um þetta atriði og gaman væri að fá álit lesenda, hvaða skoðanir þeir hafi á málinu. í dag tökum við fyrir miðbakverð- ina eða leikstjómendumar, eins og þeir eru oftast nefndir. 1. Þetta val er hafíð yfir alla gagnrýni, það er bara einn töfra- maður í deildinni. Það er auðvitað Ervin „Magic“ Johnson hjá Los Angeles Lakers. Hann ber af öllum öðrum bakvörðum og er af mörgum talinn besti bakvörður allra tíma. Stór orð en sönn! Hann átti flestar stoðsendingar allra f deildinni sl. vetur, var efst- ur hjá Lakers í að „stela" boltan- um frá andstæðingum og heimurinn væri örugglega betri ef fleiri brostu eins mikið og hann. Þá var „Magic" valinn besti leik- maður deildarinnar og leiddi lið sitt til sigur á öruggan hátt í þess- ari hörðu og jöfnu deild sl. vor. 2. Isiah Thomas, Detroit Pist- ons, er okkar maður í þessu sæti. Leikinn og skemmtilegur og drif- fjöður hins efnilega Piston-liðs. Hann gefst aldrei upp, reynir og reynir en, því miður, hann verður alltaf númer 2. 3. Maurice Cheeks, Phila- delpia 76’ers sýndi það á sl. keppnistímabili hversu mikiivæg- ur hann er liði sínu. Allt gekk á afturfótunum, meiðsli hrjáðu lyk- ilmenn eins og Andrew Toney og Jeff Ruland, sem varð að leggja skóna á hilluna. En Cheeks, sem spilaði yfir 40 mínútur í hverjum leik, sýndi það og sannaði að hann á hvergi heima nema í hópi þeirra bestu. 4. Lafayette „Fat“ Lever, Denver er ekki eins þekktur og hinir þrír sem á undan honum eru nefndir og eflaust verða einhvetjir ósammála mér í þessu vali. En lítum aðeins nánar á piltinn og árangur hans í fyrra. Hann var efstur í Denver-liðinu í stoðsend- ingum, stolnum boltum og fráköstum! — Já, bakvörðurinn var með samtals 729 fráköst sl. vetur (290 fleiri en miðherji Den- ver Nuggets Wayne Cooper!) Auk þess var hann næst stigahæstur með 18,9 stig að meðaltali í leik, og er einnig talinn með betri vam- armönnum deildarinnar. Við skulum fylgjast vel með „Fat“ Lever í vetur. 6. Ég get ekki verið þekktur fyrir annað en að hafa Dennis Johnson, Boston Celtics í þessu sæti (ekki þó til hlutdrægni!). Þessi reyndi leikmaður lætur ekk- ert á sjá þótt hann sé kominn á fertugsaldurinn og hann er yfir- leitt bestur þegar mest liggur við, enda blómstrar hann oftast í úrsli- takeppni. Aðrir miðjubakverðir sem ekki komast í hóp bestu fimm: Alvin Robertsson, San Antonio, Glenn (Doc) Rivers, Atlanta, Eric „Sle- epy“ Floyd, Golden State og Vem Fleming, Indiana. FIIVILEIKAR/BIKARIVIÓT Bikarmót Fimleikasambands íslands fór fram í blómum skrýddri Laugardalshöll um helgina. Þátttaka á mótinu var með minnsta móti og var því keppnin ekki eins spennandi og hún annars hefði geta orðið. Á bikarmótinu var keppt í Vilmar liðum og er þetta eina mót keppnis- Pétursson tímabilsins með þessu fyrirkomulagi. skrifar Keppt var í fijálsum æfingum og 2, 3 og 4. gráðu í vor verða haldin Norður- landamót unglinga í Finnlandi og Evrópumeistaramót unglinga í Frakklandi og því hefur verið ákveðið að velja landsliðshópa núna fyrir áramótin til að senda á þessi mót. Mikilvægt var því fyrir væntanlega lands- liðskandidata að sýna getu sína á mótinu. Ármann var eina félagið sem sendi lið í keppni í frjáls- um æfingum karla en það kom þó ekki í veg fyrir að árangurinn væri mjög vel viðunandi hjá Armenning- unum. Islandsmeistarinn Guðjón Guðmundsson náði svipuðum árangri og hann átti bestan í fyrra þrátt fyrir að eiga ekki góðan dag. Þetta er mjög gott í upphafi keppnistímabilsins og greinilegt að Guðjón á eftir að bæta sig í vetur. Allir strákamir bættu sig en enginn þó eins mikið og Axel Bragason. Þeir Guð- jón og Axel náðu lámörkunum fyrir Norðulandamótið með árangri sínum á mótinu og jafnframt náði Guð- jón Evrópumótslágmörkunum. í frjálsum æfingum stúlkna áttust við tvö félög Björk og Ármann. Keppni þessara félaga var jöfn og spenn- andi. Björk bar sigur úr býtum, þær fengu 159,55 stig samanlagt en Ármann 153,70. Greinilegt er af árangri stelpnanna að upp er kominn sterkur kjami sem að geta gert góða hluti á Norðurlandamóti ungl- inga í vor. Fjórar stúlknanna náðu yfir 33 stigum í þessu móti og í vor má búast við að þær séu famar að fá um 35 stig. í einstökum greinum ættu þær þá að vera komnar með einkunina 9 og þá má jafnvel fara að gera sér vonir um verðlaunasæti á NM. Ta- kist þetta væri það mikill sigur fyrir íslenska fimleika. Nánar verður sagt frá Bikarmótinu á unglingaíþrótta- síðunni um næstu helgi. Morgunblaðið/Einar Falur BjArn Magnússon, Ármannl, er héma albúinn að hremma hestinn sem sjálfsagt vildi hlaupa burtu fengi hann einhverju ráðið. Fáir keppendur en árangur viðunandi Lafayette „Fat“ Lever lék frábærlega með liði sínu, Denver Nuggets, í fyrra og er Qórði besti bakvörðurinn í NBA-deildinni að mati Einars Bolla- sonar. í KÖRFUHRINGNUM Red Auerbach er þekktur fyrir að ná í góða leikmenn H RED Auerbach, fyrrum þjálf- ari og nú forseti Boston Celtics, er þekktur fyrir snilli sína við að velja og ná í góða leikmenn. Hér eru nokkur dæmi: Einar 1) Hann kom auga Bollason á Bill Russel 1956 og seldi marga góða leikmenn til að ná í þennan snilling. 2) 1978 notaði hann 1. umferðar val sitt til að ná í Larry Bird, sem þá átti eitt ár eftir í háskóla — ekki dónalegt val það! 3) 1980 lét hann Golden State fá fyrsta og þrettánda valréttinn í skiptum fyrir Robert Parish og þriðja valrétt sem hann notaði til þess að ná i Kevin McHale. Boston hefur unnið meistaratitilinn þrisvar sinnum síðan. ■ STIGASKORUN heillar marga og oft er þeim mest hampað sem skora mest, og reyndar Iíka oft gagnrýndir fyrir skotgræðgi og eigingimi. Hvemig líst ykkur á að mæta liði sem þessu: Michael Jord- an, Mark Aquirre, Tom Cham- bers, Kiki Vandeweghe og Dominique Wilkins? ■ 1979 komu 2 nýliðar inn í deildina, sem áttu svo sannarlega eftir að setja svip sinn á hana, „Magic“ Johnson, Lakers og Larry Bird, Celtics. Það er ekki út af engu að margir vilja kenna þann áratug sem er að líða við þá félaga, en lítum nánar á nokkrar tölur. Frá keppnistímabilinu 1978-79 til síðasta tímabils hefur aðsókn aukist um 18% (samtals 12 milljónir manna mættu á leiki í NBA í fyrra). Sjónvarpsgláp(I) hefur auk- ist um 46% og meðallaun leikmanna hækkað úr 148.000 dollumm '79 í 510.000 dollara ’87. Þá hafa félög þeirra, Lakers og Celtics, unnið samtals 6 af 8 meistaratitlum þenn- an tíma. ■ MARGIR góðir nýliðar bætt- ust í hópinn í ár. Við skulum fylgjast vel með: Reggie William, LA Clippers, Armon Gilliam, Phoenix Suns, Dennis Hopson, New Jersey Nets, Kenny Smith, Sacramento Kings, Scott Pippen, Chicago Bulls, og síðast en ekki síst Tyrone Bogues, Washington Bullets. 'f*L GETRAUNIR: 1 X X 22X 21X 11X LOTTO: 3 9 10 16 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.