Morgunblaðið - 19.07.1988, Síða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
ÞREÐJUDAGUR 19. JULI 1988
HANDKNATTLEIKUR / 19. ALÞJOÐLEGA MOTIÐ I A-ÞYSKALANDI
Ótmlega spennandi
Islenska landsliðið tryggði sér 3. sæti með jafntefli gegn V-Þjóðverjum í ótrúlega spennandi leik
ISLENDINGAR tryggðu sér
þriðja sætið, á alþjóðlega a-
þýska handknattleiksmótinu,
með jafntefli gegn V-Þjóðverj-
um í síðasta leiknum, 19:19.
Leikurinn var ótrúlega spenn-
andi og vel leikinn og greinilegt
að íslenska liðið leikur betur
með hverjum leiknum sem
líður.
Leikurinn var jafn framan af og
liðin skiptust á forystunni, en
í leikhléi var staðan jöfn, 10:10.
Fyrri hálfleikur var mjög vel leik-
■■■■■i inn, þrátt fyrir að
LogiB. a-þýsku dómaramir
Eiösson hafi verið með ein-
skrifar dæmum slakir. Þeir
höfðu lítil tök á
leiknum, sendu menn af leikvelli í
tíma og ótíma og dæmdu flest vafa-
atriði V-Þjóðverjum í vil.
Þríggja marka forskot
íslendingar byijuðu vel í síðari hálf-
leik og skoruðu tvö fyrstu mörkin.
Þjóðverjar jöfnuðu, en þrjú mörk
frá Islendingum breyttu stöðunni í
ípfémR
FOLK
■ ALFREÐ Gíslason og Jochen
Fraatz léku saman hjá Essen í
vetur og eru ágætir vinir. Alfreð
var hinsvegar staðráðinn í að láta
Fraatz ekki skora og þegar Fraatz
kom inná fór Alfreð fram á völlinn
og elti fyrrum félaga sinn alveg
fram að miðju.
■ KARL Þráinsson lék 75.
landsleik sinn er íslendingar gerðu
jafntefli gegn V-Þjóðveijum. Guð-
mundur Guðmundssson lék sinn
175. landsleik gegn Kúbu og Geir
Sveinsson og Atli Hilmarsson
náðu báðir 125 leikjum. Geir gegn
A-Þýskalandi og Atli gegn Sov-
étríkjunum.
■ ÞORBERGUR Aðalsteinsson
lék ekki með íslenska liðinu í ferð-
inni, en hann var 17. maður í hópn-
um. Hann gekk því undir ýmsum
nöfnum s.s. „túristinn" og „blaða-
maðurinn" því hann sat meðal
blaðamanna á ieikjum og skráði
mistök íslensku leikmannanna.
I A-ÞÝSKIR áhorfendur
studdu vel við bakið á íslendingum
í leikjum þess. Þó voru tvær undan-
tekningar. Að sjálfsögðu þegar ís-
lendingar léku gegn heimamönn-
um og eins þegar íslendingar
mættu V-Þjóðveijum. Þá voru nær
allir á bandi V-Þjóðveija.
■ FLESTIR íslensku leikmenn-
irnir eiga að baki 100-200 lands-
leiki og hafa leikið tæplega 50
landsleiki á þessu ári. Þess má geta
að Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, sem lék tíu ár með
landsliðinu náði aðeins 54 leikjum.
15:12. Þá urðu íslendingar fyrir
miklu áfalli er Jakob Sigurðsson
fékk rautt spjald fyrir þriðju brott-
vísun. Hann hafði átti frábæran
leik og skorað sex af mörkum ís-
lendinga.
V-Þjóðverjar náðu að jafna og kom-
ust reyndar yfir 17:16. íslendingar
breyttu stöðunni sér í vil að nýju,
en Þjóðverjar jöfnuðu aftur, 18:18.
Kristján Arason skoraði fyrir ísland
þegar rúmar sex mínútur voru til
leiksloka, staðan þá 19:18, en Mic-
hael Lehnerts jafnaði fyrir V-Þjóð-
verja þegar fimm mínútur voru til
leiksloka.
íslendingar fengu boltann þegar um
mínúta var eftir og áttu því mögu-
leika á að tryggja sér sigur. En
þegar tíu sekúndur voru til leiksloka
var dæmd leiktöf og V-Þjóðveijar
fengu knöttinn. íslenska vörnin tók
hinsvegar strax vel á móti Þjóðvetj-
um og síðasta sókn þeirra rann út
í sandinn.
Góður lelkur
Þessi leikur var mun betri en fyrri
viðureign þjóðanna, í Hamborg fyr-
ir nokkrum dögum. Þrátt fyrir að
V-Þjóðvetjar séu B-þjóð í hand-
knattleik þá eiga þeir gífurlega
sterkt landslið sem er tvímælalaust
í fremstu röð í heiminum.
A-þýskir áhorfendur voru nær allir
á bandi V-Þjóðveija og liðið fekk
jafnvel betri viðtökur en lið heima-
manna. Þá voru dómararnir V-
Þjóðveijum hjálplegir. Dæmdu þeim
flest vafaatriði, en þess má geta
að íslendingar voru utan vallar í
samtals 18 mínútur sem er ótrúlega
mikið.
Islenska liðið lék vel í þessum leik.
Jakob Sigurðsson átti stórkostlegan
leik, jafnt í vörn sem sókn og þetta
var líklega einn besti landsleikur
hans frá upphafi. Það var því slæmt
að hann skyldi fara út af á svo
vafasömum forsendum. Einar Þor-
varðarson varði mjög vel í markinu
og Alfreð Gíslason átti einnig góðan
leik.
Þrátt fyrir að íslenska liðið hafi átt
góða möguleika á sigri í þessum
leik er jafntefli úrslit sem hægt er
að sætta sig við. íslenska liðið lék
vel og þessi úrslit færðu því þriðja
sætið á mótinu, en það er besti
árangur íslands frá upphafi á þessu
sterka móti.
Island-V-Þýskaland
19:19 10:10
íþróttahöllin í Dessau, 19. alþjóðlega
handknattleiksmótið í A-Þýskalandi,
laugardaginn 16. júlí 1988.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:3, 5:7,
8:7, 8:10, 10:10, 12:10, 12:12, 15:12,
15:15, 16:15, 16:17, 18:17, 18:18,
19:18, 19:19.
Mörk íslands: Sigurður Sveinsson 7/6,
Jakob Sigurðsson 6, Alfreð Gíslason
3, Sigurður Gunnarsson 1, Kristján
Arason 1 og Guðmundur Guðmundsson
1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 18/2.
Rautt spjald: Jakob Sigurðsson 43.
mín.
Utan vallar: 18 mínútur.
Mörk V-Þjóðvetja: Christian Fitzek
4, Jochen Fraatz 4/2, Andreas Dör-
höfer 3, Michael Lehnertz 2, Peter
Quarti 2/1, Stephan Schöne 1, Markus
Hönnige 1, Michael Klemm 1 og Ulrich
Roth 1.
Varin skot: Stefan Hecker 8/1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Áhorfendur: 3200.
Dómarar: Peter Rauchfuss og Rudolf
Buchda frá A-Þýskalandi — mjög slak-
ir og bitnaði það á íslendingum.
„Vonbrigði að þurfa
að fara af velli“
sagði Jakob Sigurðsson besti maður íslenska liðsins gegn V-Þjóóverjum
JAKOB Sigurðsson átti mjög
góðan leik gegn V-Þjóverjum,
en varð að fara útaf um miðj-
an síðari hálfleik með rautt
spjald eftir þrjár brottvísanir.
Þá hafði hann þegar skorað
sex mörk og leikið mjög vel i
vörninni.
Það voru hrikaleg vonbrigði
að þurfa að fara útaf þegar
allt gekk svo vel,“ sagði Jakob
eftir leikinn. „Mér fannst þetta
ekki réttur dómur og greinilegt
að dómararnir voru einfaldiega
að reka menn útaf til að reyna
að ná tökum á leiknum.
Mótið í heild fannst mér ágætt.
Ég var ánægður með leikinn gegn
Austur-Þjóðveijum og meirihluta
leiksins gegn Sovétmönnum, en
ekki ánægður með leikina gegn
Vestur-Þjóðveijum.
En mótið var fyrst og fremst
hugsað til að finna galla og þjón-
aði tilgangi sínum. Það er ýmis-
Iegt sem þarf að laga og við verð-
um að því næstu vikur," sagði
Jakob.
Markahæstir:
Julian Duranona, Kúbu..............36/9
Jochen Fraatz, V-Þýskalandi.........36/12
Riidiger Borchard, A-Þýskalandi.30/14
Futian An, Kína.................29/6
Harald Szygula, Póllandi............27/8
Sigurður Sveinsson, íslandi........27/19
Jörg Sonnefeld, A-Þýskalandi b.......23/6
Jiirgen Querengásser, A-Þýskalandi b.21/4
Wjatscheslaw Atawin, Sovétríkjunum.21/11
Frank Wahl, A-Þýskaíandi........20/6
Alexander Tutschkin, Sovétríkjunum.19/7
Waleri Gopin, Sovétríkjunum............18
Alfreð Gíslason, íslandi.......;18/3
Morgunblaöiö/Logi B. Eiösson
Geir Sveinsson og Karl Þráinsson.
Texti og myndir:
Logi B. Eiðsson
\
Jakob SigurAsson átti mjög góðan leik geg
Sterkasta lið h
Sovétmenn eru með ótrúlegt lið - líklegi
komið hefurfram í árarac
ÞAÐ fór eins og flestir spáðu.
Sovétmenn sigruðu á alþjóð-
lega mótinu í A-Þýskalandi.
Þeir sigruðu A-Þjóðverja í frá-
bærum úrslitaleik, 16:15. Wie-
land Schmidt, markvörður A-
Þjóðverja átti frábæran leik,
varði 23 skot, en það var ekki
nóg. Sovéska liðið var nokkr-
um gæðaflokkum ofar en önn-
ur lið á mótinu. En spurningin
er hvort þeir verði jafn sterkir
á Ólympíuleikunum í Seoul í
haust.
u
rslitaleikurinn var mjög jafn,
en í leikhléi var staðan 8:7,
A-Þjóðveijum í vil. Það gátu þeir
þakkað frábærri markvörslu
Schmidt sem bókstaflega lokaði
markinu.
A-Þjóðvetjar byijuðu vel í síðari
hálfleik og náðu fjögurra marka
forskoti, 12:8. Þá tóku Sovétmenn
við sér og skoruðu átta mörk gegn
tveimur. Staðan þá 16:14 fyrir so-
A-Þýskaland
- Sovétríkin
15:16 8:7
íþróttahöllin í Dessau, 19. alþjóðlega handknatt-
leiksmótið í A-Þýskalandi, úrslitaleikur, laugar-
daginn 16. júlí 1988.
Gangur leiksins: 3:4, 6:4, 6:6, 8:7, 12:8, 13:12,
14:16, 15:16.
Mörk A-Þjóðveija: Rudiger Borchardt 6/3, Step-
han Hauck 4, Frank Wahl 2, Holger Winselmann
1, Andreas Neitzel 1 og Matthias Hahn 1.
Varin skot: Wieland Schmidt 22/3.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Sovétmanna: Alexander Rymanow 4, Alex-
ander Tutschkin 4/3, Wjatscheslaw Atawin 3/3,
Juri Tschtsow 2, Waleri Gopin 1, Andre Tju-
mentsew 1 og Konstantin Scharobarow 1.
Varin skot: Alexander Schipenko 11 skot.
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: 3500.
Dómarar: Peter Haak og Henry Koppe frá Holl-
andi.