Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 6
6 B
HtorgiwMoMft /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Köln hefur ekki
unnið í Kaisers-
lautem í átta ár
- Werder Bremen hefur náð góðu forskoti í Bundesligunni
Werder Bremen náði góðu for-
skoti ív-þýsku Bundesligunni,
með því að leggja Karlsruhe
að velli, 2:0, í Karlsruhe. Frank
Naubarth skoraði bœði mörk
liðsins - í leik sem var afar
slakur. Á sama tíma mátti Köln
þola tap, 0:3, fyrir Kaiserslaut-
ern og Bayern gerði jafntefli,
2:2, í Hamborg. Nú þegar
knattspyrnumenn íV-Þýska-
landi eru farnir í vetrafrí, er
Bremen með fjögurra stiga for-
skot á Köln og fimm stiga
forskot á Bayern.
Dortmund kom' enn einu sinni á
óvart. Félagið varð að sætta
sig við tap, 0:1, fyrir Mannheim á
heimavelli. Mannheim vann sinn
fyrsta sigur á úti-
Frá velli síðan 11. mars
Jóhannilnga 1986. Félagið hafði
Gunnarssyni leikið 32 ]eiki á úti-
völlum án sigurs.
Klotz skoraði sigurmarkið, 1:0, af
17 m færi. Þetta var fimmta tap
Dortmund á heimavelli í vetur.
Kaiserslautem vann sigur, 3:0, yfir
Köln í mjög skemmtilegum leik -
þar sem hraðinn var mikill og mörg
góð marktækifæri sáust. Það eru
nú átta ár síðan Köln hefur unnið
sigur í Kaiserslautem. Harald Kohr,
Frank Hartmann og Sergio Allievi
skomðu mörkin.
Pierre Littbarski hjá Köln meiddist
á hné og getur hann ekki farið með
v-þýska landsliðinu til Argentínu
og Brasilíu.
114 Bæjarar handteknir
Mikil læti urðu í Hamborg þegar
stuðningsmenn Bayem Munchen
mættu þangað á laugardaginn. 114
Bæjarar vom handteknir eftir að
ljóst var að þeir vom búnir að
skemma tvo vagna í jámbrautalest-
inni sem þeir komu með til
Hamborgar. Lögreglan tók
skemmdarvargana í sína gæslu og
var farið með þá strax aftur til
Munchen.
35 þús. áhorfendur sáu leik Hamb-
urger og Bayem, sem endaði með
jafntefli, 2:2. Klaus Augenthaler
skoraði fyrst fyrir Bayern og síðan
var Hans Pflugler nær búinn áð
bæta marki við. Thomas von Hees-
en jafnaði fyrir Hamburger SV,
1:1, og Thomas Kroth bætti við
marki fyrir heimamenn. Lothar
Mattháus jafnaði, 2:2, fyrir Bayem
með góðu skoti af 25 m færi -
eftir aukaspymu Andreas Brehme.
Asgeir Sigurvinsson og félagar
hans töpuðu óvænt, 0:1, fyrir
spútnikliði Númberg, sem hefur
unnið sex leiki í röð. Dieter Eck-
stein skoraði sigurmarkið með skoti
af 17 m færi á 20 mín. Leikmenn
Stuttgart, sem léku of mikið upp
miðjuna, náðu ekki að svara.
Uwe Rahn, sem hefur verið meidd-
ur, lék óvænt með Gladbach. Hann
átti snilldarleik og skoraði tvö mörk
þegar félagið lagði Uerdingen á
útivelli. Fyrir leikinn sagði Wold
Wemer, þjálfari Gladbach, að leik-
menn sínir væm komnir til að hefna
þess að Horst Köppel, þjálfari Uerd-
ingen, var rekinn frá félaginu.
Köppel er fyrrum leikmaður Glád-
bách. Hann stóð við loforð sitt.
Gladbach vann sigur, 4:2. Hans-
Jörg Criens skoraði hin tvö mörk
Gladbach. Atli Eðvaldsson lék ekki
með Uerdingen.
Brasilíumaðurinn Tida tryggði Le-
verkusen sigur, 2:1, yfir Homburg.
■ Úrslit B/10
■ Staðan B/10
Reuter
Carsten Kober hjá Hamburger, sést hér berjast við Roland Wohlfarth hjá Bayem,
um knöttinn í leik liðanna í Hamborg.
KNATTSPYRNA / BELGÍA
Amórlékvel
og skoraði
KNATTSPYRNA / SPANN
Reuter
Portugalskl mlðherjlnn Paolo Futre hjá Atletico Madrid og Ripodas, vamar-
maður Osasuna, sjást hér í kröppum dansi.
Enn einn
stór-
leikur
Bemd
Schusters
Barcelona þýtur
upptöfluna
VESTUR-þýski miðvallarleik-
maðurinn knái Bernd Schuster
var maðurinn á bak við stóran
sigur Barcelona, 4:1, á Real
Murcia í spánsku 1. deildinni
um helgina. Hann hefur náð
sér mjög vel á strik að undanf-
örnu. Lið Barcelona, sem
byrjaði afleitlega í haust, hefur
klifrað upp töfluna að undanf-
örnu og er nú komið í 4. sæti.
Real Madrid er enn með ör-
ugga forystu, hefur fjögurra
stiga forskot, eftir sigur á Lo-
grones.
Bemd Schuster átti þátt í þrem-
ur af ijórum mörkum Barcel-
ona. Það fyrsta kom eftir aðeins
tvær mínútur. Hann gaf á Gary
Lineker, sem sendi knöttinn aftur
áleiðis til Schuster, en Þjóðverjinn
þurfti ekki að hafa neinar áhyggjur
því argentínski vamarmaðurinn
Jose Luis Brown spymti honum i
eigið mark! Francisco Carrasco
bætti öðm mörku við, beintúr auka-
spymu, á 19. mín. Urbano Ortega
gerði þriðja markið á 57. mín. eftir
góða sendingu Schuster. Lineker
gerði §órða markið á 82. mín. Skor-
aði þá með skalla eftir fyrirgjöf
Schuster. Manolo Sanhcez gerði
eina mark Murcia — potaði knettin-
um framhjá landsliðsmarkverðinum
Andoni Zubizarreta úr þröngri
stöðu.
Mexíkómaðurinn Hugo S,anchez
gerði tvö mörk fyrir Real Madrid
gegn Logrones og hefur því gert
13 mörk í vetur. Hann er marka-
hæstur í deildinni. Annað markið
gerði hann úr víti. Þriðja mark
Madrid gerði Emilio Butragueno
eftir frábæran einleik. Amaro Nad-
al gerði mark Logrones.
Portúgalinn Paolo Futre gerði eitt
mark í 3:1 sigri Atletico Madrid á
Osasuna, einnig Julio Salinas og
Antonio Parra.
■ Úrslit/B11.
■ Staðan/B11.
ARNÓR Guðjohnsen átti mjög góð-
an leik gegn Racing Jet er And-
erlecht vann 1:4 á útivelli. Racing
Jet erfrá Brússel eins og And-
erlecht þannig að það var ekki langt
á útivöllinn að þessu sinni. Arnór
skoraði eitt mark og lagði upp ann-
að. Það gengur hins vegar allt á
afturfótunum hjá Guðmundi Torfa-
syni og félögum í Winterslag
gengur hins vegar allt á afturfótun-
um. Þeir töpuðu 0:6 í Lokeren og
eru nú neðstir í deildinni, tveimur
stigum á eftir næsta liði.
Anderlecht byijaði mjög vel gegn
Racing Jet og skoraði Nilis strax á
2. mín. RJ jafnaði á 8. mín. en rétt fyr-
ir hálfleik komst Anderlect í 2:1 eftir
að Arnór hafði brotist
Frá Bjama upp hægri kantinn og
Markússyni gefið fyrir markið þar
iBelgiu sem Lindmann skallaði í
markið. Á 75. mín. skor-
aði Jansen þriðja mark Anderlecht og á
84. mín. skoraði Amór fjórða markið —
og það var eins og öll hin, með skalla.
Amór sagði eftir leikinn að sigur liðs
síns hefði aldrei verið í hættu. Að And-
erlecht hefði verið betra liðið allan
tímann. Hann sagði einnig að andrúms-
loftið innan liðsins væri orðið miklu betra
en það var fyrir skömmu og menn næðu
mun betur saman.
Antwerpen heldur áfram sigurgöngu
sinni hér í Belgíu, liðið vann Standard
Liege 3:0 á heimavelli og er nú með
þriggja stiga forskot á næsta lið. Nu í
vikunni keypti Antwerpen leikmann,
Franz Van Rooy, sem það var með í
láni frá PSV Eindhoven í Hollandi. Eind-
hoven vildi fá hann aftur, Rooy vildi
hins vegar ekki fara og var því keyptur
til Antwerpen. Verðið á Van Rooy eru
37 milljónir belgískra franka sem sam-
svarar 40 milljónum íslenskra króna.
Van Rooy hefur verið potturinn og pann-
an í leik Antwerpen-liðsins og því engin
furða að svona há upphæð hafi verið
gefin fyrir hann.
■ Úrslit B/IO
■ Staðan B/10
KNATTSPYRNA / HOLLAND
Kieft skoraði
fjögur mörk
Hollenski landsliðsmaðurinn Wim
Kieft skoraði fjögur mörk fyrir
Eindhoven - þegar félagið vann öruggan
stórsigur, 7:0, yfir DS’ 79 í hollensku
1. deildarkeppninni. Félagið vann sinn
fimmtánda sigur í röð og er með fullt
hús stiga.
Hans Gillhaus, Adick Koot og Ronald
Koeman skoruðu hin mörk Eindhoven,
sem hefur sex stiga forskot á Ajax. John
Bosman tryggði Ajax sigur, 2:1, yfir
Groningen - með því að skalla knöttinn
í netið á síðustu mín. leiksins.
Þess má geta að Eindhoven seldi Frans
van Rooy til Antverpen í Belgíu á laugar-
daginn.
■ Úrslit B/10
■ Staöan B/10