Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 Minnisfallbyssurnar. STAATSGALERIE STUTTGART Einar Guðmundsson skrifar frá Stuttgart: Kona handa Feneyjum. myndhöggvari og málari, af ítölsku bergi brotinn; hann lifði samt og starfaði í París mestan part ævi sinnar. Aðal- lega þekktur fyrir skúlptúr, þar sem hann kom sér upp handbragði sem eiginlega er vonlaust að stæla eða stela án þess að upp komist, nema ef vera skyldi á Grænhöfða- eyjum. Á viðkomandi sýningu í Stuttgart voru um 280 verk; áherzlupunktar voru súrreal- íski þátturinn á yngri árum listamannsins og síðan tíma- bilið frá 1947 til dánarárs. Alberto Giacometti fæddist með leir- og gipsklepra og 'pensil í höndunum. Strax frá blautu bamsbeini svalg hann í sig myndlistina ásamt móð- urmjólkinni; faðir hans var sjálfur kunnur listmálari. Þess er látið getið í kata- lógdoðranti, að árið 1921 hafí fyrstu kynni listamannsins af konum farið fram í gleðihúsi, með þeim árangri að þar til orðin reynsla varð að föstu lífsmunstri. Lengi vel var samflot með súrrealistum í París, sem small á endanum ekki alveg saman. André Breton bauð Stimpilteikning. Stuttgart lætur helst ekki sitt eftir liggja þar sem menn- ingin er og metingurinn á milli borga í Þýzkalandi. Þar er m.a. haldið úti glæsilegu safni myndlistar, sem fyrir- sögn vísar til. Þetta eru í raun tvær samtengdar byggingar, reistar á tvennum tímum; sú nýja var vígð árið 1984. Fyrir utan fastagripi, gam- alþýzka málverkið, ítalskt málverk og niðurlenzkt, klassíska módemista og sam- tímann, sem hangir uppi allan ársins hring, byggist starf- semi safnsins — og safna yfír- leitt — ekki svo lítið á skammtíma- eða' sér- og far- andsýningum; er þannig skapað svokallað líf í sögnum, með því að tilbreytingunni er ætlað fullt svigrúm. Það er lögð áherzla á að ná til fólks, og oftar en sem nemur eina skiptinu fyrir öll. Segir hér frá þremur gerólíkum sýningum, sem í gangi voru á sama tíma í Staatsgalerie Stuttgart. Nöfn listamannanna eru Alv- erto Giacometti, Walter de Maria og Dieter Roth. Alberto Giacometti (1901—1965) var svissneskur Heima. Walter de Maria: Fimm-heimsálfu-skúlptúr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.