Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 12
12 B
jM«rsnnÞIiiiiiÍ> /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 23. FEBRÚAR
1988
.. u ,
,„Ji.u ,,. ,
Morgunblaðið/Bjami
I og Aðalsteinn Jónsson, Blikar, eru greinilega staðráðn-
ir að ná knettinum af Axel Bjömssyni, KA. Þeir höfðu betur er upp var staðið.
Mest seldu „sportteipin'á islandi:
Leukotape
Límist fast og styður vel við, án þess að hefta
um of hreifanleika t.d. handar eða fótar. Teyg-
ist ekki. Hægt að rífa þversum og langsum.
Auðvelt í notkun. Lengd á rúllu 10 m.
Hentar sérstaklega öllu íþróttafólki. íslensku
karlalandsliðin í handbolta og fótbolta nota
Leukotape.
Taktu ekki óþarfa áhættu,
notaðu Leukotape.
HEILDSÖLUBIRGOIR
NÝJAR
J.S.HELGASONHF. 685152
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Valdimar Qrfmsson var markahæstur Valsmanna í gær og átti mjög góðan leik.
Morgunblaöiö/Júlíus
Ólmlegir yfirburðir Valsmanna
VALSMENN áttu ekki í nokkr-
um vandræðum með ótrúlega
slaka ÍR-inga í gær í
Seljaskólðnum. Valsmenn léku
langt undir getu, en sigruðu
samt örugglega, 26:14. Meiri
hluti marka þeirra kom úr
hraðaupphlaupum sem voru
sum hver glæsilega útfærð,
enda mótstaðan ekki ýkja mikil.
IR-Valur
14 : 26
íþróttahús Seljáskóla, handknattleikur
1. deild, 22. febrúar 1988.
Gangur leiksins: 0:4, 3:6, 4:8, 4:13,
6:17, 8:18, 8:21, 10:23, 13:23, 14:24,
14:26.
Mörk ÍR: Sigfús Orrí Bollason 4/3,
Ólafúr Gylfason 3/1, Finnur Jóhannsson
2, Þorsteinn Guðmundsson 2, Frosti
Guðlaugsson 2 og Matthias Matthiasson
1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 19/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Vals: Valdimar Grimsson 7, Jak-
ob Sigurðsson 6, Júlíus Jónasson 4,
Geir Sveinsson 4, Jón Kristjánsson 3,
Þórður Sigurðsson 1 og Þorbjöm Guð-
mundsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 10.
Utan vallar: 6 mínútur. Geir Sveinsson
rautt spjald.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og
Gunnar Kjartansson og dæmdu sæmi-
lega.
Ahorfendur: 18S.
Það byijaði ekki vel hjá ÍR-
ingum og segja má að Vals-
menn hafi gert út um leikinn strax
í byijun. Þeir skoruðu fjögur fyrstu
mörkin og þá má
LogiB. segja að úrslitin hafi
Eiösson verið ráðin.
skrifar ÍR-ingar urðu fyrir
-miklu áfalli strax á
fyrstu mínútum leiksins er Guð-
mundur Þórðarson meiddist og gat
ekki leikið meira með liðinu.
ÍR-ingar náðu þó að hanga í Vals-
mönnum framan af og þegar 12
mínútur voru til loka fyrri hálfleiks
var staðan 4:8, Valsmönnum í vil.
Þá kom 15 mínútna kafli án þess
að ÍR-ingum taékist að skora, en
Valsmenn breyttu stöðunni í 4:14.
Síðustu mínútumar vora svo nánast
formsatriði og aðeins spuming hve
mikill munurinn yrði.
Það er ekki gott að segja hvemig
hefði farið ef Hrafn Margeirsosn
hefði ekki staðið í marki IR. Hann
varði 19 skot og flest úr dauðafær-
um. Það var þó ekki nóg því Vals-
menn fengu yfírleitt fleiri en eitt
tækifæri í hverri sókn.
Homamennimir Jakob Sigurðsson
og Valdimar Grímsson áttu báðir
mjög góðan leik. Þeir voru eld-
snöggir fram og hnitmiðaðar send-
ingar frá Einari Þorvarðarsyni
lögðu upp mörg mörk Valsmanna.
Júlíus Jónasson átti einnig ágætan
leik og Geir Sveinsson, en hann
fékk reyndar rauða spjaldið fyrir
að verja boltann tvívegis með fæti.
Valsmenn hafa því náð FH-ingum
að stigum, en ÍR-ingar berjast fyrir
sæti sínu í deildinni og ef þeir missa
Guðmund Þórðarson þá er útlitið
ekki bjart.
Urslit/B19
Staðan/B19
Guðmundur
nefbrotnaði
Guðmundur Þórðarson,
þjálfari ÍR, mun að öllum
líkindum missa af iaik ÍR gegn
KR um næstu helgi. Guðmundur
varð fyrir því óhappi að nef-
brotna í leik ÍR gegn Val í gær
og því vafasamt að hann verði
með á sunnudaginn.
„Ég veit ekki hvað gerðist, ég
fékk bara högg á nefið,“ sagði
Guðmundur í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég held að þetta hafi
verið nokkuð slæmt brot og það
er að minnsta kosti ijótt að sjá
a ' mér nefið núna.
Ég efast þv( um að ég verði
með gegn KR. Það er mjög
slæmt því að leikurinn hefur
mjög mikla þýðingu fyrir okk-
ur.
Daufir Blikar
höfðubetur
gegnKA
SkúliUnnar
Sveinsson
skrifar
ÁHUGALAUSIR og daufir
Breiðabliksmenn náðu að
vinna KA í 1. deildinni á laugar-
daginn. Það var Hans Guð-
mundsson sem vakti Blikana
af værum blundi undir lok leiks-
ins með því að skora nokkur
falleg mörk. Við þetta fengu
Blikar sjálfstraustið og þeim
tókst að vinna þrátt fyrir að
vera undir mest allan leikinn.
KA-menn hófu leikinn mjög vel.
Þjálfari þeirra og markvörður,
Brynjar Kvaran, varði geysilega vei
og vömin var sterk. Blikar voru
hinsvegar áhuga-
lausir og vömin al-
veg hræðileg.
Blikar reyndu að
taka tvo leikmenn
KA úr umferð um miðjan síðari
hálfleikinn og gafst það nokkuð
vel. Hans Guðmundsson átti einnig
góðan leik á þessum kafia, skoraði
mörg mörk upp á sitt einsdæmi og
við það vaknaði Breiðabliksliðið til
lífsins.
KA-menn voru með undirtökin allt
þar til um 6 mínútur vom eftir að
UBK komst 19:18 yfir. Staðan var
siðan 21:20 en síðustu mínútuna
skomðu Blikar tvívegis án þess að
KA tækist að svara fyrir sig.
Eftir að leiktfminn var runninn út
fengu KA-menn aukakast. Áður en
dómaramir höfðu gefið merki um
að aukakastið skyldi tekið, snéri
Pétur Bjamason sér við og þmmaði
knettinum í Hans Guðmundsson.
Auðvitað fékk hann að sjá rauða
• spjaldið fyrir vikið. Pétur virtist í
vondu skapi í leiknum, hann var sí
nöldrandi, og komst upp með það,
og kórónaði síðan leik sinn eins og
áður sagði. Hann er ágætur hand-
knattleiksmaður og ætti frekar að
einbeita sér að því að leika hand-
bolta og leyfa dómurunum að vinna
starf sitt í friði. Það kæmi mun
betur út fyrir hann og KA-liðið.
Hans lék vel að þessu sinni fyrir
UBK og það gerðu þeir bræður,
Aðalsteinn og Bjöm Jónssynir,
UBK-KA
23 : 20
Digranes, 1. deild I handknattleik,
laugardaginn 20. febrúar 1988.
Gangur leikaina: 0:2, 1:4, 3:7, 4:8,
6:8, 10:10, 10:12, 11:13, 12:16, 14:16,
17:18, 19:18, 21:20, 23:20.
Mðrk UBK: Hana Guðmundsson 8,
Aðalsteinn Jónsson 5, Jón Þórír Jóns-
son 5/1, Bjöm Jónsson 4, Kristján
Halldórsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkels-
son 10/1.
Utan vallan 10 mfnútur.
Mörk KA: Erlingur Krístjánsson 6,
Pétur Bjamason 4,. Fríðjón Jónsson 3,
Guðmundur Guðmundsson 3, Eggert
TrygKvason 2, Axel Bjömsson 2.
Varin skot: Brynjar Kvaran 14/1.
Utan vallar: 6 mfnútur.
Áborfendun 83.
Dómaran Ámi Sverrisson og Guðjón
Sigurðsson og var sá fyrmefndi ágæt-
ur en Guðjóni vom mjög mislagðar
hendur.
einnig. Hjá KA stóð Brynjar sig vel
í markinu og Erlingur Kristjánsson
lék einnig ágætlega. Geysilega
sterkur leikmaður.
Dómaramir vora sérstakur kapituli.
Ami dæmdi ágætlega, og var
greinilega á því að láta leikinn
ganga eins og hægt var, en Guðjón
gerði mikið af mistökum.