Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 B 13 MYNDBÖIMD Sæbjörn Valdimarsson FRELSIÐ FUNDIÐ gamanmynd TURTLE DIARY ★ ★ ★ Leikstjóri John Irvin. Handrit Harold Pinter, byg-gt á skáldsögu Russell Hoban. Tónlist Geoffrey Burgon. Framleiðandi Richard Johnson. Leikendur Ben Kings- ley, Glenda Jackson, Richard Johnson, Michael Gambon, Rose- mary Leach, Elanor Bron, Harri- et Walter og Jeroen Krabbé. Hinir fjölmörgu aðdáendur Har- olds Pinter mega vel við una þessa dagana. Verk hans hafa verið sýnd í vetur bæði í Gamla bíói og í Hlað- varpanum við miklar vinsældir og aðsókn. og nú var að koma á mark- aðinn myndbandið Turtle Diary sem státar af hlýju og beinskeyttu hand- riti skáldsins, sem jafnframt er fyndið á einkar raunsæjan hátt. Turtle Diary er á yfirborðinu um tvær persónur sem eiga það sameig- inlegt að lifa að vissu leyti í búri innibyrgðra tilfínninga, hræddar við allar breytingar á högum sínum, Litlar og skelkaðar kúra þær i sínu homi. Þær eiga og saman það áhugamál að frelsa nokkrar risa- skjaldbökur úr sædýrasafni og verður þetta hugðarefni til að leggja saman leiðir þeirra. Að sjálfsögðu er skjaldbakan tákn smæðar söguhetjanna sem einnig hrærast innan skelja lokaðra kennda. Því er frelsisgjöfin þeim ekki síður mikilvæg en dýrunum. Þegar slq'aldbökumar taka sund- tökin óþvingaðar í víðáttu hafsins losna velunnarar þeirra úr viðjum framtaksleysis og gunguskapar og verða ekki síður frelsinu fegnir. Af þessum efnisrekstri mætti ætla að Turtle Diary væri þyngsla- legt, niðurdrepandi drama, en það er öðru nær. Þvert á móti er óvenju- lega bjart og létt yfír þessari hlýju og skemmtilegu mynd sem er svo full af vongleði og jákvæðum hug- leiðingum að hún ætti að koma öll- um í gott skap. Það helst allt í hendur; nett leikstjóm Irvin, (furðu- legt að hér er á ferðinni sami mað- urinn og stýrði hinni harðneskju- legu Hamburger Hill), hnitmiðað og létt handrit Pinters og síðast en ekki síst stórleikur alls leikhópsins. Þau Jackson og Kingsley fara svo létt og mannlega með hlutverk hinna bældu skjaldbökuvina að un- un er á að horfa. Kingsley sannar það hér, ekki síður en í hlutverki Gandhis að hann er einn besti núlif- andi leikara. Þá eru minni hlutverk- in öll afskaplega vel mönnuð. Mað- ur gæti ætlað að Richard Johnson hefði ffamleitt myndina til að fá hlutverk á hvita tjaldinu, þar sem hann hefur tæpast sést síðan hann var giftur bombunni Kim Novak, hér í eina tlð. En gamanlaust, þá er Johnson einn af virtari sviðsleik- umm Breta og á sjálfsagt stutt í sverðslag drottningar. Hann og Krabbé holdiklæða af snilld auka- persónur sem þétta myndina. Sama gegnir um þau Bron og Gambon. Látið ekki þessa einkar jákvæðu afbragðsmynd fara framhjá. EYÐIMERKUR- STEMMA spennumynd BACKLASH ★ Leikstjóri: Bill Bennett. Handrit: Bennett. Tónlist: Michael Atkin- son og Michael Spicer. Kvik- myndataka: Tony Wilson. Aðal- leikendur: David Argue, Gia Car- ides, Lydia Miller, Bryan Syron. Áströlsk. Mermaid Production 1986. Virgin/Steinar 1988. 90 mín. Backlash er ágætt dæmi um misjöfnu sauðina. Ástralir ruku af fítonskrafti uppá landakort kvik- myndaheimsins á síðasta áratug. Svo virtist lengi sem þeir gætu tæpast gert mistök, nöfn fjölda leik- stjóra og leikara urðu heimsfræg. Hollywood beið handan hafsins og í augum almennings varð álfan ein allsherjaruppspretta úrvalskvik- mynda. En svo er þó ekki, því mið- ur. Ástralir framleiða hortitti, sbr. Backlash, eins og hver önnur kvik- myndaþjóð. Þó er ég alls ekki frá því að þeirra mistök og smámyndir séu að mörgu leyti forvitnilegri en b-myndir annarra þjóða, þar sem saga og hefðir þessarar fjarlægu eyálfu eru svo ólíkar því sem við eigum að venjast. Það forvitnileg- asta við myndina er líka dulúðin sem umlykur frumbyggjana, en því miður er hún jafnframt veikasti partur hennar, eða endirinn, sem á að segja áhorfandanum eitthvað merkilegt um þetta niðumídda fólk og hina stórmerkilegu menningu þess og trúarbrögð, en þær útskýr- ingar renna bókstaflega útí sandinn. FIRNAGÓÐAR FURÐU SÖGUR gamanmynd AMAZING STORIES - II ★ ★ 1/2 I. The Amazing Falsworth. Leik- sljóri Peter Hyams. Handrit Mick Garris. Aðalleikendur Gregory Hines, Richard Masur. II. Ghost Train. Leikstjóri Steven Spiel- berg. Handrit Frank Deese. Að- alleikendur Roberts Blossom, Scott Paulin, Gail Edwards, Luk- as Haas. III. The Wedding Ring. Leikstjóri Danny DeVito. Hand- rit Stu Krieger. Aðalleikendur Danny DeVito, Rhea Perlman. Amblin Television/Universal 1985. Laugarásbíó 1988. 71 mín. Hér bjóðast á nýjan leik þrjár smellnar furðusögur úr sjónvarps- þáttum Spielberg-smiðjunnar. Fyrri þrennan var fyrst sýnd hér í kvik- myndahúsi en þessi fer beina leið á bandið. Enda er þetta efni unnið fyrir sjónvarp og er gott dæmi um einkar vellukkað afþreyingarefni fyrir litla skjáinn. En þrátt fyrir það þá var kostnaðurinn við gerð þátt- anna svo geigvænlegur að fram- leiðslu þeirra var hætt eftir aðeins 44 kafla. En það er önnur saga. Spielberg notaðist aðeins við úr- valsmannskap og fyrsta þættinum leikstýrir Peter Hyams, (Running Scared, 2010). Gregory Hines leikur sjáanda sem óvart verður á vegi fjöldamorðingja, (Richard Masur). Léttur, óhugnanlegur brandari og veikasti kafli myndarinnar. Spielberg nær frábærri stemmn- ingu í miðkaflanum, Ghost Train, sem segir frá litlum dreng er fylg- ist með ævilokum afa síns. Þau bera að á heldur draugslegan hátt en afastrákur fær ekkert að gert. Roberts gamli Blossom blómstrar í hlutverki gamla mannsins og Haas, (Vitnið), stendur bærilega fyrir sínu. Ghost Train er hreinræktuð Twilight Zone-saga, einsog þær gerðust bestar. Vandvirkni Spiel- bergs leynir sér ekki. Síðasti þátturinn er svo rúsínan í pylsuendanum. Hér er mættur til leiks góðkunningi kvikmyndahús- gesta, Danny DeVito, sem bæði fer með annað aðalhlutverkið og leik- stýrir S fyrsta sinn. (En um jólin var fyrsta, langa kvikmynd hans er hann leikstýrði, Throw Momma From The Train, frumsýnd vestra við frábærar móttökur almennings og gagnrýnenda). Þau DeVito og Perlman leika útjöskuð vinnudýr í Atlantic City, sem hafa tæpast í sig né á. Þegar kemur að brúðkaupsaf- mælinu á DeVito ekki fyrir gjöf sVo hann grípur til þess neyðarúrræðis að ræna forláta hring. Hitt veit hann ekki að á baugnum hvílir bölv- un. Lokakaflinn er bráðskemmtileg- ur, vel skrifaður, leikinn og gerður og á drýgstan þátt I að gera þetta myndband að pottþéttri skemmtun fyrir fjölskylduna — að undanskild- um yngstu börnunum — og kæmi engum á óvart þó framhald yrði á úrvali þessara vönduðu skemmti- þátta. ÓRAR spennumynd HINN ÚTVALDI - WHITE OF THE EYE ★★'/z Leiksljóri: Donald Cammel. Að- alleikendur: David Keith, Cathy Moriarty, Art Evans. Bandarísk. Cannon 1987. Það er vondur galli á mynd þeg- ar efnisþráðurinn er svo snúinn og margflæktur í nútíð og þátíð að áhorfendur tapa honum af og til. Þetta er einmitt meginlýti hinnar hnýsilegu spennumyndar, Hinn út- valdi, sem er I flesta aðra staði ágætlega gerð. í stórum dráttum gengur myndin út á samband þriggja persóna, ein þeirra fremur morð að óhugnanlegum hætti helgi- siða apache-indjána. Hér skortir ekki frumlegt handbragð leikstjór- ans, en í framhjáhlaupi má geta þess að Brando sjálfur var fyrir skömmu að tilkynna heimsbyggð- inni að hann væri að snúa sér aftur að kvikmyndaleik. Myndin verður byggð á eigin handriti karls, sem valdi engan annan en Cammel til að sjá um leikstjómina. Þetta eru ekki lítil meðmæli. Myndin er hlað- in dulúð og spennu og maður fær vissa samúð með einni persónunni og vonar í lengstu Iög... En því miður, þá skemmir Cammel myndina með yfírdrifnum, ómarkvissum, listrænum tilþrifum. Rænir áhorfandann heilsteyptri skemmtun því Hinn útvaldi verður hreinlega leiðinlegur á að horfa þegar buslugangur og tímastökk eru í algleymingi. En samt sem áður eftirtektarverð mynd leikstjóra sem býr yfír hæfileikum sem örugg- lega eiga eftir að nýtast honum betur í framtíðinni. Cí skur hefur opnað nýjan veitingastað á Suðurlandsbraut 4. Par bryddum við upp á tjölda nýjunga íglæsilegu umhverfí, en breytum þó aldrei þrennu: Hráefíiið og þjónustan skai vera fýrsta fíokks og verðinu ávallt stiiit íhóf. Saiatbar íhádegjnu og um kvöidmat. Fisk- og kjötréttir afmatseðii. Algtör nyjin izyur ||:f| ■ L- W » « 8 « § jr|| 8 jSji Sk ° Rjotveisia á sunnuaogum. Þú velur þá tegund af kjötl scm þú vilt- svínasteik, lambalæri eða nautasteik ■ og við steikjum það að þínum óskum. Þú færð eins mikið af hverju og þú vílt og kemur eflir ábót svo lengi sem þú hcfur pláss! Með fylgir súpa dagsins og salatbar, - ábót að vild. Velkomin! Suðurlandsbraut 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.