Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 13

Morgunblaðið - 23.02.1988, Page 13
3M<trgunfrlnM& /IÞROTTIR ÞRJŒXJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 B 13 BELGIA KNATTSPYRNA / BELGIA Guðmundur skoraði með þrumufleyg Tveir leikmenn Anderlecht reknir af leikvelli Par Frimann, danski landsliðs- maðurinn hjá Anderlecht. Frimann vill fara frá Anderiecht „ÉG er búinn að fá mig fullsaddan hér hjá And- erlecht - hef hug á að kom- ast til félags þar sem óg fœr tækífæri tii að leika með,u segir danski iandsliðsmað- urinn Per Frimann, sem er orðinn þreyttur á að verma varamannabekkinn hjá And- eriecht. Hann bætirvið: „Þjálfarinn er á móti mór.“ Amór Guðjohnsen er ekki einn um það að vera óhress með Liekens, þjálfarann um- deilda hjá Anderlecht. „Ég hef rætt við Van den Stock, formann Anderiecht og óskað eftir því að verða seldur eða leigður til annars félag út keppnistíma- bilið. Á þessum tíma er hægt að komast til félaga f Hollandi og Spáni, eða þá í Danmörku," segir Frimann, sem deilir hart á leikaðferð Ánderlecht. „Það er furðulegt að Anderlecht skuli leika með fímm manna vamariínu á heimavelli." Það er ekki nema von að Fri- mann sé óhress. Landsliðssæti hans er í veði - og það rétt fyrir Evrópukeppnina í V-. Þýskalandi. Frimann telur ekki mikla möguleika á að fá að leika í EM - ef hann er ekki f leikæf- ingu. GUÐMUNDUR Torfason skor- aði glæsilegt mark þegar Wint- erslag gerði jafntefli, 1:1, við St. Truiden. „Það var gaman að sjá á eftir knettinum hafna í netinu," sagði Guðmundur, sem skoraði jöfnunarmarkið á 71. mín. Hann fékk þá knöttinn frá hægri kanti og skaut við- stöðulaust með vinstri fæti - knötturinn hafnaði út við stöng. w interslag hafði ekki heppnina með sér í leiknum. „Eg er rétt að jafna mig eftir slæm meiðsli Frá Bjama Markússyni ÍBelgiu í hásin. Þetta er á réttri leið og ég var ánægður með minn leik og þá sér- staklega að ná að skora," sagði Guð- mundur. Winterslag er á hættúsvæði. Er í næst neðsta sæti með 12 stig, en liðið sem er fyrir ofan er með 15 stig. „Ég verð ekki áfram hjá Winderslag ef félag- ið fellur í 2. deild. Hvað ég geri er ómöglegt að segja núna,“ sagði Guðmundur. Amór Guðjohnsen og félagar hans hjá Anderlecht gerðu jafntefli, 0:0, gegn Molenbeek í leiðinlegum leik, sem bauð ekki upp neitt nema hörku. Níu leikmenn fengu að sjá gula spjaldið og tveir leikmerjn Anderlecht, Kmeciwic og Marc- houl, fengu reisupassann. Sfðustu 10 mín. leiksins léku því ieikmenn Anderlecht aðeins nfu. Danski leikmaðurinn Kenny Brylle skoraði tvö mörk fyrir FC Briigge ogtryggdi félaginu sigur, 3:1, gegn Standard Liege. Lokeren og Ant- werpen gerðu jafntefli, 1:1. UrslK B/14 StaAan B/14 GuAmundur Torfaaon skoraði glægilegt mark. KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND Woodcock jafn- aði fyrir Köln Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni í V-Þýskalandi Tony Woodcock, fyrrum lands- liðsmaður Englands, tryggði Köln jafntefli, 2:2, gegn Bochum og bjargaði þar með Köln frá fyrsta tapi á heimavelli. Woodcock, sem kom inn á sem varamað- ur, skoraði glæsi- legta á 81. mín. Stefan Engels, fyrirliði Köln, opnaði leikinn með þrumuskoti af 18 m færi, en þeir Lothar Woelk, fyrirliði Bochum og Uwe Leifeld, svörðu fyrir Bochum. Werder Bremen náði ekki að leggja Kaiserslautem að velli í Bremen, þar sem jafntefli varð, 0:0. Hinn sterki vamarleikmaður Bremen, Ulrich Borovka, var borinn af leikvelli, meiddur. Það munaði ekki miklu að Kaiserslautem næði að skora mark á 77. mín. Harald Kohr skallaði þá knöttinn fram hjá Oliver Reck, markverði. Karl-Heinz Riedle bjargaði á marklínu. Bayem Munchen lagði Mannheim að velli í Ludwigshafen. Manfred Bockenfeld skoraði fyrst fyrir Mannheim, en þeir Hans Pfliigler og Michael Rummenigge, sem skor- aði á 83. mín., svöruðu fyrir Bayem. Stuttgart vann sætan sigur í Mönchengladbach, 1:0. Arie Haan, þjálfari Stuttgart, lét lið sitt leika vamarleik. Leikmenn Stuttgart geystust svo fram í skyndisóknir þegar við átti og úr einni setti Gaud- ino sigurmarkið. Eftir leikinn fögn- uðu leikmenn Stuttgart mikið og köstuðu peysum sínum til stuðn- ingsmanna sinna. Ásgeir lék ekki með Stuttgart vegna meiðsla á öxl. Norðmaðurinn Andersen skoraði bæði mörk Niimberg, sem lagði Leverkusen, 2:1. UrslK B/18 StaAan B/18 KNATTSPYRNA Reuter Wolfram Wuttke, sóklnarleikmaður Kaiserslautem, sést hér leika á Gunnar Sauer, vamarleikmann Bremen. Ellefu þeir bestu TVEIR Norðuriandabúar eru í úrvalsliAi Bundesligunnar, sem er valiA áriega á miAju keppnistímabili. Það eru Dan- inn Flemming Povlsen, hinn 21 árs leikmaður með Köln og Norðmaðurinn Rune Brat- seth, varnarleikmaður hjá Werder Bremen. Liðið er þannig skipað: Mark- vörður Andreas Köpke, Numberg. Vamarleikmenn: Jurg- en Kohler, Köln, Franko Foda, Kaiserslautem og Rune Bratseth, Bremen. Miðvallarleikmenn: Ro- land Grahammer, Númberg, Thomas Hssler, Köln, Olaf Thon, Schalke og Ulrich Borowka, Bremen. Framlínumenn: Flemm- ing Povlsen, Frank Ordenewitz, Bremen og Júrgen Klinsmann, Stuttgart. Stórsigur ítala á Sovétmönnum GIANLUCA Vialli, framherji frá Sampdoria, skoraði tvívegis er hið unga lið ítala bar sigurorð af Sovétmönn- um, 4:1, f vináttulandsleik í knattspyrnu f Bari á laugar- daginn. Vialli, sem talinn er skemmti- legasti framheiji, sem komið hefur fram á Ítalíu í áraraðir, fiskaði vítaspymu á 7. mín. sem Franco Baresi skoraði úr. Það var markvörðurinn Dasayev sem felldi Vialli. Ellefu mín. síðar náðu Sov- étmenn svo að jafna. Þeir fengu aukaspymu við vítateiginn, Vagiz Khidiyatulin renndi boltanum til Gannady Litovchenko sem skor- aði. Sovétmenn sóttu mikið eftir markið en ítalir komust yfir á ný, þökk sé Vialli, á 30. mín. Vialli skoraði þá eftir sendingu Gian- carlo Giannini og var svo aftur á ferðinni er hann gerði sitt annað, og þriðja mark ítala, á 35. mín. Vialli var skipt útaf meiddum út af í leikhléi, en ítalir léku engu að síður frábærlega vel í síðari hálfleik. Það var fyrirliði liðsins, Giuseppe Bergomi, sem gerði fjóra markið á 87. mín. með skalla. Igor Belanov, knattspymumaður Evrópu 1986, var á bekknum hjá Sovétmönnum og kom ekki inn á fyrr en í síðari hálfleik. Hann fékk engu breytt. Uð Italfu: Walter Zenga, Giuseppe Ber- gomi, Giovanni Francini, Franco Baresi, Riccardo Ferri, Luigi De Agostini, Roberto Donadoni, Femardo De Napoli, Roberto Mancini, Giueppe Giannini, Gianluca Vialli (Ruggiero Rizzitelii á 46. mín.). Lið Sovétríkjanna: Rinat Dasaev, Vagiz Khidiyatulin, Vladimir Bessonov, Sergei Baltacha, Anatoly Demyanenko, Sergei Gotsmanov (Vasily Rata á 61. mín.), Sergei Aleinikov, Pavel Yakovenko (Victor Pass- ulko á 46.mín.), Gennady Litovchenko, Oleg Protasov (Igor Belanov á 46. min.), Ivan Yaremchuk. stór liður í áranaursrikri endurhæf inau DONJOY varmahlífar halda hita á liöamótum jafnframt því að veita góöan stuöning. DONJOY varmahlífar eru góö hjálp við endurhæfingu eftir slys eöa aðgerðir. Þær eru einnig sérlega hentugar fyrir fólk með liðagigt. n Útsölustadir: Útillf, Reykjavik og Bjarg, Akureyri. SlMI: 91-621460

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.