Morgunblaðið - 03.06.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 03.06.1988, Síða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3, JÚNÍ 1988 Morgunblaðið/Sverrir Ásdís Eva Hannesdóttir umsjónarmaður Barnabreks og Eggert Gunn- arsson dagskrárgerðarmaóur við klippitœkin. Morgunblaðið/Bjarni Helga Steffensen umsjónarmaður Stundarinnar f góðum hópi. Með henni á myndinni eru Úlfurinn, Geitapabbi, Agnarögn, Steini Steinn, skelin Kolfinna úr leikritinu í fjörunni og aðeins sóst f Kaktusinn geðilla úr þættinum um Mexikó. Sjónvarpið: Allt erlent barnaefni verði með íslensku tali Að undanfömu hefur mikið verið rætt manna á meðal að fslenskrí tungu stafi hætta af öllu því erienda myndefni sem iands- mönnum er bóðið upp á. í þvf sambandi eru þá sérstaklega böm og unglingar höfð f huga. Sjónvarpið býður börnunum upp á eríent og innlend myndefni aila daga vikunnar. Af barnaefninu bera þó hæst þrfr þættir: Stundin okkar, sem veríð hefur á dagskrá frá því Sjónvarpið hóf útsending- ar, Töfragiugginn, þar sem teikni- myndir eru aðal uppistaðan og nýr þáttur, Barnabrek, þar sem er blandað saman nýju og gömlu efni. Dagskrárfulltrúi barnaefnis Sjónvarpsins er Sigríður Ragna Sigurðardóttir. Sigríður Ragna hef- ur verið dagskrárfulltrúi í þrjú ár og líkar mjög vel. „í þessu starfi er aldrei dauður punktur, það þarf að gefa sér góöan tíma til að skoða þær myndir sem berast, ræða við umsjónarmenn, raða barnaefninu niður, ráða nýtt fólk og svo þarf að ákveða dagskrána nokkra mán- uði fram í tímann, þó oft komi eitt- ► hvað óvænt upp á og þarf þá að breyta og hliðra til. Það er okkur mikið kappsmál að hafa allt erlent barnaefni með íslensku tali en það getur oft verið erfiðleikum bundið því til aö hægt sé að lesa inn á myndirnar þarf að fylgja sérstakt hljóðspor með umhverfishljóðum og engu tali. Þetta fylgir þó ekki öllum erlendum myndum þannig að það þarf að lesa ofan í erlenda taiið, sem er mjög slæmt. En síðustu ár hefur þetta batnað til mikilla muna því nú leggja framleiðendur áherslu á að möguleiki sé að tala inn á mynd- imar.“ Aðspurð hvað réði vali erlendra mynda svaraði Sigríður Ragna: „Fyrst og fremst verður efni mynd- anna að vera skemmtilegt. Ég reyni eftir bestu getu að velja þær myndir sem ekki innihalda ofbeldi, eitthvað sem vekur ekki ótta hjá börnunum heldur myndir sem hafa góðan boðskap. Starfsfólk inn- kaupa- og markaðsdeildar Sjón- varpsins fer á sýningar erlendis og kaupir þar myndir sem ég síðan fer yfir og vel. Sjónvarpið hefur samstarf við Norðurlöndin um að skiptast á myndum og tvisvar á ári fer ég til Norðurlandanna og vel myndefni. Annars koma mynd- irnar aðallega frá Evrópu, Kanada, Bandaríkjunum, einstaka frá Sov- étríkjunum og Japan. í flestum tilfellum leitum við til leikara til að lesa inn á myndirnar jrá öðrum séu gefin tækifæri. Ef þarf tvær eða fleiri raddir í sama þáttinn tel ég það algera nauðsyn að fá leikara, þar sem þeir kunna Morgunblafiið/Sverrir Þór Elís Pálsson dagskrárgerðarmaður Stundarinnar okkar á milli tveggja fsjaka sem notaðir voru f vetur. Töfraglugginn Töfraglugginn er á dagskrá Sjónvarpsins á sunnudögum. Þá spjallar Bella við börnin og kynnir teiknimyndir. Edda Björgvinsdóttir leikur Bellu, stúlku sem telur sig mikiö fyrirmyndarbarn. Umsjónar- maður Töfragluggans er Árný Jó- hannesdóttir og safnar hún og setur saman teiknimyndirnar sem Sigríður Ragna hefur valið. Einnig semur hún kynningarnar og sér um að búið sé að lesa inn á allar myndirnar. Árný sagði að um 150 myndir bærust til Töfragluggans í hverri viku, en því miður væri ein- ungis hægt að sýna um 15 mynd- ir af öllum þeim fjölda. sýndar ýmsar norrænar barna- myndir. Sjónvarpið er nú að láta vinna íslenska barnamynd sem er hluti af samnorrænum barnamynda- flokki sem nefnist Góð saga fyrir litlu börnin. Það er kvikmyndafyrir- tækið Hrif sem vinnur að gerð myndarinnar en kvikmyndatöku stjórnar Ari Kristinsson. Myndin heitir Pappírs-Pési og er gerð eftir samnefndri sögu Herdísar Egils- dóttur. ( skiptum fyrir Pappírs- Pésa fær síðan Sjónvarpið myndir frá hinum Norðurlöndunum til sýn- ingar. Þegar talið barst að því hversu margir starfa við barnaefnið sagði Sigríður Ragna að það væri æði misjafnt. „Otrúlegur fjöldi fólks stendur á bak við einn þátt og eflaust gera sjónvarpsáhorfendur sér ekki grein fyrir hve mikil vinna liggur að baki hvers þáttar. Fast starfsfólk við hvern þátt er umsjón- armaður, dagskrárgerðarmaður og skrifta. Og svo auðvitað tækni- mennirnir, kvikmyndatökumenn og klipparar." Stundin okkar Af innlendu barnaefni ber fyrst að nefna Stundina okkar. Umsjón- armaöur er Helga Steffensen, um dagskrárgerð sér Þór Elís Pálsson íslenskt efni fyrir börnin. Það er hægt að koma svo mörgu á fram- færi í gegnum brúðurnar, bæði fræðslu,- og skemmtiefni. Brúðurn- ar höfða mjög sterkt til barnanna og þau fara að þekkja persónurnar og vita við hverju má búast af þeim. Og þó þetta sé tími barn- anna hafa hinir fullorðnu ekki síöur gaman af brúðum. Brúðuleikhús hentar ákaflega vel fyrir sjónvarp og er mikið notað við gerð barnaþátta út um allan heim og næsta vetur munu brúð- urnar skipa veglegan sess í Stund- inni okkar," sagði Helga. Þór Elís Pálsson sagðist að- spurður skipuleggja alla tækni- vinnu, stjórna upptöku og sjá um að allt gangi sem best upp. „Auk þess sé ég um f samráði við myndatökumann hvernig best er að raða hlutunum upp. Loks klippi ég efnið til. Það er mikil vinna sem er því samfara að halda úti viku- þætti en jafnframt mjög lífleg og skemmtileg. Við fáum einn dag í upptökusal og verðum þá að vera tilbúin með allt efni þannig aö dagurinn nýtist sem best og er þá unnið allan daginn, frá hálftíu til um klukkan sjö.“ Honum til aðstoðar er skrifta og hefur Marteinn St. Þórsson haft þann starfa með höndum, en hann er að fara í kvikmyndatöku- nám til Kanada. Barnabrek Sjónvarpið hefur nýlega hafið sýningu á nýjum innlendum þætti er nefnist Barnabrek og er sýndur á laugardögum. Þetta er þáttur með blönduðu efni fyrir börn og unglinga, allt frá smábörnum til fimmtán ára. í þáttunum er sýnt nýtt og gamalt efni og er lögð mikil áhersla á að taka fyrir það sem efst er á baugi hverju sinni. Umsjónarmaður Barnabreka er Eva Ásdís Hannesdóttir og er henni til aðstoðar ungur maður, Kristján Eldjárn Þórarinsson. Dag- skrárgerð og upptökustjórn ann- ast Eggert Gunnarsson. „Starf dagskrárgeröarmanns og upp- tökustjóra er fjölbreytt en í stórum dráttum er það einskonar verk- stjórn," sagði Eggert. „Ég byrja á að undirbúa tökudaga, ræða við umsjónarmann og sjá um að efnið sé tilbúið. Það er mjög skemmti- legt og áhugavert að vinna með efni fyrir börn.“ Morgunblaðið/Sverrir Sigríður Ragna Sigurðardóttir dagskrárfulltrúi inn- lends og eríends barnaefnis á skrifstofu sinni. að beita og breyta röddinni. Sumar myndirnar þarfnast þó ekki leik- lesturs og reynum við þá að gefa sem flestum tækifæri til að lesa inn á," sagði Sigríður Ragna. Sjónvarpið býður börnunum upp á fjölbreytt úrval af erlendum barnamyndum, bæði teiknimyndir og leiknar. Auk þess eru þrír inn- lendir þættir, Stundin okkar, Barnabrek og Töfraglugginn. Ef nefna á nokkrar af þeim myndum sem sýndar verða í sumar þá tek- Morgunblaöið/Sverrir Árný Jóhannesdóttir umsjónarmaður Töfra- gluggans tekur hér upp nokkrar af þeim fjölda mynda sem berast vikulega. og leikmyndina hannar Anna Þ. Guðjónsdóttir. Stundin okkar er ekki á dagskrá á sumrin en það er ekki þar með sagt að umsjónar- menn séu í fríi, því yfir sumar- tímann er unnin mikil undirbún- ingsvinna fyrir næsta vetur. Heíga Steffensen er löngu kunn fyrir starf sitt með brúður og þekkir börnin og þarfir þeirra. Hún hefur unnið við brúðuleikhús síðan 1972, bæði í Leikbrúðulandi og Brúðubílnum. „Það er mjög mikilvægt að hafa ur Litla prinsessan við af Galdra- karlinum í Oz, Bangsi bestaskinn verður áfram sýndur á þriðjudög- um fram í byrjun júlí, en þá verða sýndar teiknimyndir með Villa spætu. Þegar Anna og félagar hverfa af skjánum í júní veröur sýndur teiknimyndafiokkur sem gerður er eftir sögunni um Heiöu. Sindbað sæfari heldur áfram í sumar og í vetur hefur göngu sína nýr teiknimyndaflokkur um tró- strákinn Gosa. Auk þessa verða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.