Morgunblaðið - 31.01.1988, Blaðsíða 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1988
fclk í
fréttum
TÓNLIST
Rokkað í Moskvu
Nokkrar frægar rokkstjömur
frá vesturlöndum hafa stað-
fest að þær muni koma fram á
tónlistarhátíð sem haldin verður í
Moskvu til stuðnings baráttu gegn
eyturlyfjaneyslu. Dagblað sovéskra
ung-kommúnista segir að David
Bowie, Julian Lennon og George
Harrison hafi nú gefið loforð um
að koma fram ásamt sovésku hljóm-
sveitunum Svörtu kaffi, Bravo,
Fiskabúrinu, Tímavél o.fi. á tónleik-
um sem haldnir verða á Ólympíu-
leikvanginum í Moskvu dagana
25.-27. mars. Áður höfðu þau Peter
Gabriel, fyrrum söngvari Genisis,
og Joanne Stringway ákveðið að
taka þátt.
Til stendur að hljómsveitin Fiskabú-
rið fari í hljómleikaferð til vestur-
landa seinna á árinu. Söngvari
hennar, Boris Grebenchikov, sem
er fyrrverandi stærfræðikennari, er
nýkominn úr vesturför sem farin
var til að undir búa tónleikaferðina.
í ferð sinni komst hann m.a. í kynni
við Sting, David Bowie og Paul
McCartney.
Julian Lennon er einn
þeirra sem fram koma á
tónleikunum.
BÍLAR
Fyrsti
Land-Roverinn
essi mynd Ólafs K. Magnús-
sonar úr myndasafni Morgun-
blaðsins hefur talsvert sögulegt
gildi, en hún er af fyrsta Land-
Rovemum sem fluttur var til
landsins fyrir 40 árum síðan. Bíllinn
er enþá til, en hann er í vörslu
Heklu hf., sem hefur umboðið fyrir
þessa seigu bfla. Við jeppann
standa; (f.v.) Sigfús heitinn Bjama-
son, Ámi Gestsson, nú í Globus, Jón
Ólafsson, bifreiðaeftirlitsmaður,
Ami Jóhannsson, verkstjóri, og Óli
M. Isaksson sem varð níræður í
vikunni sem leið. Óli er ennþá í
fullu fjöri og mætir dag hvem til
vinnu sinnar í Heklu. I blaðinu í
dag er viðtal við Óla í tilefni af-
mælisins.
SKEMMTANIR
„The Mamas and the Papas“
skemmta á Islandí
Söngflokkurinn The Mamas
and the Papas er væntanleg-
ur hingað til lands á fimmtudag-
inn ásamt fímm manna hljómsveit
og mun halda tvenna tónleika
dagana 5. og 6. febrúar í veitinga-
húsinu Broadway. Nokkur laga
þeirra hafa náð umtalsverðum
vinsældum hér á landi óg má þar
nefna lög eins og „Califomia dre-
aming", „Monday Monday“,„
Dream a little dream of me“ o.fl.,
sem margir muna vafalaust eftir.
Söngflokkurinn hefur undanfarin
ár ferðast um Bandaríkin og hald-
ið þar tónleika, en sem stendur
em þau í Brasilíu, að sögn Björg-
vins Halldórssonar, en hann hefur
undirbúið komu þeirra hingað til
lands.
Nokkrar brejdingar hafa orðið á
liðsskipan söngflokksins síðan
hann var á hátindi frægðar sinnar
á sjöundajiratugnum. Höfuðpaur
flokksins er enn „Papa“ John
Philips, en hann hefur samið flest
laganna og útsett þau. Philips lét
mikið að sér kveða í Bandaríkjun-
um á hippatímabilinu, hann var
einn af forvígismönnum Wo-
odstock-tónleikanna og einnig
skipulagði hann tónlistarhátíðina
í Montereý 1967, þar sem söng-
flokkurinn kom fram ásamt
stjömum á borð við Jimi Hendrix
og Janis Joplin. Þá hefur hann
samið tónlist fyrir kvikmyndir og
ber þar hæst framlag hans til
myndar Nicholas Roegs „Maður-
inn sem féll til jarðar" sem var
með David Bowie í aðalhlutverki.
Frægasti meðlimur flokksins, að
Philips undanskildum, var vænt-
anlega söngkonan Mama Cass,
The Mamas and the Papas; Scott Macenzie, Laura Macenzie Philips, Spanky Macfarlane og
John Philips.
en hún lést fyrir aldur fram árið
1974. Spanky Mcfarlane kom þáí
hennar stað. Aðrir í flokknum eru
dóttir Philips, Laura, en hún fór
með eitt aðalhlutverkanna í mynd-
inni „American Graffity", og Scott
Macenzie, en hann flutti m.a. lag-
ið „San Francisco - wear some
flowers in your hair“, sem Björg-
vin sagði vera nokkurs konar
þjóðsöng blómakynslóðarinnar.
Björgvin Halldórsson sagði komu
hljómsveitarinnar vera hvalreka á
fjörur íslenskra tónlistarunnenda.
„Söngflokkurinnn hefur komi'
fram á frægum stöðum í Banda-
ríkjunum, svo sem „Limelight",
„Roxy“ og „L.A. Stock Ex-
change". Það er skemmtilegt að
fá þau hingað til lands nú, ekki
síst í ljósi til þess afturhvarfs sem
hefur orðið í tónlistinni. Það er
nóg að líta á vinsældalistana til
að sjá að tónlist fyrri áratuga er
sífellt að verða vinsælli og The
Mamas and the Papas eru verðug-
ir fulltrúar sjöunda áratugarins,"
sagði Björgvin Halldórsson.
Söngflokkurinn átti miklum vinsældum að fagna á sjöunda
áratugnum og gerði lög á borð við „California dreaming11
og-„Monday Monday" víðfræg.