Morgunblaðið - 22.12.1987, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
B 13
VEITINGAHÚS OG
KAFFIHÚS ÁN
VÍNVEITINGALEYFIS
Borðað á staðnum
eða tekið með heim:
AMERICAN STYLE
Skipholti 70
Á American Style er opið daglega frá kl.
11.00-23.00. Síminn er 686838.
ASKUR
Suðurlandsbraut 14
ÁAski eropiðalla daga frá kl. 11.00—
23.30. Síminn er 681344. Heimsending-
arþjónusta.
ÁRBERG
Ármúla 21
ÁÁrbergieropið alla daga frá kl. 07.00—
21.00, nema laugardaga, en þá er opiö
frá kl. 08.00—21.00 og ásunnudögum
er lokaö. Síminn er 686022.
BIGGA-BAR
Tryggvagötu 18
Á pizzustaönum Bigga-bar er opið alla
daga frá kl. 11.00—22.00 nema sunnu-
daga en þá er opið frá 16.00—22.00.
Síminn er 28060.
BJÖRNINN
Njálsgötu 49
Á veitingastaðnum Birninum er opið alla
daga frá kl. 09.00—21.00. Síminn er
15105.
BLEIKI PARDUSINN
Gnoðarvogi 44
Hringbraut119
Á Bleika pardusnum er opið alla daga
frákl. 11.00—23.30. Simareru 32005
og 19280.
ELDSMIÐJAN
Bragagötu 38a
I Eldsmiðjunni er opið alla daga frá kl.
11.30— 23.00. Siminn er 14248.
GAFL-INN
Dalshrauni 13, Hafnarfirði
Á Gafl-inum er opið daglega frá kl.
08.00—23.00. Siminn er 51857.
HÉR-INN
Laugavegi 72
Veitingastaöurinn Hér-inn er opinn dag-
lega frá kl. 10.00—22.00, en á sunnu-
dögum erlokað.
HJÁKIM
Ármúla 34
Hjá Kim er opiö alla daga frá kl. 11.00—
21.30, en næturþjónusta er einnig á
föstudags- og laugardagskvöldum til kl.
04.00. Síminner 31381.
HÖFÐAKAFFI
Vagnhöfða 11
í Höfðakaffi er opið alla virka daga frá
kl. 08.15—16.30 og á laugardögumfrá
kl.08.15—13.00. Á sunnudögum er lok-
að. Siminn er 686075.
INGÓLFSBRUNNUR
Aðalstræti 9
í Ingólfsbrunni er opið alla virka daga,
en lokað á laugardögum og sunnudög-
um. Opið erfrá kl. 08.00—18.00. Síminn
er 13620.
KONDITORI SVEINS BAKARA
Álfabakka
Konditori Sveins bakara er opið á virkum
dögum frá kl. 07.00—18.00, á laugardög-
um frá kl. 08.00—16.00 og á sunnudög-
urh frá kl. 09.00—16.00. Síminn er
71818.
KABARETT
Austurstræti 4
Kabarett er opinn á virkum dögum frá
kl. 09.00—20.00 og á laugardögum frá
kl. 10.00—14.00,enásunnudögumer
lokað. Síminn er 10292.
KENTUCKY FRIED
Hjallahraunl 15, Hafnarfirði
Á Kentucky Fried er opið alla daga frá
kl. 11.00—23.00. Síminn er 50828.
KÚTTER HARALDUR
Hlemmtorgi
Kútter Haraldur er opinn alla virka daga
frá kl. 07.00—19.00, á laugardögum frá
kl. 10.00—20.30 og á sunnudögum frá
kl. 13.00—19.00. Síminner 19505.
LAUGAÁS
Laugarásvegi 1
Á Laugaási er opið alla daga frá kl.
08.00-23.00. Síminn er 31620.
MADONNA
Rauðarárstfg 27 — 29
Á Madonnu er opið alla daga frá 11.30
-23.30. Síminn 621988
MARINÓS PIZZA
Njálsgötu 26
Marinó's Pizza-er opin alla daga frá kl.
11.30- 23.30.
MATSTOFA NLFl
Laugavegi 26
Matstofa Náttúrulækningafélags íslands
er opin alla virka daga frá kl. 12.00— 14.
00 og frákl. 18.00—20.00, en lokaöer
á laugardögum og sunnudögum. Síminn
er 28410.
MÚLAKAFFI
Hallarmúla
Múlakaffi er opið alla virka daga frá kl.
07.00—23.30 og á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 08.00—23.30.
Síminner 37737.
NORRÆNA HÚSIÐ
Hringbraut
Veitingastofa Norræna hússins er opin
alla daga nema sunnudaga frá kl.
09.00—19.00. Á sunnudögum e.r opið
frá kl. 12.00—19.00. Síminn er 21522.
NÝJA KÖKUHÚSIÐ
Austurvelli
JL-húsinu, Hringbraut
I Nýja Kökuhúsinu við Austurvöll er opið
alla daga nema sunnudaga frá kl.
08.00—18.30 og á sunnudögumfrá kl.
13.00-17.30. Siminn er 12340. í JL-
húsinu er svo opið frá kl. 08.00—18.00
frá mánudegi til fimmtudags, en til kl.
20.00 á föstudögum. Á laugardögum er
opiöfrá kl. 08.00—16.00 og á sunnudög-
um frá kl. 09.00—16.00. Síminner 15676
PIZZAHÚSIÐ
Grensásvegi 10
Pizzahúsiðeropiðfrá kl. 11.00—23.00,
en eldhúsinu er lokaö kl. 22.00 og eru
þá eingöngu seldar pizzur til kl. 23.30.
Nætursala erfrá kl. 24.00—04.00 á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Siminn er 39933.
PITAN
Skipholti 50c
Pítan er opin alla daga frá kl. 11.00—23.
30. Síminner688150.
PlTUHORNIÐ
Bergþörugötu 21
Pituhornið er opið alla daga frá kl.
11.00—22.30. Síminn er 12400.
PÍTUHÚSIÐ
Iðnbúð 8, Garðabæ
i Pituhúsinu er opiö alla daga vikunnar
frá kl. 11.30—23.00. Siminnér 641290.
POTTURINN OG PANNAN
Brautarholti 22
Á veitingahúsinu Pottinum og pönnunni
er opiö alla daga frá kl. 11.00—23.00.
Síminner 11690.
SELBITINN
Eiðistorgi 13—15
Selbitinn er opinn alla daga frá kl.
11.30-22.00. Síminn er611070.
SMÁRÉTTIR
Lækjargötu 2
i Smáréttum er opið alla daga frá kl.
10.00—23.30 og á föstudags og laugar-
dagskvöldum er nætursala til kl. 03.00.
Síminn er 13480.
SMIÐJUKAFFI
Smiðjuvegi 14d
Smiðjukaffi er opið daglega frá kl.
08.30-16.30 og frá kl. 23.00-04.00,
en á næturnarereinnig heimsendingar-
þjónusta. Síminner72177.
SÓLARKAFFI
Skólavörðustfg 13a
Sólarkaffi er opiö alla virka daga frá kl.
10.00— 18.00, lokað er á laugardögúm
og sunnudögum. Síminn er 621739.
SPRENGISANDUR
Bústaðavegi 153
ÁSprengisandi eropið daglega frá kl.
11.00—23.00, en á föstudags- og laugar-
dagskvöldum er þílaafgreiðslan opin fram
eftir nóttu. Síminn er 33679.
STJÖRNUGRILL
Stigahlfð 46—67
I Stjörnugrilli er opið alla daga vikunnar
frá kl. 11.00—23.30. Siminn er38890.
SUNDAKAFFI
Sundahöfn
Sundakaffi er opið á virkum dögum frá
kl. 07.00—20.30 og um helgarfrá kl.
07.00-16.30. Síminn er 36320.
SVARTA PANNAN
Hafnarstræti 17
Á Svörtu pönnunni er opiö alla daga frá
kl. 11.00-23.00. Siminn er 16480.
ÚLFAROG UÓN
Grensásvegi 7
Veitingastaðurinn Úlfar og Ijón er opinn
alla daga frá kl. 11.00—22.00. Síminn
er 688311.
VEITINGAHÖLLIN
Húsi verslunarinnar
(Veitingahöllinni er opið alla virka daga
frá kl. 09.00-23.00 og frá kl. 10.00-23.
00 á laugardögum og sunnudögum.
Síminner 30400.
VOGAKAFFI
Smiðjuvogi 50
I Vogakaffi er opiö alla virka daga frá kl.
08.00—18.00 og á laugardögum frá kl.
09.00—14.00, en á sunnudögum er lok-
að. Síminner 38533.
WINNY'S
Laugavegur116
Veitingastaðurinn Winnyá er opinn alla
daga frá kl. 10.00—22.00. Síminn er
25171.
Sjón-
varps-
myndum
Önnu
Frank
orgnamir voru hræðilegir.
Ég náði þá í innkaupalist-
ann og þau stóðu öll í hóp og biðu
og Anna var alltaf fremst. Það
skelfdi mig — ég vissi að ég var
eina samband þeirri við umheim-
inn.“ Sú sem talar heitir Miep Gies.
Hún er orðin 78 ára en það var
einmitt hún ásarht manni sínum
Henk sem tók Otto Frank, konu
hans Edith og dætur þeirra, Önnu,
sem skrifaði margfræga dagbók
um lífíð í felum undan nasistum í
Hollandi, og Margot inná heimili
sitt og faldi þau uppi á lofti við
Prinsengracht númer 163. Og það
voru Gieshjónin sem í tvö ár báru
þeim mat og föt og fréttir — það
sem þau þurftu til að komast af.
Og seinna þegar Frankfjölskyld-
an hafði verið svikin, handtekin og
send í útrýmingarbúðir var það frú
Gies sem fann dagbók Önnu uppi
á lofti. Gies geymdi dagbókina á
ömggum stað og beið þess að höf-
undurinn kæmi að ná í hana. En
Guðað á
skjáinn
Anna Frank lést í Bergen-Belsen
útrýmingabúðunum í mars árið
1945. Otto Frank og kona hans
voru send til Auschwitz og aðeins
Otto snéri aftur. Þegar hann kom
til Hollands bjó hann hjá Miep og
Henk Gies i sjö ár. Hann lést árið
Í981.
Milljónir hafa lesið dagbók Önnu
Frank, gerð hafa verið leikrit eftir
henni og kvikmyndir. En nú hefur
frú Gies bætt við söguna og sagt
hana frá sínum sjónarhóli í endur-
minningabók sem kom út í maí sl.
og heitir „f minningu Önnu Frank".
í haust kom saman í Hollandi kvik-
myndalið frá Bandaríkjum og
Bretlandi sem breytti bókinni í
tveggja tíma sjónvarpsmynd fyrir
CBS-stöðina undir heitinu „The
Attic".
„Saga mín er um fólk, ósköp
venjulegt fólk sem lifír hryllilega
tírna," skrifar Gies í formála bókar
sinnar. Hún fylgdist með tökum
myndarinnar í haust. Það er banda-
ríska leikkonan Mary Steenburgen
sem leikur hana í myndinni. Reikn-
að er með að myndin verði sýnd í
apríl á næsta ári úti í Bandaríkjun-
um en leikstjóri hennar er John
Erman („Rætur"). Aðrir leikarar
eru Victor Spinetti, Ronald Pickup
og Elanor Bron að ógleymdum
Paul Scofíeld, sem leikur Otto
Frank.
A hvetju ári flykkjast milljónir
ferðamanna til felustaðar Frank-
Qölskyldunnar við Prinsengracht-
skurðinn. Ásamt van Gogh og
Rembrandt hefur Anna litla orðið
stórt nafn í hollenskri sögu. í kjöl-
farið hefur Giesfjölskyldan verið
umdeild og öfunduð. „Þetta hefur
verið mjög erfítt fyrir okkur," seg-
ir Miep Gies. „Margt fólk í Hollandi
gerði það sama og við án þess að
þeirra nöfn komi nokkumtíman
fram. En við getum ekkert gert
að því þótt við földum Önnu Frank
og fjölskyldu hennar hjá okkur og
að þetta bam skrifaði nöfnin okkar
í sína heimsfrægu bók.“
Steenburgen varð fyrir miklum
áhrifum þegar hún kom á söguslóð-
ir til Amsterdam fyrir kvikmynda-
tökuna, persónumar í handritinu
og dagbókinni fengu líf en það var
Gies sjálf sem veitti henni leiðsögn
inní heim Önnu. „Ég sat á tali við
Gies þegar það rann upp fyrir mér
að fjölskyldan var algerlega háð
henni, hún nærði hana og klæddi,"
sagði Steenburgen. „Og ég spurði
hana: Miep, fannst þér þú vera eins
og móðir þessa fólks? Já, sagði
Miep. Einmitt þannig tilfínning
fylgdi þessu.“
Sú sem leikur Önnu er ung bresk
leikkona, Lisa Jacobs að nafni. Hún
er raunar 25 ára en Anna var 13
svo hún varð að gera sig stelpulega
og hækka röddina um áttund eða
svo. Þegar hún var í skóla las Lisa,
sem er gyðingur, dagbók Önnu og
fjarskyldir ættingjar hennar létu
lífíð í útrýmingarbúðum nasista.
Handtekin af nasistum: Ur sjónvarpsmyndinni „The Attic“, sem CBS hefur látið gera um Orinu
Frank og fjölskyldu hennar í felum í Hollandi í seinni heimsstyrjöldinni.
í sonarleit
þriller
Deadly Deception ★ ★
Leikstjóri: John Llewelyn Mox-
ley. Framleiðandi: Andrew
Gottlieb. Aðalleikendur. Matt
Salinger, Lisa Eilbacher, Bonnie
Bartlett, James Noble, Midred
Natwick. Bandarísk sjónvarps-
mynd. CBS Entertainment/
Steinar 1987.
Þessi kom á óvart, var mun
skárri en einkar fráhrindandi um-
búðimar sem em óvenju ósmekk-
legar frá hendi risans CBS/FOX.
Innihaldið er þriller, heldur slælega
leikinn en að öðru leyti þokkalega
gerður. Ungur maður verðu fyrir
því að missa konu og nýfæddan son
á sviplegan hátt. Konan fínnst
hengd en föt af syninum við ár-
bakka í grenndinni. Faðirinn vill
ekki samþykkja að drengurinn sé
látinn þó málinu sé lokið af lögregl-
unnar hálfu og fer að rannsaka
málið á eigin spýtur. Nýtur hann
aðstoðar blaðakonu. Kemur ýmis-
legt gruggugt í ljós er lausnin fer
að nálgast.
Ekki metnaðarfull framleiðsla en
stendur bærilega undir sér eins og
önnur mynd e. Moxley, the Night
Stalker, og hefur verið fáanleg hér
á leigunum. Höfundar halda áhorf-
andanum við efnið frá upphafí til
enda þrátt fyrir að gömul brögð séu
í hávegum höfð. Sem sagt þokka-
legur miðlungur í vondum umbúð-
um.
VEITINGAHÚS
Vagnhöföa 11, Reykjavík. Sími 685090.
DansstuAiA
eríÁrtúni
Annar í jólum
Nyju og gömlu dansarnirfrá kl. 22.00-03.00.
Hljómsveitin DANSSPORIÐ ásamt
söngvurunum Örnu Þorsteins og Grétari
Miðapantanir nú þegar hafnar á nýársfagnaðinn.
Vinsamlegast látið skrá ykkur tímanle