Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 1
IflKUNA 5. —
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
SAKAMÁL
Unnendur sakamálamynda fá eitthvað við
sitt hæfi þessa vikuna því Sjónvarpið sýnir
fimm myndir þar sem fjallað er um morð,
morðgátur og lausn þeirra. Sjónvarpið sýn-
ir á fimmtudaginn fyrsta þáttinn af þremur í nýjum myndaflokki um skoska
lögreglumanninn Taggart. Taggart freistar þess að leysa morðgátu ásamt
félaga sínum, Peter Livingstone. Kona auðugs landeiganda finnst myrt og
eiginmaðurinn sást síðast með mikið fé undir höndum á hraðri leið úr
landi. Þeir félagar komast að óvæntri niðurstöðu sem endranær. Reyndar
er fyrsta morðgátan leyst á laugardaginn í myndinni Morðin í Jeríkó. Þar
er það Morse lögregluforingi sem rannsakar dauða píanókennara. Á mánu-
daginn verður sýnd myndin Morðin í Yngsjö. Þetta er ný sænsk sjón-
varpsmynd byggð á sannsögulegum atburðum sem gerðust árið 1880.
Aðalpersónur myndarinnar eru mæðgin. Derrick verður á sínum stað á
föstudaginn og leysir sakamál að vanda með aðstoð félaga síns, Klein. Að
Derrick loknum verður sýnd
myndin Maðurinn frá
Majorka. Tveir lögreglu-
menn rannsaka rán og
morð. Sjónvarpið sýnir á
þriðjudaginn fyrsta þáttinn
af fimm í myndaflokki gerð-
um eftir sögu Ken Follets,
Víkingasveitin. í þessum
myndaflokki verða reyndar
ekki leystar neinar morð-
gátur en ætla má að spenn-
an sé ærin.
;.-t 4-±xr -------
11. MARZ
FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
MAÐURINN OG SKÁLDIÐ
Á Rás 1 á sunnudaginn kl. 13.30 hefst þáttaröð um Einar
Benediktsson, manninn og skáldið. Þættirnir eru fjórir, klukkustund
hver, og verða fluttir næstu sunnudaga á sama tíma. í þáttunum
er fjallað um æviferil Einars, bæði lesið og leikið. Flutt verða brot
úr Ijóðum hans og vitnað til rita hans í óbundnu máli.
Hver þáttur hefur hlotið sitt heiti og eru þau öll sótt til Ijóða Ein-
ars. Fyrsti þátturinn nefnist Sigurbragur fólks, er vaknar, annar
Upp með taflið, ég á leik-
inn, þriðji Sá deyr ei sem
heimi gaf lífvænt Ijóð, og
fjórði og síðasti þátturinn
Nú er ég kominn af hafi.
Við efnisval var stuðst við
ævisögu Einars eftir
Steingrím J. Þorsteinsson
prófessor og endurminn-
ingar Valgerðar konu Ein-
ars, sem Guðni Jónsson
prófessor skráði. Gils Guð-
mundsson samdi handritið,
en Klemens Jónsson stjórn-
ar flutningi. Sögumaður er
Hjörtur Pálsson. Aðrir flytj-
endur eru Hjalti Rögnvalds-
son, Herdís Þorvaldsdóttir,
Pálmi Gestsson, Róbert
Arnfinnsson og Klemens
Jónsson.
Einar Benediktsson
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-14
Utvarpsdagskrá bls. 2-14
Skemmtistaðir bls. 11
Hvað er að gerast? bls. 3/S
íslensk náttúra bls. 7
Bíóin í borginni bls. 7
Framhaldsþættir bls. 7
Veitingahús bls. 9/11
Myndbönd bls. 13/16
Guðað á skjáinn bls. 15
B
BLAÐ