Morgunblaðið - 30.04.1988, Page 4

Morgunblaðið - 30.04.1988, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 Á myndinni sem Chagall nefndi Birt- ing fjölskyldu iistamannsins, sem hann vann að 1935-47, má sjá hann umkringdan þeim sem honum þótti vænst um, eiginkonunni (fyrri) Bellu, dótturinni Idu og öllum horfnu ætt- i ingjunum. í bakgrunni má sjá tákn gyðingdóms þeirra, engillinn með w AListahátíð í júní í sumar gefst kostur á að sjá á íslandi verk meistara Chagalls, þessa heimsþekkta listamanns sem lést fyrir þremur árum, á 98. aldursári. Dóttir listamannsins, Ida Chagall, kemur með 35 málverk og teikningar, sem hún lánar á sýningu í Listasafni íslands. Marc Chagall lét eftir sig mikinn flár- sjóð, því hann lagði upp úr því að hafa í kringum sig sem flest verka sinnna í húsi sínu „La Coline“, þar sem hann bjó í útjaðri Saint-Paul-de-Vence við Miðjarðarhafið, í miðjum 5 hektara garði með stórum furutrjám. Þar hafði hann hengt upp margar frægustu myndir sínar. Enda þurfti hann ekki lengur að hugsa um að selja meðan greiddar voru fúlgur fyrir hvert verk sem hann lét frá sér. En varla var hann látinn á árinu 1985 þegar Vava konan hans þurfti að taka ofan af veggjum í setustofunni sinni málverk sem hún hafði hengt þar upp og haft fyrir augum í 20 ár. Franska ríkið hafði valið upp í erfðaskattinn þessi meistara- verk aldarinnar meðal 500 annarra málverka, teikninga og leirmuna. En gnægð var eftir, og nú fáum við að sjá ofurlítið brot af því. Og er það stór viðburður í íslensku myndlistarlífí. Fram í andlátið safnaði Chagall i kring um sig málverkum sínum og myndum. Hér situr hann i setustofu þeirra hjóna á tíræðisaldrí. Á veggj- um má sjá tvær af frægum myndum hans, sem ríkið kaus sér upp í erfða- skattinn, Þökin og Brúðhjónin við Eiffeltuminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.