Morgunblaðið - 20.05.1988, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Guðað á
skjáinn
Sam
„Stjörnubjartur“
Neill
Sam Neill heitir hann. Hann er
kvennamaður á hvíta tjaldinu en
rómantískur draumóramaður í
einkalífi. Hann er einn af fremstu
og sannarlega einn af þekktustu
kvikmyndaleikurum Ástralíu en
líklegast þekkja íslenskir sjón-
varpsáhorfendur hann best úr
breska myndaflokknum um meist-
aranjósnarann Reilly. Hann hefur
leikið í nokkrum góðum myndum
(„My Brilliant Career") og slæmum
(„Omen III") eins og gengur og
gerist en líklega hefur honum
hvergi vegnað eins vel og i sjón-
varpi. Nýjasti myndaflokkurinn
með honum er nú sýndur hjá ríkis-
sjónvarpinu á miðvikudagskvöldum
þessar vikumar en hann heitir
Kúrekar í Suðurálfu („Robbery
Under Arms"). í honum leikur
Neill enn einn ævintýramanninn,
kaptein Stjömubjart.
Myndaflokkurinn, sem ku vera
sá dýrasti sem gerður hefur verið
niðri í Ástralíu, er í sex hlutum og
íjallar um bófaforingjann Stjömu-
bjart og þann óvenjulega glæp
hans að stela hundruðum nautgripa
og flytja langa og stranga vegu
um merkur Ástralíu til kaupand-
ans. 0g eins og kannski mátti bú-
ast við gengur ekki allt eins og í
sögu hjá Stjömubjarti og félögum
hans.
Sam Neill er raunar ekki fæddur
Ástrali. Hann fæddist á írlandi
fyrir réttum 40 árum en þegar
hann var sjö ára flutti flölskylda
hans til Nýja-Sjálands. Sam litla
var mikið strítt í skóla í nýja
landinu, bæði var hann lítill og
Sam Neill í hlutverki S^ömu-
bjarts í myndaflokki ríkissjón-
varpsins.
væskilslegur og talaði með írskum
hreim, en það sem gerði útslagið
var að hann stamaði. Hann mátti
því beija frá sér, slást og rífast frá
byijun. Það var ekki fyrr en hann
varð 14 eða 15 ára sem hann rak
af sér slyðruorðið þegar leikfélag-
amir fóru að leika sér í klettum
og róa niður straumharðar ár. Sam
litli reyndist vera sá hugaðasti í
hópnum og fór létt með það sem
aðrir ekki þorðu. Um svipað leyti
hætti hann að stama.
Honum þótti frá unga aldri
óskaplega gaman að fara í bíó og
þegar kom að því að hann þurfti
að ákveða hvað hann ætlaði að
verða f lífínu datt honum ekkert
annað í hug en að verða leikari.
Sem var nokkuð erfítt mál á Nýja-
Sjálandi á þeim árum því enginn
leiklistarskóli var í landinu öllu.
Hann hafði ekki efni á að koma
sér eitthvað annað svo hann kom
sér í samband við leikhús og leik-
húsmenn og ferðaðist með leik-
hópum um landið og yfir til Ástr-
alíu.
Hann fór fljótlega að leika í bíó-
myndum en frægð hans náði aldrei
útfyrir heimalandið og Ástralíu og
Sam Neill gæti vel verið óþekktur
ennþá ef ekki hefði komið til fræg-
ur, frábær breskur leikari að nafni
James Mason. Hann sá mynd með
Sam Neill og þótti svo varið í hann
að hann einsetti sér að koma hon-
um áfram á leiklistarbrautinni. Þar
með var framtíð Neills tryggð.
Það er ofsögum sagt að Sam
Neill sé á góðri leið með að standa
jafnfætis stórstjörnum eins og Rob-
ert Redfords og Clint Eastwoods
enda er honum ekkert sérlega
umhugað um að vera stjama. Hann
hefur mjög gaman af að ferðast
og gerir það mikið vegna vinnunn-
ar en langskemmtilegast þykir hon-
um að vera úti í náttúrunni. í einn
mánuð á ári dregur hann sig f hlé
og fer til Skotlands með konunni
sinni, syni og tjaldi og slappar af
í einveru við náttúruskoðun og
veiðar. — ai.
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
VÉLABRÖGÐ
REYNOLDS
SPENNUMYND
SHARKY’S MACHINE ★-
★ ★
Leikstjóri: Burt Reynolds.
Handrit: Gerald Di Pego, byggt
á samnefndri skáldsögu e. Will-
iam Diehl. Kvikmyndatöku-
stjóri: William A. Fraker. Tón-
list: Snuff Garrett. Aðalleik-
endur: Burt Reynolds, Rachel
Ward, Vittorio Gassman, Brian
Keith, Charles Durning, Earl
Holliman, Henry Silva, Darryl
Hickman Bemie Casey, Ric-
hard Libertini. Stereo.
Bandarisk. Warner Bros 1981.
WHV 1983. Steinar 1988. 118
min.
Sharky’s Machine hefur elst
hálf illa, rétt eins og stjaman
sjálf. Annars er það viðbúið að
ofbeldismyndir gangi fljótt úr sér,
meginkappsmál þeirra flestra er
nefnilega að slá næstu mynd á
undan út í hverskyns bellibrögð-
um, misþyrmingum og kjafthætti.
Enda hafa tiltölulega fáar „löggu-
og-glæpona-myndir“ síðustu ára-
tuga orðið sérstaklega minnis-
stæðar, að maður tali ekki um
sígildar.
Sharky’s Machine var mun
betri afþreying fyrir fímm ámm,
er hún var sýnd í kvikmyndahúsi,
en í dag. Enda framþróuniii mik-
il. Tökum sem dæmi Stakeout,
sem fjallaði um svipað efni og var
ein vinsælasta myndin á síðasta
ári. Maskínan hans Sharky stenst
illa samanburðinn. En þá vaknar
líka önnur spuming: hvaða augum
lítum við Stakeout að fímm árum
iiðnum?
Hér er Reynolds f sínu besta
formi, bæði framan sem aftanvið
tökuvélamar. Sharky’s Machine
er, þegar öllu er á botninn hvolft,
að öllum líkindum heilsteyptasta
leikstjóraverk Reynolds, (þó svo
ég hafí lunkið gaman að The
End). Hraður og hrottafenginn
þriller frá upphafí til enda með
mörgum, forvitnilegum persón-
um. Nokkur átakaatriðin prýðis-
vel úr garði gerð.
Sharky’s Machine gerist í Atl-
anta, en svo virðist sem þar sé
tekinn við völdum undirheimanna,
nýr, útsmoginn forsprakki sem
hefur kverkatök á allri glæpa-
starfsemi í borginni og aukin-
heldur engu síðri tök á stjóm-
málamanni sem á sigurinn vísan
í væntanlegum kosningum. Ná
lögreglumaðurinn Sharky (Reyn-
olds) og menn hans til höftið-
paursins og morðhunda hans með
hjálp lúxusskækjunnar Dominoe,
(Rachel Ward). Og að vonum
grípur ástin unglingana.
Reynolds er snaggarlegur og
fylginn sér framan við mynda-
tökuvélina og heldur uppi dampi
sem leikstjóri. Enda er hann hér
á hápunkti ferils síns. Þeir Dum-
ing, Gassmann, Libertini og Silva
þétta myndina með ólíkri og
sterkri persónusköpun og Ward
er kynþokkinn holdi klæddur.
Örugg afþreying þrátt fyrir nokk-
ur ellimörk.
GÆÐAKONAN OG
GÖTUSTELPAN
FJOLSKYLDU-
MYND
CANDLESHOEA ★
Leikstjóri Norman Tokar.
Handrit David Swift og Rosem-
ary Anne Sisson. Byggt á bók-
inni Christmas at Candleshoe,
eftir Michael Innes. Framleið-
andi Ron Miller. Aðalleikendur
David Niven, Helen Hayes,
Jodie Foster, Leo McKern, Vi-
vian Pickles. Bandarísk. Walt
Disney 1977. WDHV/Bergvík
1988. 96 mín.
Bragðarefurinn Bundage,
(McKem), fær Casey, (Foster),
Bíóin í borginni
BÍÓBORGIN
Veldi sólarinnar ★ ★ ★
Framsækin og metnaðarfull, en
Spielberg kannski full hátíðlegur á
hæstu nótunum. Konfekt fyrir aug-
að - síður eyrað - og hinn ungi
Christian Bale er eftirminnilegur í
erfiðu aðalhlutverki. Mynd fyrir
vandláta. -sv.
Sjónvarpsfróttir ★ ★ ★ 1/2
Einstaklega skemmtileg og mein-
fyndin rómantísk gamanmynd um
fólk í sjónvarpsfréttum þar sem
meiru máli skiptir að velja rétt bindi
við jakkafötin en skrifa góða frétt.
Holly Hunter, William Hurt og Al-
bert Brooks fara á kostum og Jam-
es L. Brooks leikstýrir af smekk-
vísi, skynsemi og hugsun sem er
sannarlega dýrmæt í því skel-
þunna skemmtanafári sem imbinn
heldur sífellt að fólki. -ai.
Fullt tungl ★ ★ ★
Töfrandi rómantísk gamanmynd
frá Norman Jewison með Cher í
aðalhlutverkinu. Myndin fjallar um
Ástina með stórum staf og Cher
er ómótstæðileg. -ai.
Þrír menn og barn ★ ★ ★
Þrír piparsveinar taka að sér sex
mánaða gamla stúlku í þessari
bráðskemmtilegu og indælu gam-
anmynd sem byggð er á frönsku
myndinni „Trois hommes et un
couffin". Tom Selleck er senuþjóf-
urinn. -ai.
Wall Street ★ ★ ★
Nýjasta mynd Olivers Stones um
völd og græðgi á Wall Street með
Michael Douglas, Charlie Sheen
og Daryl Hannah í aðalhlutverkum.
-sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Metsölubók ★ ★
Brian Dennehy og James Woods
eru ólíkir en góðir saman í þessari
Wambaugh-legu félagamynd.
Vondi gæinn á líka að vera góði
gæinn en það gengur ekki upp í
þessu tilfelli. Victoria Tennant er
algjörlega útá þekju. -ai
STJÖRNUBÍÓ
Dauðadansinn ★ ★ 1/2
Norman Mailer hefur grimmt gam-
an af að filma sína eigin skáldsögu
með Ryan O’Neal í kynlífs- og
morömálum í þungskýjaðri sveit-
inni. Sannarlega kjaftshögg á
Amerískan hversdagsleika. -ai
unga götustelpu til liðs við sig til
að komast yfír fjársjóð sem falinn
er í kastala gamallar konu í Eng-
landi. Á Casey að þykjast vera
horfin dóttir-dóttir hennar og
kaupir Candleshoe, (Helen Hayes)
- gamla konan - þetta alltsaman
hrátt. Er Casey tekin inní fjöl-
skylduna, sem reyndar telur að-
eins þær tvær, þjóninn Priory,
(Niven), sem verður að bregða sér
í býsna mörg hlutverk, og krakka
af munaðarleysingjahæli.
En götustelpan fyrrverandi fer
fljótlega að læra að meta sóma-
fólkið í kastalanum og hinn út-
smogni Bundage smá-missir tökin
á henni. Að endingu snýst hún á
móti honum og allir leggjast á
eitt svo Candleshoe gamla haldi
kastalanum fyrir kóngsins skatt-
heimtumönnum.
Dæmigert, góðlátlegt Disney-
ævintýri um góða menn og vonda.
Heldur rýr í roðinu en þokkalegur
ieikhópur hressir svolítið uppá
sakimar. Niven er bestur í marg-
földu hlutverki.
Illur grunur ★ ★ ★
Hæggeng á köflum og rokkar á
milli drama, spennu og ástarsögu
en kostir hennar sem spennu-
myndar hafa vinninginn. -sv.
BIÓHÖLLIN
Aftur til baka ★ 1/2
Döngunarlítill draugagangur þar
sem handritshöfundar koma öllu í
algjörar ógöngur. Heldur veik-
burða leikhópur kann fátt til bjarg-
ar. -sv.
Fyrir borð ★ ★ 1/2
Létt, brosleg en vantar sterkari
brodd. Hawn er ætíð skemmtun á
að horfa en mætti að ósekju vera
kröfuharðari á handritin. -sv.
Hættuleg fegurð ★ ★ ★
Formúlan gengurfirnavel upp, ekki
síst fyrir tilstuðlan Whoopi Gold-
bergs sem á hér sinn langbesta
gamanleik. -sv.
Þrír menn og barn
Sjá Bióborgin.
Þrumugnýr ★ ★ ★
Arnold Schwarzenegger á flótta í
framtíðarþriller. Enn ein sem hittir
í mark hjá Arnold. -ai.
Spaceballs ★ ★ ★
Mel Brooks gerir grín að stjörn-
ustríðs- og öðrum geimvísinda-
myndum, framhaldsmyndum, leik-
fangagerð og sölubrögðum í Holly-
wood á sinn frábærlega geðveikis-
iega máta. -ai.
REGNBOGINN
Hetjur himingeimsins ★
Að slepptum hriplekum sögu-
þræði, síðustu mínúndunum og
Dolph Lundgren í hlutverki Garps,
má hafa gaman að Mattel leik-
föngunum. -ai
Gættu þfn kona ★ 1/2
Mynd um konu sem kúguð er af
kynferðislega brengluðum manni.
Tekur á svolítið frumlegan hátt á
kunnuglegu efni og vill gera vel en
er illa leikin og á margan hátt hroð-
virknislega gerð. -ai.
Hentu mömmu af lestinni
★ ★ ★
Fyrsta bíómyndin sem Danny
DeVito leikstýrir kemur mjög
skemmtilega á óvart. Morð og
meiðingar eftir uppskrift frá Hitch-
cock fá hinn skondnasta svip og
mamman er dásamlegt furðufól.
yai.
Síðasti keisarinn ★ ★ ★ 1/2
Epískt stórvirki. Efnið og kvik-
myndagerðin með ólíkindum
margslungin. Síðasti keisarinn er
næsta óaðfinnanleg að allri gerð
og hefur kvikmyndaárið 1988 með
glæsibrag. -sv.
Brennandi hjörtu ★ ★ 1/2
Einkar geðþekk, mannleg og ekta
gamanmynd frá frændum vorum
Dönum. -ai.
Hættuleg kynni ★ ★ ★ ★
Glæsilega uppbyggður og velleik-
inn þriller um hættuna sem hlotist
getur af framhjáhaldi þegar við-
haldið vill vera meira en bara
stundargaman í lífi mannsins. Vek-
ur spurningar og er verulega
spennandi. -ai.
LAUGARÁSBÍÓ
Kenny
Harla óvenjuleg mynd um ungan,
glaölegan og gáfaðan strák sem á
vantar neðri hluta líkamans. En
hann lætur ekki stjórnast af þess-
ari miklu fötlun og er því hvatning
okkur hinum að ráöa framúr ólíkt
léttari vandamálum. Einstök mynd
sem er að sjálfsögðu hafin yfir
stjörnuflokkun. -sv.
Rosary-morðin ★ ★
Hæggeng, nostursamleg saka-
málamynd sem nýtur góðs af hlýj-
um undirleik Donalds Sutherlands,
sem hér er víðsfjarri sinni gamal-
kunnu skálksímynd. -sv.
Hróp i frelsi ★ ★ ★
Hvað snertir þá ætlun aöstand-
enda „Hróps á frelsi" að ýta við
samvisku heimsins með gerð
myndarinnar er hún lítið meira en
hálfkæft óp. Stendur sýnu betur
sem okkar góða og gamalkunna
spennumynd. -sv.
Skelfirinn ★ ★
Hér er að finna sitt lítið af hverju
fyrir unnendur lögreglumynda og
geimvísindahrollvekja þótt það
hljómi skrítilega. En Skelfirinn er
líka skrítin mynd og ágæt afþrey-
ing. -ai.