Morgunblaðið - 10.12.1987, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKlPri/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Bækur
Breytmgar — lyk-
illinn að framþróun
Á frummálinu: „The Renewal
Factor
Höfundur: Robert H. Waterman
(annar höfunda bókarinnar „In
Search of Excellence")
Útgefandi: Bantam, New York,
f október 1987. 338 bls.
Verð: Bókaversiun Sigfúsar Ey-
mundssonar, kr. 1.250.-
Bók Roberts H. Waterman er
árangur þriggja ára vinnu hans og
samstarfsmanna við að skoða hvaða
árangri bandarísk fyrirtæki hafa
náð í að þróa og breyta rekstrinum
til að halda yfirburða samkeppnis-
stöðu.
Samtals sjö mannár fóru í undir-
búning og ritun bókarinnar og
forráðamenn 500 fyrirtækja í 53
atvinnugreinum voru yfírheyrðir
um það vandamál sem fléstir þeirra
standa frammi fyrir: „Hvemig á ég
að breyta fyrirtæki mmu þannig
að ég haldi samkeppnishæfni I
framtíðinni?“
Endurnýjun er nauðsyn
Endumýjun er öllum fyrirtækjum
nauðsyn. Án endumýjunar verður
engin framþróun. En endumýjun
er meira en að breyta til að bijóta
upp gamlar hefðir. Endumýjun er
viðfangsefni sem stöðugt þarf að
vinna að, þar sem hugmyndir,
möguleikar og upplýsingar em
nýttar til að móta nýja stefnu; þróa
fyrirtækið í átt til frekari fullkomn-
unar.
I þessari bók er í fyrsta sinn
komið fram með nýja kenningu eða
aðferðafræði sem byggir á stefnu-
mótun eða áætlanagerð, þar sem
hin 7-c em höfð að leiðarljósi.
Minnti þetta mig á efnafræðina í
gamla daga þar sem „atom“ tengd-
ust og mynduðu ný frumefni við
sammna. Þannig tengir Waterman
7-c við 7-s og byggir upp hið eigin-
lega „endumýjunarfrumefni". Þar
rennur skipulagið og áætlanagerðin
saman í eitt. Sjá skýringarmynd.
Því miður er okkar tungumál
ekki orðið nægilega þróað á við-
skiptasviðinu, til að fást við ýmis
hugtök sem notuð em í stjómun
og viðskiptum. Lýsir það e.tv. bet-
ur en nokkuð annað veikleika okkar
á þessu sviði.
Átta áhersluatriði
Við lesum varla dagblað í dag
án þess að fjallað sé um erfiðleika
og jafnvel gjaldþrot fyrirtækja.
Fremur er fjallað um neikvæðar
hliðar fyrirtækjareksturs. Ekki veit-
ir okkur þó af að kynnast betur
þeim sem hafa staðið sig vel. Water-
man telur átta atriði sem skipta
höfuðmáli þegar horft er á þau fyr-
irtæki sem náð hafa að breytast
og þróast.
1. Safna upplýsingum (en ekki
bara tölum), vinna úr þeim og
nota þær til að breyta fyrirtæk-
inu.
2. Virkja starfsfólkið, nota hug-
myndir þess og leyfa því að
vera með.
3. Líta á staðreyndir með jákvæðu
hugarfari og safna upplýsing-
um þar sem samanburður,
mælikvarði, fjárhagslegt eftir-
lit og langtíma árangur er
hafður að leiðarljósi. Það er
ekki til það fyrirtæki sem hefur
náð langtímaárangri, án þess
að hafa gott kostnaðareftirlit.
DÍSIL-L VfTARAR
PEA//NGAR
Kosta aðeins 750.000
- Einstök greiðslukjör.
Áreiðanlegir vinnuþjarkar
sem þola stöðugt álag.
IZZ cflTTZj M Gott útsýni,
driflæsing, loftpressa og vökvastýri.
ÍÉMIM Til afgreiðslu strax.
dísil-lyftararnir eru
einsaklega hagkvæmir
í rekstri, þeir eru
neyslugrannir og
verð á varahlutum
er í sérflokki.
Auk þess má tengja
þá við ótal fylgihluti.
Islensk-tekkneska verslunarfélagid hf.
Lagmúla 5, simi 84525, Reykjavik.
2,5 tonna lyftigeta -3,3 metra lyfthæð.
Sýningarlyftari
á staðnum
- Líttu við!
4. Læra að hlusta. Leita eftir hug-
myndum frá viðskiptamönnum,
keppinautum, stjórnmála-
mönnum, starfsmönnum. í
raun öllum. Ekki horfa ailtaf á
sjálfan sig í spegli.
5. Leggja áherslu á hópstarf og
traust. Bijóta niður þá múra
sem menn og deildir byggja í
kringum sig. í hvirfílvindi er
rólegt í miðjunni og sleppið þar
hurðarskellum, hrópum og
skömmum.
6. John Akers, forstjóri -IBM, segist
aldrei breyta nema hann hafí
góða viðskiptalega ástæðu til
þess. Að hafa ekki breytt lengi
er góð viðskiptaleg ástæða að
hans mati. Flytjið fólk á milli
starfa. Byggið upp innan frá,
en takið jafnframt inn nýtt fólk
í lykilstöður utanfrá þegar þess
er þörf.
7. Sýnið áhersluatriði ykkar í verki.
Ef þið viljið ekki láta trufla
ykkur á fundi, rífíð þá símann
úr sambandi. Það kostar ekki
nema nokkur þúsund krónur
að fá viðgerðarmann frá Pósti
og síma, en eftir þetta vita all-
ir fundarmenn hvað þú vilt.
Orð hefðu ekki haft sömu
áhrif. Don Kelley hjá General
Electric keypti umferðarljós og
setti þau upp í verksniiðjunni
og þau voru forrituð þannig að
rautt ljós kviknaði í hvert skipti
sem gæði fóru niður fyrir
ákveðið lágmark. Áhrifarík að-
gerð.
8. Vertu stöðugt með á blaði lista
yfír vandamál og möguleika
sem þú stendur frammi fyrir.
Úthlutaðu verkefnum, seldu
mönnum hugmyndir, en haltu
fast í þá hugmyndafræði og
framtíðarsýn sem fyritækið
byggir sína tilveru á.
Eins og- fiðrildið
fljúgandi
Waterman líkir stefnumótun og
vexti fyrirtækja við fíðrildi sem
flýgur gegnum gróðurvaxnar engj-
ar. Það er að fara eitthvað, en leiðin
virðist tilviljanakennd, óhagkvæm
og jaftivel óskiljanleg. En þrátt fyr-
ir allt verða menn að vita hvert
þeir ætla, þótt leiðin geti verið
skrykkjótt. Það er umhverfið sem
gerir hlutina flókna, með óvissu og
breytanleika. Tom Theobald hjá
Citibank sagði eitt sinn um reynslu
sína í Brasilíu: „Að vita fyrir vissu
að sólin kemur upp í fyrramálið er
nokkum veginn það eina sem þú
getur gert áætlanir um í Brasilíu."
Gerið áætlanir þó þær
fari í ruslið
Við verðum að læra að horfa til
framtíðarinnar og gera áætlanir
sem eru sveigjanlegar, stefnumark-
andi en jafnframt aðlögunarhæfar
og gerðar á breiðum grandvelli.
Ekki nákværaar og flóknar
langtímaáætlanir, heldur einfalda
stefnumótun sem byggð er á
vísindalegum athugunum, reynslu
og tilfínningu. Ekkert eitt dugar,
segir Waterman.
Waterman telur vinnuferilinn við
áætlanagerð skipta mun meira
máli en áætlunin sjálf. Tjáskiptin
og hugmyndimar sem þar koma
upp séu það mikilvægasta af öllu.
Flest árangursrík fyrirtæki hafa
fallið frá ítarlegum áætlunum sem
byggja á talnasúpum langt fram í
tímann. Áætlanaferillinn, vinnu-
brögðin, samskiptin, þau skipta
höfuðmáli og síðan þarf einhver að
hreinsa út hugmyndimar og mögu-
leikana sem menn köstuðu upp, eða
frá sér meðan á feriinum stóð.
Hvað er nýtanlegt af öllu því sem
menn hentu frá sér?
Með skipulögðum áætlanaferli
læra menn að vinna saman og skipt-
ast á skoðunum. Markmiðið er að
auka hæfni og þekkingu starfs-
Heildsala
Stefán Thorarensen
hf. með Eliza-
Arden-umboðið
Elizabeth Arden Inc. og Stefán
Thorarensen hf. hafa nýlega undir-
ritað dreifíngarsamning, sem felur
í sér dreifíngu á Elizabeth Arden
snyrtivöram og Karl Lagerfeld ilm-
vötnum á íslandi.
Elizabeth Arden Inc. var stofnað
í byrjun aldarinnar af Florence
Nightingale Graham, á tíma sem
óaigengt var að konur hefðu fram-
kvæði í viðskiptum. í dag er
Elizabeth Arden Inc. stór fjöiþjóð-
legur hringur, samkvæmt upplýs-
ingum frá Stefáni Thorarensen hf.
Rúna Guðmundsdóttir snyrti-
fræðingur mun annast kynningu
og sölu á fyrrgreindum snyrtivöram
á vegum Stefáns Thorarensen hf.,
en Rúna hefur um árabil kennt förð-
un og snyrtingu á vegum Karon-
samtakanna.