Morgunblaðið - 28.04.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/l3VINNlILÍF FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988
B 7
Morgunblaðið/Sverrir
IÐNAÐUR — Velarsamstæða til framleiðslu á prófílum í glugga
og útihurðir var formlega tekin í notkun fyrir stuttu hjá Trésamiðj-
unni Mosfelli. Að sögn forráðamanna fyrirtækisins er samstæðan ein
sú fullkomnasta á sínu sviði og er jafnframt sú eina sinnar tegundar
í Skandinavíu, en 18 samstæður voru settar upp á sl. ári víðs vegar
í heiminum.
Ennfremur kom fram, að fullkomin tölvustýring gefí kost á mikilli
nákvæmni og með þessari nýju tækni opnist möguleikar til bættrar
þjónustu, vöruvöndunar og hagræðingar í rekstri, sem skili sér í lægra
vöruverði.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Eigandi Trésmiðjunnar Mosfells
Kristján Vídalín, Eiríkur Þorsteinsson frá Iðntæknistofnun íslands og
James Dunshee, sem hefur yfírumsjón með vélinni.
Morgunblaðið/Sverrir
TOLVUKAUP “ Formleg afhending á nýjum tölvubúnaði
Alþingis fór fram síðastliðinn föstudag þegar fulltrúar Alþingis tóku
við nýrri WANG VS 7010 tölvu. Við hana verða tengdar þær WANG
einmenningstölvur sem Alþingi á fyrir, auk nýrra einmenningstölva
og ferðatölva frá WANG. í byrjun næsta haust er reiknað með að
búið verði að tengja 50-60 PC tölvur við Alþingistölvuna en þar af
verða 25 tölvur alþingismanna. Á myndinni sem tekin var við af-
hendinguna eru f.v. Þórarinn Friðjónsson, forstöðumaður tölvumála
Alþingis, Ólafur Johnson stjómarformaður Heimilistækja hf., Jón
Kristjánsson forseti neðri deildar Alþingis, Helgi Bemódusson útgáfu-
stjóri Alþingistíðinda, Sveinn Guðmundsson deildarstjóri hjá Heimilis-
tækjum hf., Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis og Kristján
Greipsson kerfísfræðingur.
Bankar
FLUTNENGAR —— Mikil undirbúningsvinna átti sér stað við
breytingar hjá Utvegsbankanum. Meðfylgjandi mynd er af starfsfólki
bankans þegar það stóð í flutningunum.
Aðalbanka. breytt í útibú
AÐALBANKA Útvegsbanka ís-
lands var breytt í útibú þann 1.
apríl sl. Útibússtjóri Útvegs-
bankans við Lækjartorg er Reyn-
ir Jónasson. Breytingarnar hafa
í för með sér að yfirstjóm bank-
ans hættir að sinna afgreiðslu-
málum eins ákveðins útibús, en
setur það í hendur útibússtjóra,
og getur bankastjórnin þannig
sinnt starfsemi allra útibúanna
jafnt.
Sú þjónusta sem áður var veitt
í aðalbanka fram yfír útibú verður
a hluta færð til allra útibúa, en
sérdeildir starfa undir yfírstjóm.
í kjölfar breytinga á starfsemi
Útvegsbankans við Lækjartorg
hafa verið gerðar endurbætur á
afgreiðslu bankans. Ýmsar deildir
hafa verið fluttar til þannig að þær
geti veitt aukna þjónustu, meðal
annars er öll erlend gjaldeyrisaf-
greiðsla á einum stað í neðri af-
greiðslusal bankans.
Hlntafélag Kaupgengi* Sölugengi* 1988 Jöfnun 1988 Arður Breyting frá 21.jan. 1988
Almennar tryggingar hf. 1,22 1,28 - 1,6%
Eimskipafélag íslands hf. 2,15 2,26 100,0% 10% +19,1%
Flugleiðir hf. 2,00 2,10 50,0% 10% +23,5%
Hampiðjan hf. 1,38 1,44 + 4,5%
Iðnaðarbankinn hf. 1,41 1,48 24,5% 9,5% + 18,6%
Verslunarbankinn hf. 1,10 1,14 24,5% 10% +6,0%
Útgerðarfélag Akureyringa hf. 1,65 1,74
Skagstrendingur hf. 1,80 1,89
Tollvörugeymslan hf. 0,95 1,00 25,0% 10% + 13,1%
Áskilinn er réttur til að takmarka þá
fjárhæð sem keypt er fyrir.
* Margfeldisstuðull á nafnverð, að
lokinni ákvörðun um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
Hlutabréfamarkaáurinn hf.
Skólavörðustíg 12, 3.h., Reykjavík. Sími 21677
BURT NIEÐ RYÐ OG TÆRINGU!
Ryö og tæring eru víöa alvarleg vandamál.
WONDER er öflug vörn gegn þessum skaö-
völdum. Þaö er allt í senn: ryöhreinsir, ryövörn
og grunnur undir málningu.
WONDER fjarlægir ryð án þess aö skemma
heila málningu, plast eða gúmmí.
WONDER veldur efnabreytingum í ryöi og
myndar varnarfilmu yfir flötinn sem boriö er á.
Þannig stöövast frekari ryömyndun.
WONDER getur verkaö sem grunnur undir
málningu. Þaö kemur t. d. í staðinn fyrir sand-
blástur, hreinsar málminn vel og dyggilega og
tryggir mjög góöa viðloðun málningar.
WONDER hentar hvar sem er, t. d. í vélsmiöj-
um, skipasmíðastöðvum, til viöhalds vinnuvéla
og á húsþök.
WONDER fæst í 1 gallons brúsum og 19 lítra
plastfötum.
Leitiö nánari upplýsinga hjá rekstrarvöru-
deild okkar.
ffa
qp asiaco hf
Vesturgötu 2 Pósthólf 826
121 Reykjavik Simi (91)26733