Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 4
4 B
3W»rgnnMaÍi> /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
BORÐTENNIS / EVRÓPUKEPPNIN - 3. DEILD
Islendingar
ífyrstasinn
I2.deild
Sigruðu í 3. deild Evrópukeppninnar
ÍSLENDINGAR tryggðu sér
sæti í 2. deild Evrópukeppninn-
ar í borðtennis um helgina.
Þeir sigruðu í 3. deildinni, í
íþróttahúsi Kennaraháskólans,
unnu alla sína leiki og eru því
komnir í 2. deild í fyrsta sinn.
etta var í 8. sinn sem íslending-
ar tóku þátt í Evrópukeppn-
inni, en J)eir hafa ávallt verið í 3.
deild. Nu var keppnin á heimavelli
^■■■■1 og þá gekk allt upp.
LogiB. Það 'má þó búast við
Eiðsson að róðurinn þyngist
skrifar töluvert þegar kom-
ið er í 2. deild, enda
eru þar mun sterkari þjóðir.
„Þetta kom mér ekki á óvart. Við
vorum búin að leggja dæmið upp
þannig að við sáum að við áttum
möguleika," sagði Tómas Guðjóns-
son, en hann lék mjög vel. „Það
eina sem kom okkur á óvart var
liðið frá Mön. Við áttum alls ekki
von á sterkum keppendum þaðan,
en þeir komu okkur í opna skjöldu.
Þetta eru afskaplegag spennandi
tímamót og næsta takmark okkar
verður að reyna að festa okkur í
sessi í 2. deild. Það er þó alveg vð
því að búast við föllum niður aftur,
en þá er bara að fara aftur upp.
Það sem er þó skemmtilegast við
þennan sigur er að fínna erfíðið
skila sér. Það er mikill undirbúning-
ur sem liggur að baki þessum ár-
angri og gaman að sjá þetta allt
saman ganga upp.“
íslendingar sigruðu alla keppendur
sína, en það bytjaði þó ekki mjög
vel. ísland lék fyrsta leikinn gegn
Mön og fyrir síðastu viðureignina
var staðan 3:3. Tómas Guðjónsson
tryggði Islendingum þó sigur í
síðasta leiknum.
Aðra leiki sína unnu íslendingar
nokkuð örugglega.
Hjálmtýr Hafsteinsson náði besta
árangri íslensku keppendanna.
Hann sigraði í öllum íjórum leikjum
sínum og einnig í leikjum sínum í
tvíliða- og tvenndarleik. Tómas
Guðjónsson vann 5 af 6 leikjum
sínum, en tapaði einum af sjö leikj-
um sínum í tvíliða- og tvenndarleik.
Kjartan Briem og Ragnhildur Sig-
urðardóttir léku bæði tvo leiki og
sigruðu í báðum.
„Þetta gekk allt mjög vel og það
lá mikið á bakvið þetta mót,“ sagði
Gunnar Jóhannsson, formaður
Borðtennissambands íslands í sam-
tali við Morgunblaðið. „Við áttum
von á að sigra og nú tekur við
erfitt tímabil í 2. deild.
Við leikum sjö leiki og líklega þrjá
eða Qóra á útivelli. Það er því ljóst
að ferðalögin koma til með að kosta
okkur mikið og við verðum að reyna
að leika fleiri en einn leik í hverri
ferð.“ v
Það eru 8 þjóðir sem leika í 2.
deild, en ekki er alveg ljóst hvaða
þjóðir það verða. Nú eru þar Wa-
les, Grikkland, Spánn, Portúgal,
Skotland, Sviss, Luxemburg og
Noregur. Spánverjar fara líklega
upp r 1. deild, en ekki er Ijót hvaða
lið kemur niður. Um fall í 3. deild
berjast Grikkland og Portúgal.
„Það er ekki hægt að segja annað
en að þetta verður mjög erfitt.
Munur milli deilda er ótrúlega mik-
ill og vafasamt að við náum að vinna
leik,“ sagði Gunnar Jóhannsson.
„Það er þó mikill áfangi að vera
kominn upp og við stefnum að sjálf-
sögðu að því að vera þar áfram.“
Tómas QuAJónsson og Hjámtýr Hafstolnsson stóðu sig báðir mjög vel í Evrópukeppninni um helgina. Hér
eiga þeir í höggi við Jersey í tvíliðaleik. Tómas svarar uppgjöf mótherjanna, en Hjálmtýr fylgist spenntur með.
Ásta Urbanclc og Tómas Quðjónsson í tvenndarleik gegn Guemsey. íslendingar unnu öruggan sigur, 7:0.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Reuter
Heimsmet
Hollendingurinn Rob Druppers
setti nýtt heimsmet innanhúss
í 1.000 m hlaupi í Haag á laugar-
daginn. Hann hljóp vegalengdina á
2:16.62 mín. Gamla metið, 2:18.00
mín., átti Sovétmaðurinn Igor Lot-
orev, sem hann setti í Moskvu á
síðasta ári.
Heimsmet
fjórbætt
Heimsmetið í 50 m grindahlaupi
kvenna var fjórbætt á sama
innanhússfrjálsíþróttamótinu í
Austur-Berlín um helgina. Gloria
Siebert frá A-Þýskalandi bytjaði á
því að hlaupa vegalengdina á 6.69
sek. og bætti gamla metið sem
landa hennar, Comelia Oschkenat
átti, 6.71 sek.
Oschkenat endurheimti metið aftur
þegar hún hljóp á 6.68 sek. Siebert
sætti sig ekki við það og setti aftur
met, 6.67 sek. Oschenat var ekki á
því að gefast upp og hljóp á 6.58
sek. Hún átti þar með síðasta orðið
og heimsmetið er áfram hennar.
Reuter
Comella Oschkenat sést hér setja nýtt heimsmet f 50 m grindahlaupi innan-
húss í A-Berlfn á sunnudaginn.
Stefka Kostadinova frá Bulg-
aríu, 22 ára, setti heimsmet í
hástökki innanhúss á frjálsíþrótta-
móti í Aþenu á laugardaginn -
stökk 2.06 m. Hún átti sjálf gamla
metið - 2.05 m, sem hún setti í
Bandarfkjunum 8. mars á 1987.
Kostadinova bað um að ráin yrði
hækkuð upp í 2.10 m, en tókst
ekki að komast yfir ránna. Kostad-
inova á heimsmetið utanhúss - 2.09
m, sem hún setti á heimsmeistara-
keppninni í Róm.
Reuter
Stefka Kostantlnova sést hér stökkva yftr 2.06 m í Aþenu á laugardaginn.
Helmsmet