Morgunblaðið - 08.01.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
5. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988
Prentsmiðja Morgxmblaðsins
Noregnr:
Statoil ræð-
ur forstjóra
Ósló, Reuter.
TILKYNNT var í gser að nýr for-
sljóri fyrirtækisins Statoil hefði
verið ráðinn. Nýi forstjórinn tek-
ur við af Arve Johnsen, sem
stofnaði fyrirtækið árið 1972.
Arve Johnsen forstjóri Statoil lét
af störfum nú um áramótin og í gær
var tilkynnt að eftirmaður hans
væri Harald Norvik. Norvik hefur
starfað sem forstjóri verkfræðifyrir-
tækisins Astrup Hayer síðan 1986.
Aður var hann aðstoðarmaður olíu-
málaráðherra í stjórn verkamanna-
flokksins á árunum 1978-1981.
Norvik mun hefja störf hjá Statoil
í vor.
Talið er að með nýjum forstjóra
heíjist nýtt skeið í sögu Statoil, sem
á síðasta ári gekk í gegnum miklar
þrengingar eftir fjármálahneyksli.
Ekki er þó talið að Norvik muni víkja
mikið frá stefnu Arve Johansen sem
á sextán árum byggði fyrirtækið
upp. Statoil er stærsta fyrirtæki í
Noregi með 11.000 starfsmenn.
í bréfí dagsettu 5. janúar sem
birt var i gær segir fulltrúi Líban-
ons hjá Sameinuðu þjóðunum,
Rachid Fakhoury, að ástandið á
herteknu svæðunum muni ekki
breytast meðan ekki sé horfst í
augu við stefnu ísraels-manna,
sem brjóti í bága við allar sam-
þykktir og mannréttindasáttmála.
I bréfinu mótmælir Fakhoury árás
ísraela á bæi í Líbanon síðastliðinn
laugardag, þar sem fjöldi ó-
breyttra borgara hafi fallið.
ísraelar hafa sagt að loftárás-
unum hafí verið beint að bæki-
stöðvum skæruliða, þar á meðal
hafi árásirnar verið gegn pal-
estínskum skæruliðum sem
sögðust bera ábyrgð á svifdreka-
árásinni í desember þar sem sex
ísraelskir hermenn féllu. Fakhoury
fór fram á það í bréfi til fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna seint í gær-
kvöldi að öryggisráðið kæmi
saman til að fjalla um „yfirgang
ísraelshers í Líbanon.“
í gærkvöldi lagði Marrack Go-
ulding, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, af stað
til ísraels til að kanna ástandið á
herteknu svæðunum. Forsætisráð-
herra ísraels, Yitzhak Shamir,
sagði í sjónvarpi í gær að hann
myndi neita að ræða við Goulding,
„það er engin þörf á því,“ sagði
hann. Haft var eftir Shamir í
gær, að gyðingar muni aldrei fara
frá Israel og að ríki Palestínu verði
aldrei að veruleika. Staðfest hefur
verið að Shimon Peres utanríkis-
ráðherra ísrael mun ræða við
Goulding.
Reuter
ísraelskir hermenn handtaka palestínska unglinga i Nuseirat-flótta-
mannabúðunum í gær.
Færeyjar:
Mikið pantað með Norrænu
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni,
ÞRÁTT fyrir að enn sé hálft
ár þar til sumarleyfisferðir
færeysku feijunnar Norrænu
hefjast er fólk þegar farið að
festa sér ferðir með ferjunni.
Ferðaskrifstofur á meginlandi
Evrópu keppast nú við að panta
ferðir sem hluta af skipulögðum
sumarleyfísferðum sínum. Bjóða
ferðaskrifstofurnar „pakkaferðir“
fréttaritara Morgunbladsins.
þar sem farið er til Færeyja með
Norrænu. Þar er stansað í tvo
daga en síðan er farið með feij-
unni til íslands þar sem dvalið er
í eina eða tvær vikur. Vestur-
Þjóðvetjar hafa sýnt þessum
ferðum mikinn áhuga.
Talsmaður útgerðarfélagsins
Smyril-line sem gerir Norrænu
út sagði að salan hefði verið svip-
uð og á sama tíma í fyrra, en
fyrirspurnir hefðu borist víða að
í Evrópu. „Við verðum vör við
aukinn áhuga á þessum ferðum,"
sagði talsrhaður útgerðarinnar.
Norræna hefur legið við festar
í Kaupmannahöfn síðan 21. nóv-
ember, en vonast var til að hægt
væri að leigja skipið yfir vetr-
artímann. Sumarferðimar Norr-
ænu hefjast væntanlega í
júníbyijun.
Shevardnadze í Afganistan:
Innrásarherinn á
brott fyrir árslok?
Pakistanar bjartsýnir en
skæruliðar fullir efasemda
Islamabad, Reuter.
EDUARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sag’ði í
ræðu, sem hann flutti í Kabúl, höfuðborg Afganístans, á miðvikudag,
að hann vonaðist til þess að innrásarherinn færi úr landinu á þessu
ári og að skilyrði fyrir slíkum brottflutningi lofuðu góðu. Pakistanar
töldu þessi orð tilefni til bjartsýni, en þeir hafa tekið þátt í óbeinum
friðarviðræðum við kommúnistastjórnina í Kabúl. Íslamskir skærulið-
ar voru á hinn bóginn efins um ágæti orða Shevardnadzes.
Mótmæli við komu Margaretar
Thatcher til Nígeríu
Reuter
Efnt var til mótmæla við komu Margaretar Thatcher
forsætisráðherra Bretlands til Nígeríu í gær. Fóru
mótmælin, sem beindust gegn stefnu Breta í málefn-
um Suður-Afríku, friðsamlega fram. Thatcher kom
til Nígeríu frá Kenýa þar sem hún var í þriggja daga
opinberri heimsókn. Á myndinni sést hluti mótmæ-
lenda á flugvellinum í Lagos með spjöld sín þar sem
þess er krafist að leiðtogar svertingja í Suður-Afríku
verði látnir lausir úr fangelsum.
Mohammad Younis Khalis, leið-
togi breiðfylkingar afganskra frels-
issveita, sagði að þeir myndu ekki
taka þátt í neinni framtíðarstjóm
ásamt kommúnistum, en Sovétmenn
og leppar þeirra í Kabúl hafa ávallt
gert það að skilyrði fyrir „lausn
Afganistanmálsins" að kommúnistar
haldi áfram um stjómvölinn, enda
þótt fleiri eigi að fá að hlutast til
um stjóm landsins. Að hve miklu
leyti aðrir flokkar myndu fá að starfa
hefur hins vegar þótt i óljósara lagi.
Talsmaður pakistanska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að yfírlýsingar
Shevardnadze gæfu ástaeðu til bjart-
Aðstoðarframkvæmda-
stj órí SÞ á leið til ísraels
Jerúsalem, Kalandia og Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
EKKERT lát er á róstum á herteknu svæðunum í ísrael og að
minnsta kosti einn maður lést í átökum í gær þrátt fyrir að hvatt
hafi verið til friðsamlegra aðgerða meðal Palestínumanna. Líban-
on sendi Sameinuðu þjóðunum formleg mótmæli vegna loftárás-
anna á bæi i Líbanon síðastliðinn laugardag. Marrack Goulding
aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hélt í gær til ísra-
els og herteknu svæðanna.
sýni, en orðrétt sagði Shevardnadze
meðal annars: „Við viljum að 1988
verði síðasta ár nærveru sovésks
[herliðs] í landi ykkar."
Mohammad Younis Khalis sagði,
að því fyrr sem innrásarherinn hyrfi
úr landi, því betra, betra fyrir Kreml-
veija. „Þetta mun ráða úrslitum um
samskipti íslamskrar framtíðar-
stjómar Afganistans og Sovétríkj-
anna,“ sagði hann og ítrekaði að
samtökin, sem í eru sjö fylkingar
frelsissveita, myndu ekki taka þátt
í neinni framtíðarstjóm Afganistans
í félagi við kommúnista.
Þessu var beint að þeim orðum
Shevardnadzes, að „þjóðarsáttar"-
stefna Kabúlstjómarinnar, sem tekin
var upp í janúar, hefði borið ávöxt
á alþjóðasviðinu og að leiðtogafund-
ur risaveldanna hefði aukið bjartsýni
á friðargjörð í Afganistan.
Talsmaður Pakistana sagði að
sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna,
Diego Cordovez, væri væntanlegur
til Islamabad hinn 20. þessa mánað-
ar, til þess að undirbúa frekari
viðræður málsaðila, en hann vonar
að þær reynist síðasta samningalot-
an. Viðræður hafa til þessa gengið
stirðlega.
Styrjöldin hófst með innrás Rauða
hersins inn í Afganistan á jólum
1979 og hefur baráttu frelsissveita
gegn innrásarhemum og hers lepp-
stjómarinnar í Kabúl ekki linnt
síðan.