Alþýðublaðið - 15.10.1920, Side 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
frá Alþýðubrauð^erðinni.
Þeir sem óska eftir skuldabréfi fyrir lánstillagi sínu við stofnun
Alþýðubrauðgerðarinnar, geri svo vel að vitja þess á skrifstofu brauð-
gerðarinnar Laugaveg 61, þriðjudaga og föstudaga kl. io—n árdegis.
Æskilegt væri að nsenn hefðu með sér hina upprunalegu kvittun.
A.~V. Þeir sem kynnu að eiga óhægt með að koma á þessum
tíma, geta að jafnaði dagiega fengið afgreiðsiu þessu viðvíkjandi kl.
9 siðdegis.
Síjorn vJllþtfðíiGrauégQréarinnar.
SjómannaféL Rvíkur
heldur fund sunnud. 17. þ. m. kl. 4 síðd. í Bárubúð (niðri). — Full-
trúakosning og mörg nauðsynja mál til umræðu. Fjölmenniðl
Stjörnin.
fer héðan í dag kl. 6 síðdegis.
Farseðlar sækist í dag.
X.s. Gnllfoss
Farseðlar með „Gullfoss" sækist
á morgun (laugardag).
If Qgaæ andinn.
Amensk íandnemasaga.
(Framh.)
Líttu á migl" hrópaði Hrólfur
og lagði hendina á brjóstið, eins
og honum fyndist heiðri sínum
misboðíð. „Eg steli hestum nema
frá rauðskinnum? Hver þorir að
ympra á öðru eins? Dauði og
djöfull — hvar er sá þrjótur?"
„Hérna!" mælti Bruce hinn
rólegasti; „eg veit, að Pétur
Harper í Norðurbæ á þessa
hryssu".
„Það er laukrétt, við Sánkti
Péturl" öskraði Hróifur, og þessi
hálfgerða játning jók að eins á
kátínu manna, einkum þegar hann
á eftir stóð á því fastara eri fót-
unum, að hann hefði hestinn að
láni og með því skilyrði, að skilja
hann eftir hjá Bruce, en þangað
ætlaði eigandinn að vitja hans.
„En segðu mér nú, ofursti", bætti
hann við, „hvar er hesturinn sem
þú ætlar að lána mér; eg verð
að fara af stað áður en sól er til
viðár hnigin, því eg á langa leið
eftir ófarna?"
„Hvert ertu þá að fara?" spurði
Bruce.
„Til St. Asaph-stöðvaricnarl"
„Of langt til þess að eftirlits-
mennirnir geti farið með þér,
Hrólfur!" mælti ofurstinn, og
piitarnir, sem umhverfis stóðu,
ætluðu að rifna af hlátri, af þess-
ari sneið.
Plrólfur stökk alt í einu inn í
miðjan hópinn þar sem hann var
þéttastur og æpti frýjunarorð til
manna: „Eg heiti kapteinn Stack-
pole, og eg skora hvern þann á
hólm, sem móðgar mig. Hver
þorir til við mig?"
Hann snérist á hæl, galaði
eins og hani og hneggjaði eins
og hestur, öskraði eins og naut,
spangólaði eins og hundur, æpti
eins og rauðskinni og vældi eins
og úlfur — í stuttu máli, maður
gat haldið, að hann væri lifandi
dýraleikhús og hefði í sér anda
alira rándýra, En þar sem hann
var enn þá ekki ánægður með
árangurinn, skoraði hann á hvern
einstakann. En allir vissu, að hann
meinti ekkert með þessu íátæði,
og tóku því ekki upp þykkjuna,
heldur juku bræði Hrólfs sem
mest þeir máttu. Roland, sem var
farið að leiðast þessi fíflalæti,
ætlaði að fara að halda heim íil
vígisins, þegar hann heyrði Bruce
yngri ávarpa foringja hestaþjóf-
anna þessum orðum:
„Fyrst þig langar svona til
þess að slást, þá kemur þarna
rétti maðurinn. Þarna er Nathan
blóðugi".
Þessu hræðilega nafni var tekið
með ópi og óhljóðum, blönduð-
um iófaskellum og hlátri.
„Hvar er piltur sá?“ hrópaði
Stsckpole, og stökk sex fet í
loft upp og rak upp siguróp, „eg
hefi heyrt talað um ©rm þann,
og má eg hundur heita, ef eg
brýt ekki í honum hvert bein!“
„Lengi lifi Hrólfur öskrandi!"
hrópuðu piltarnir er í kring stóðu.
Iliisnaeði. Maður, sem
hefir stóra stofu, vill leigja tveim
piltum með sér. Upplýsingar frá
klukkan 6—7 á afgr. Alþbl.
A Oðinsgöt'u 30
getið þið alþýðumenn og konur
fengið hagkvæmust kaup á mat-
vörum og ýmiskonar smávörum
til vetrarins. Rúgmél fæst einnig
með hámarksverði og minna ef
keypt er 5 kg. eða meira. —
Vörurnar sendar heim
til yðar ef þér óskið.
Sími 951. — Sími 9 51.
Theódör Sigurgeirsson.
Verzlunin Hlíf á Hverfisgötu
56 A selur IxreinlaBtisvör-
ur, svo sem: Sólskinssápu, R.S-
sápu, þvottaduft í pökkum og
íausri vigt, sápuspæni, sóda og
Ifnbláma, »Skurepulver.« í pökk-
um af þremur stærðum, fægiduft,
ofnsvertu, skósvertu og góðar en
ódýrar handsápur. — Athugið, að
nú er ekki nema lítið orðið eftir
af riðblettameðalinu góða.
er ódýrasta, íjölbreyttasta og
bezta dagblað laodsins.
Kanpið það og lesið, þ&
getið þið aldrei án þess rerið*
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafar Friöriksmn.
Prentsmiöjan Gatenberg.