Morgunblaðið - 28.04.1988, Side 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ,
VlÐSKlPn/AlVlNNULÍF fimmtudagur 28. apríl 1988
Tölvur
Netkerfum fjölgar á
kostnað millitölva
eftir Hauk Nikulásson
Nýlegar kannanir meðal stjóm-
enda tölvudeilda leiða í ljós að svo-
i kallaðar millitölvur (minitölvur)
munu eiga erfiðara uppdráttar á
þessu ári. Ein þessara kannana,
sem rannsóknarfyrirtækið Sierra
Group framkvæmdi nýlega meðal
1588 deildarstjóra tölvudeilda,
sýndi að netkerfum §ölgar um 60%,
netmiðstöðvum um 70% á sama
tíma og fjölgun millitölva verður
aðeins um 20%.
„Sífellt fleiri notendur kjósa að
nota hugbúnað á einkatölvum og
sífellt fleiri tölvudeildarstjórar ætla
að kaupa ritvinnslu- og umbrots-
kerfí sem vinna í einkatölvuneti.
Dagar millitölvanna, sem helsta
valkosts miðlungs fyrirtækja, virð-
ast taldir," segir Merrily Shinyeda,
t forstjóri Sierra Group. „Við teljum
að net og netmiðstöðvaruppsetning-
ar vinni nú eins vel og jafnvel betur
en millitölvur. Auk þess sem meira
fæst af búnaði fyrir peningana."
Vaxandi tilhneiging er í þá veru
að nota tölvur sem byggjast á Intel
80386 örgjörva sem miðstöð fyrir
netkerfí. Einn stærsti banki Banda-
rílqanna, First Interstate, ákvað
fyrir nokkrum mánuðum að net-
kerfí (LAN) myndu koma í stað
milli- og stórtölva hjá þeim.
LESTUNARÁÆTLUN
m
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
AARHUS:
Alla þriðjudaga.
SVENDBORG:
Annan hvern þriðjud.
KAUPMANNAHÓFN:
Alla fimmtudaga.
GAUTABORG:
Alla föstudaga.
VARBERG
Annan hvern laugard.
MOSS:
Annan hvern laugard.
LARVIK:
Alla laugardaga.
HULL:
Alla mánudaga.
ANTWERPEN:
Alla þriðjudaga.
ROTTERDAM:
Alla þriðjudaga.
HAMBORG:
Alla miðvikudaga.
HELSINKI:
Arnarfell 3. maí.
Tim S 9. maí.
GLOUCESTER:
Jökulfell 10. maí.
NEW YORK:
Jökulfell 12. maí.
PORTSMOUTH:
Jökulfell 12. maí.
SKJPADE/LD
SAMBANDS/NS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVÍK
S/MI 698100
llÁiillJ
TAKN TRAUSTRA FLUTNINGA
Hlutabréf
millitölvufyrirtækja féllu í
verði
Nýlega tilkjmnti DEC að hagnað-
ur á þessum ársfjórðungi yrði minni
en búist hefði verið við. Ástæðan
væri sú helst að pantanir hefðu að
stærri hluta fallið á smærri útgáfur
VAX tölva svo sem eins og Mic-
roVAX 3000. Aðrir framleiðendur
millitölva hafa ekki farið varhluta
af þessari þróun. Hlutabréf milli-
tölvufyrirtækja eins og DEC, Wang,
NCR, Prime og Data General hafa
fallið í verði á sama tíma og hluta-
bréf annarra tölvufyrirtækja hækka
í verði. Einungis Hewlett Packard
virðist halda stöðu sinni, en það
fyrirtæki hefur egg sín í fleiri körf-
um.
Vonbrigði í sölu 9370 tölva frá
IBM virðast einnig renna stoðum
undir þessa þróun mála. Til dæmis
hefur Covia, sem er í eigu United
Airlines, dregið verulega úr kaupum
á 9370 tölvum þegar ljóst var að
þeir gátu keyrt mikið af hugbúnaði ■
sínum á einkatölvum frá IBM.
Sífellt fleiri verkefni, sem hingað
til hafa verið unnin á millitölvum,
eru nú unnin á einkatölvur og net-
tengdar einkatölvur.
Það sem helst virðist koma í veg
fyrir enn frekari útbreiðslu netkerfa
er hræðsla tölvudeildarstjóra. Net-
kerfí þurfa minni mannafla til við-
halds og gætu því valdið fækkun
starfa í sérstökum tölvudeildum
fyrirtækja.
Netkerfi fyrir valinu
Roy Reynolds hjá Gesco, sem er
tölvuþjónustufyrirtæki fyrir banka,
segir að svo virtist sem áhætta
hefði verið tekin með því að kaupa
netkerfí í stað 8100 tölvunnar sem
fyrirtækið var áður með. Hann
hafði ekki reynslu af neinu nema
millitölvum. Að hluta var ástæðan
fyrir vali á netkerfí sú að kostnaður
var minni, netkerfí almennt orðin
mjög áreiðanleg, auk þess sem
hægt var að kaupa einkatölvur ftá
nánast hverjum sem var til notkun-
ar í netinu. Þetta þýddi að hvorki
þurfti að binda sig við framleiðanda
né ákveðnar gerðir tölva.
Roy segist að lokum ekki geta
ímyndað sér að sá sem leiti eftir
almennu tölvukerfí í dag taki
System/36 eða Vax framyfír net-
kerfí.
Höfundur er sölustjóri Aficrotölv-
unnarhf.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndai
FLUGSTOÐ — Hinn nýi biðsalur Saga-Class farþega Flug-
leiða er hinn vistlegasti og ekki spillir útsýnið þar sem sjá má allan
Qallahringinn á Reykjanesi og Snæfellsjökul í góðu skyggni. Myndin
var tekin við opnuna, Vilhjálmur Guðmundsson ávarpar gesti.
Nýr biðsalur fyrir Saga-
Class farþega Flugleiða
BIÐSALUR ætlaður Saga-Class farþegum Flugleiða hefur verið
opnaður í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Nýi biðsalurinn var formlega
opnaður þann 14. april s.l. og er að sögn Helgu K. Bjamasonar sölu-
stjóra einn liðurinn í tilraunum Flugleiða til að bæta þjónustuna við
farþega.
Salurinn er staðsettur í norðaust-
urhomi flugstöðvarbyggingarinnar.
Þar er boðið uppá drykki og ýmsar
aðrar veitingar gestum að kostnað-
arlausu og dagblöð og fréttatímarit
munu liggja frammi fyrir farþega.
Saga-Class farrými og þjónusta
er boðin þeim farþegum sem kaupa
farseðla sína á venjulegu verði.
Meðal þess sem Saga-Class far-
þegar njóta umfram þá sem ferðast
á sérfargjöldum má nefna að engin
ákvæði eru um lágmarksdvöl,
breyta má farseðlinum fyrirvara-
laust, fresta flugi eða flýta, og jafn-
vel kaupa farseðil á brottfarardegi.
Þá er heimilt að dvelja á millilend-
ingarstöðum án aukagjalds og far-
gjald á innanlandsleiðum Flugleiða
er innifalið í miðaverðinu, sem og
áframhaldandi tengiflug til margra
borga Evrópu. Þá getur maki
Saga-Class farþega oft fengið
helmings afslátt af farmiða sínum
og farangursheimild þeirra er helm-
ingi hærri en þeirra sem ferðast á
sérfargjöldum.
Undanfama mánuði og ár hafa
Flugleiðir fengið aðgang að slíkum
biðsölum fyrir Saga-Class farþega
sína í fjölmörgum erlendum flug-
höfnum, auk þess sem Flugleiðir
hefur sinn eigin biðsal á Kennedy
flugvelli í New York.
-BB
Fræðsla
STJORNIN — Á aðalfundi Sparisjóðs vélstjóra flutti formaður
stjómar Jón Júlíusson skýrslu stjómar og Hallgrímur Jónsson spari-
sjóðsstjóri skýrði reikninga. í stjóm sparisjóðsins sitja þrír menn, tveir
kosnir af aðalfundi og einn af Borgarstjóm Reykjavíkur. Skoðunar-
menn sparisjóðsins voru kjömir þeir Valdimar Ólafsson löggildur endur-
skoðandi og Sigurður Hallgrímsson.
Á myndinni eru f.v. Guðmundur Hallvarðsson, kosinn af borgar-
stjóm, Hallgrímur Jónsson sparisjóðsstjóri, Jón Júlíusson formaður
sljómar og Jón Hjaltested.
Aðalfundur
Hagnaður Spari-
sjóðs vélstjóra
26,7 milljónir króna
AÐALFUNDUR Sparisjóðs
vélsljóra var haldinn 16. aprfl
sl. í frétt frá bankanum segir,
að reksturinn hafi gengið
mjög vel á árinu og betur en
áður í sögu hans. Rekstrar-
tekjur námu alls 294,7 millj.
kr. árið 1987 og rekstrargjöld
voru alls kr. 251,7 millj. kr.
Hagnaður fyrir áætlaðan
telgu- og eignaskatt var 43
millj. kr., sem svarar til 14,6%
af rekstrartekjum. Telgu- og
eignaskattur er áætlaður 16,3
millj. kr. og er því hagnaður
til ráðstöfunar 26,7 millj. kr.
Eiginfjárhlutfall sparisjóðsins
lækkaði úr 20,8% í 18,51%, þrátt
fyrir góða afkomu. Stafar lækkun-
in af mikilli innlánsaukningu og
auknum umsvifum sparisjðsins á
árinu. Samkvæmt lögum um
banka og sparisjóði má eiginfjár-
hlutfallið ekki vera lægra en 5%
og er því eiginfjárstaða sparisjðs-
ins sterk. Eigið fé nam í árslok
157,8 millj. kr. og hafði aukist frá
fyrra ári um 46,5 millj. kr. eða
41,8%.
Heildarinnlán sparisjóðsins
námu í árslok 1.006,3 millj. kr.
og höfðu aukist á árinu um 46,7%.
í fréttinni segir að innlánsaukn-
ingin hafi verið sú hæsta af bönk-
um og stærri sparisjóðum á árinu
1987. Hlutur sparisjóðsins í heild-
arinnlánsfé sparisjóðanna jókst úr
8,89% árið 1986 í 9,53% 1987.
Tímaritafundur hjá knark
IMARK — íslenski markaðsklúb-
burinn gegnst fyrir opnum fundi
um tímaritaútgáfu hér á landi
hinn 4. maí nk. að Hótel Sögu
og hefst fundurinn kl. 7.45 ár-
degis. Frummælandi á fundinum
verður Magnús Hreggviðsson,
framkvæmdastjóri Frjáls fram-
taks. Timaritaútgáfan hér á
landi hefur verið talsvert til
umræðu undanfarið, m.a. vegna
lesendakönnunar Verslunarráðs
og umræðna um upplagseftirlit
og gera aðstandendur Imarks
ráð fyrir að þessi atriði muni
koma talsvert til umræðu á fund-
inum.
Sparisjóðurinn stofnaði veðdeild
í júlí og voru heildarútlán í árslok
60 millj. kr.
Verslun
SaJa páska-
eggja meirí
enundan-
farínár
Metár hjá Nóa-
Siríus
í NÝAFSTAÐINNI páskeggja-
söluhrotu komu íslensku fyrir-
tækin Nói-Sirius og Móna vel
út úr samkeppninni við frönsku
páskaeggin, sem voru til sölu í
Miklagarði, að sögn Sigurðar
B. Sigurðssonar markaðssljóra
Nóa-Siríus og Sigurður E. Mar-
inóssonar framkvæmdastjóra
Mónu.
Hjá Nóa-Siríus var árið 1988
metár í sölu páskaeggja og seldist
framleiðsla þeirra m.a. nærri upp
fyrir páska í versluninni Mikla-
garði. Sömu sögu var að segja um
páskaeggin frá Mónu, en eitthvað
minna var keypt inn af íslensku
framleiðslunni í Miklagarði en
endranær, en á móti kom að aðrir
stórmarkaðir tóku heldur meira
en áður. Þetta er fyrsta árið sem
erlend páskaegg eru í beinni sam-
keppni við íslenska framleiðslu
með því að vera í „íslenskum
umbúðum", að sögn Sigurðar, en
íslenskir málshættir voru í páska-
eggjunum, ásamt leikföngum og
sælgæti.
Jón Sigurðsson framkvæmda-
stjóri Miklagarðs var nokkuð án-
ægður með söluna á innfluttu
páskaeggjunum, en þau voru frá
19-55% ódýrari en íslensku eggin
eftir stærð, miðað við 100 gr.