Morgunblaðið - 08.01.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988
51
KORFUKNATTLEIKUR / UNGLINGALANDSLIÐ
Sigraði íra í spennandi leik
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
körfuknattleik, U-19 ára, hafn-
aði í 2. sæti á móti í Skotlandi
sem lauk í gær. íslendingar
sigruðu íra, 69-67, í mjög
skemmtilegum og spennandi
leik í síðustu umferð.
Leikurinn var hnífjafn frá upp-
hafí til enda og jafnt á nær
öllum tölum. Islendingar voru þó
fyrri til að skora og þó að oft væri
jafnt náðu írar aldrei að komast
yfir. Mestur var munurinn um miðj-
an fyrri hálfleik, níu stig. í hálfleik
var staðan 33-30, íslendingum í vil.
íslendingar byijuðu vel í síðari hálf-
leik, en Irar náðu fljótlega að jafna
aftur. Þegar skammt var til leiks-
loka var jafnt, 70-70. Þá skoruðu
íslendingar fjögur stig í röð og
tryggðu sér sigurinn. Irar náðu þó
að klóra í bakkann með körfu á
síðustu sekúndunum.
íslenska liðið lék mjög vel í þessum
leik. Steinþór Helgason var besti
maður liðsins og Rúnar Guðjónsson
lék einnig vel, einkum þó í síðari
hálfleik.
Þetta mót var liður í undirbúning
unglingalandsliðsins fyrir Evrópu-
mótið í Finnlandi. Þar verða íslend-
ingar í riðli með Pólverjum, Finnum
og Svíum. Fyrir leikina í Finnlandi
verða þrír sterkir leikmenn komnir
til viðbótar, Árni Blöndal úr KR,
sem komst ekki með að þessu sinni
og þeir Herbert Arnarson og Júlíus
Friðriksson sem leika í Banda-
ríkjunum.
Það voru Skotar sem sigruðu í þessu
móti, en íslendingar töpuðu naum-
lega fyrir þeim, 67-69.
Stig íslands: Steinþór Helgason 21, Ragnar
Jónsson 15, Rúnar Ámason 11, Rúnar Guð-
Jónsson 10, Hannes Haraldsson 6, Sveinbjöm
Sigurðsson 6, Egill Viðarsson 3 og Gauti
Gunnarsson 2.
RALLAKSTUR
FOLK
■ GEORGE Graham fram-
kvæmdastjóri Arsenal hefur krafíst
afsökunarbeiðni frá Brian Clough
framkvæmdastjóra Nottingham
Forest vegna ummæla vegna sölu
Charlie Nicholas frá Arsenal til
Aberdeen . í grein í ensku dag-
blaði segir Clough: „Það væri
gaman að vita af hveiju Nicholas
var settur í einangrun á Highbury.
Það er að minnsta kosti undarlegt
að svo góður leikmaður skuli vera
settur á varamannabekkinn". Ge-
orge Graham svaraði þessu í grein
í gær og sagði að Clough kæmu
mál Arsenal ekki við. „Ég veit
ekki hvað fær Clough til að skipta
sér af stjórnun Arsenal. Ef það er
vegná peninganna þá ætti hann að
skammast sín! Ekki dettur mér í
hug að segja honum hvernig hann
eigi að stjóma Nottingham For-
est,“ sagði Graham.
■ VÍKINGAR sem sigiuðu í 2.
deild í sumar hafa ekki fengið jafn
marga leikmenn til liðs við sig í
vetur og búist var við. Hlynur Stef-
ánsson frá ÍBV og Guðmundur
Hreiðarsson úr Val munu að öllum
líkindum leika með liðinu í sumar.
Atli Helgason úr Þrótti hefur hins-
vegar hætt við að_ leika með
Víkingum . Þá mun Jon Otti Jóns-
son aðal markvörður liðsins
undanfarin ár vera að hugsa sér til
hreyfíngs.' Líklegt er að hann fari
til KA eða Fylkis . Þá mun Harald-
ur Stefánsson varnarmaður hafa
ákveðið að leggja skóna á hilluna
Vegna meiðsla.
■ ÁHORFENDUR á leikjum +i
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
Skotlandi hafa ekki verið fleiri í
mörg ár. Þetta er sjötta árið í röð
sem áhorfendum fjölgar milli ára
og á síaðri hluta 1987 fjölgaði
áhorfendum um 18%. Það er Glas-
gow Rangers sem á metið. Þar er
meðalfjöldi áhorfenda á heimaleik
um 40.000. Áhorfendur á siðari
hluta ársins í fyrra voru 576.459,
sem er aukning um 144.000 áhorf-
endur miðað við sama tíma 1986.
Það kemur sér vel fyrir Rangers
því Graeme Souness fram-
kvæmdastjóri liðsins hefur verið
iðinn við að kaupa dýra Englend-
inga.
■ HORST Franz hefur tekið við
þjálfun Schalke í V-Þýskalandi.
Franz hefur þótt afar snjall að
bjarga félögum frá falli S Bundeslig-
unni. Það gerði hann hjá Bielefeld,
þegar hann kom til félagsins á ell-
eftu stundu 1981. Hann endurtók
afrekið hjá DUsseldorf 1985.
KÖRFUBOLTI
Gainsville
sigraði ÍBK
Bandaríska liðið Gainsville sigr-
aði lið ÍBK 107:85 í gærkvöldi
í íþróttahúsinu í Keflavík. Staðan t
hálfleik var 56:45. fyrir Bandaríkja-
mennina. í iiði ÍBK voru Sigurður
Ingimundarson og Jón Kr. Gíslason
bestir.
KNATTSPYRNA
ARNOR
á ferð og fíugi
BRUSSEL-LONDON-KEFLAVÍK-REYKJAVÍK-
BRUSSEL-PARÍS-BORDEAUX
Um 5000 km á rúmum sólarhring
Arnór Guðjohnsen, nýkjörinn
íþróttamaður ársins, var svo
sannarlega á ferð og flugi síðasta
sólarhring, eins og við sögðum frá
í gær. Eftir að hafa komið til
landsins um kl. 17.00 á miðviku-
dag til að vera viðstaddur verð-
launaafhendinguna fóru Amór ,og
eiginkona hans, Ólöf Einarsdóttir,
rakleiðis utan á ný með einkaflug-
vél frá Reykjavíkurflugvelli.
„Þetta gekk allt ljómandi vel. Við
vorum komin heim í hús um kl.
fjögur í nótt, að belgískum tíma,“
sagði Ólöf er Morgunblaðið ræddi
við hana í gærmorgun. Þá hafði
hún þegar keyrt Arnór á æfíngu,
en fljótlega eftir hádegi hélt hann
með félögum sínum í Anderlect-
liðinu í æfingabúðir til Bordeaux
í Frakklandi. Flogið var frá Briiss-
el til Parísar og þaðan til Borde-
aux. Á rúmlega sólarhring
ferðaðist hann því rúmlega 5.000
kílómetra!
Morgunblaðið/ GÓI
Morgunblaöið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Flnninn Ari Vatanen er ákveðinn
í að sigra í París-Dakar-rallinu annað
árið í röð.
Vatanen
í f luggír
íAfríku
TÆPLEGA 200 farartæki eru
nú oltin, biluð eða föst eftir að
París-Dakar-rallið hefur staðið
í sex daga í eyðimörkum Afríku.
Finninn Ari Vatanen jók forskot
sitt lítillega þegar 800 km leið
var ekin á miðvikudaginn, en
hann ekur Peugeot 405 ásamt
Bruno Berglund. Fast á hæla
þeirra eru Frakkarnir Pierre
Lartigue og Bernard Maingret
á Mitsubishi, en þessir tveir
keppnisbilar hafa dágott for-
skot á þá sem koma næstir.
Keppnin hófst í París í Frakk-
landi, þar sem stutt leið var
ekin áður en um 600 farartæki
voru flutt með feiju yfír til Afríku.
Þar tóku illfærir
slóðar og ómerktar
eyðimerkur við
keppendum, sem
lent hafa í ýmsum
ógöngum og jafnvel slysum.' Tvö-
faldur meistari í heimsmeistara-
keppninni í moto-cross, Belginn
Andre Malherbe- kollsteyptist af
Yamaha-vélhjóli sínu á sandbing
og liggur nú illa slasaður á spltala.
Margir hafa velt keppnisbllum
sínum, m.a. kappakstursstjömum-
ar Jacky Ickx á Lada og Henry
Pescaralo á Peugeot 405, en sá
síðamefndi var í toppsætunum þeg-
ar það henti.
khikkurt.
refsing
1. Ari Vatanen/Bruno Berglund
Peugeot 405 turbo 4:34,24
2. Pierre Lartigue/Bernard Maingret
Mitsubishi Pajero 4:41,25
3. Patrick Zaniroli/Fenoul
RangeRover 5:42,19
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Gordon Lee
til Leicester
Gordon Loe.
GORDON Lee, sem þjálfaði
KR-inga síðastliðin þrjú ár,
tekur fljótlega við starfi sem
þjálfari hjá 2. deildarliðinu
Leicester City í Englandi.
David Pleat, stjóri Leicester,
sem þar til í haust var við
stjómvölinn hjá Tottenham Hot-
spur, greindi frá því í viðtali við
^■■■■1 blaðið Sun i gær
FráBob að hann ætlaði að
Hennessy bjóða Lee starf hjá
lEnglandi sér. „Gordon er
knattspyrnumaður
fram í fíngurgóma og félög þarfn-
ast manna eins og hans. Það er
skammarlegt að hann skuli ekki
hafa starfað við knattspymu upp
á síðkastið," sagði Pleat ennfrem-
ur.
Gordon, sem á sínum tíma var
stjóri hjá bæði Everton og Newc-
astle, hefur ekki starfað við
þjálfun síðan hann fór frá KR í
haust.
HANDKNATTLEIKUR
Óll P. Ólsen og Qunnlaugur Hjálmarsson, milliríkjadómarar í hand-
knattleik.
Óli og Gunnlaugur
dæma Evrópuleiki
ÓLI P. Ólsen og Gunnlaugur
Hjálmarsson, milliríkjadómarar
f handknattlelk, halda til Dan-
merkur árla í dag. Þar dæma
þeir leik dönsku bikarmeistar-
anna Lyngsa Boldklub og
Kuban Krasnodar frá Sovétríkj-
unum í Evrópukeppni bikar-
meistara kvenna, sem fer fram
á morgun. Leikurinn erí 16-liða
úrslitum.
Oli og Gunnlaugur verða síðan
aftur á ferðinni í febrúar. Þá
dæma þeir leik I 8-liða úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa karla. Leik
norska liðsins Urædd og SKA
Minsk frá Sovétríkjunum, sem fer
fram í Noregi 28. febrúar. Þetta
er þriðja árið í röð sem þeir Óli og
Gunnlaugur dæma leik I 8-liða úr-
slitum.
„Ég reikna fastlega með að það
verði nokkuð strembið að dæma
leikinn í Danmörku á laugardaginn.
Dönsku stúlkumar eru mjög sterkar
og örugglega ákveðnar að leggja
sovéska björninn að velli," sagði
Óli P. Ólsen, I samtali við Morgun-
blaðið.