Morgunblaðið - 27.08.1988, Qupperneq 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988
Landslagið
er
Ragna Hermannsdóttir opnar
málverkasýningu í Austursal
Kjarvalsstaóa í dag, laugardaginn
27. ájfúst. A sýningunni eru 54
olíumálverk, máluð á pappír, kar-
ton og striga, auk einnar stórrar
dúkristu. Verkin eru öll unnin á
þessu ári en nú er rétt ár Iiðið
siðan Ragna sýndi grafíkmyndir
í Nýlistasafninu við Vatnsstig.
Ragna Hermannsdóttir
stundaði nám við
Myndlista- og handí-
ðaskólann 1980-1982,
fór síðan tii eins árs
námsdvalar til Bandaríkjanna, kom
svo aftur heim og settist á skólabekk
f MHI á nýjan Ieik, en stundaði síðan
framhaldsnám við Ríkisakademíuna
í Amsterdam í Hollandi 1984-1987.
Síðastliðið ár hefur Ragna starfað
hér heima og afraksturinn gefur að
líta í Austursal Kjarvalsstaða næstu
tvær vikumar. Eftir að hafa rennt
augum yfir myndimar á sýningu
Rögnu spyr ég hana hvort hún hafi
snúið sér að landslagsmálun eftir
heimkomuna frá Hollandi. Hún jánk-
ar því. „Þetta er allt meira og minna
málað undir áhrifum frá landslagi
en ég gerðí mér ekki grein fyrir því
að ég væri að mála landslag fyrr
en myndimar vora tilbúnar. Það er
ekki hægt að komast hjá slikum
áhrifúm hér heíma á íslandi — lands-
lagið er svo sterkt.“ Aðspurð um
ákveðnar fyrirmyndir úr íslenskri
náttúra hristir hún höfuðið. „Nei,
ég Uet ímyndunaraflið ráða ferðinnL
Það má líka segja að þetta séu alls
konar tilraunir með liti og litasam-
setningar. Ég hef Iíka hugsað og
undirbúið myndimar á þessa sýn-
ingu sem eina heild — málað í salinn
eins og sagt er,“ segir Ragna.
Ragna býður þó gestum sýningar-
innar að skoða fleira en litagieðina
svo
sterkt
Segir Ragna
Hermannsdóttir
myndlistarkona
Morgunblaðið/ÍCGA
Ragna Hermannsdóttir myndlist-
armaður.
í landslagi ímyndunaraflsins því á
sýningunni bregður fyrir figúra-
tívum myndum — stemmningum
væri kannski rétt að segja. „Þetta
era rómantískar myndir, vetramæt-
ur í snjó og tunglskini," segir Ragna
um tvær myndraðir sem blaðamanni
verður starsýnt á. Nokkrar mynd-
anna snúast um hringi og í sumum
þeirra bregður fyrir einkennilegum
skepnum. „Nei, ég veit ekki hvaða
skepnur þetta era,“ segir Ragna
„Mér sýnast þetta vera fuglar eða
hestar. Ég hef mjög gaman af því
þegar aðrir horfa á myndimar minar
og sjá eitthvað allt annað en ég sé
sfálf.“
Ragna hefur orð á því að þessar
myndir séu mjög ólíkar þeim sem
hún sýndi í Nýlistasafiiinu fyrir-
ári.„Ég held að þetta sé umhverfis-
breytmgin. Maður málar öðruvisi á
íslandi en í Hollandi.“ Ferill Rögnu
Hermannsdóttur myndlistarmanns
er ólíkur þvi sem margur á að venj-
ast. Ragna venti kvæði sínu í kross
á þeim punkti í lífi sfnu þegar aðrir
hafa fellt allt í fastar skorður. Hún
tók sig til eftir áralangt starf sem
Ijósmyndari og settist á skólabekk í
myndlistinni — fullorðin konan —
og hefur hvergi slegið slöku við
síðan. Hún hefur tekið þátt í fimm
samsýningum hér heima og erlendis
og sýningin núna á Kjarvalsstöðum
er sjöunda einkasýningin síðan
1985. „Ég fékk þessa myndlistar-
dellu uppúr ljósmynduninni og sé
ekki eftir þvf. Ég hef getað sinnt
myndlistinni óskipt síðan en það er
alltaf óvissa um framhaldið. Ég veit
ekki hvað verður. Mér finnst mjög
gott að vera komin heim og vinna
hér aftur,“ segir Ragna. Aðspurð
hvort þessi miklu lunskipti f Ifflnu
hafi verið ómaksins virði segir
Ragna af sánnfæringu: „Já, svo
sannarlega."
H. Sig.
4
Amaldur Arnarson gitarleikari.
Amaldur Arnarson gítarleikari er einn þeirratón-
Iistarmanna íslenskra sem lagt hafa Iand undir
fót og stundað f ramhaldsnám erlendis. Slíkt er
tæpast í frásögur færandi þar sem enginn telst
fullnuma tónlistarmaður án framhaldsnáms á há-
skólastigi í viðurkenndum konservatoríum eða
akademium úti í heimi. En Amaldur hefur bætt
um betur og fyrir fjórum árum sló hann sér niður
í borginni Barcelona á Spáni og tekur þar þátt í rekstri Luthier-
tónlistarskólans ásamt sambýliskonu sinni, Aliciu Alcalay, en hún
er stofnandi og stjórnandi skólans. Amaldur og Alicia hafa dvalið
hér á landi I sumar ogþvi var kjörið tækifæri að forvitnast um
skólann þeirra, tónlistarkennslu á Spáni og gera jafnvei einhvem
samanburð á tónlistaraámi á íslandi ogá Spáni.
Eg spurði Amald fyrst hvemig
þetta hefði allt borið við, skólarekst-
ur og kennsla í Barcelona. „Ég lank
mínu gítamámi frá Royal Northem
College of Music í Manchester á
Englandi vorið 1982. Veturinn á
eftir var ég hér heima og starfaði
við gítarkennsiu. Veturinn 1983-
1984 fór ég til Alicante á Spáni og
sótti þar einkatíma hjá gítarleikar-
anum José Tomás. Sfðan 1984 hef
ég starfað í Barcelona. Aðdragand-
inn að ferð minni þangað var dálít-
ið tilviljanakenndur, ég fór með
kennára mínum þangað en hann
hafði verið fenginn að Luthier-
tónlistarskólanum til þess að halda
stutt námskeið. Ég fylgdi hornun
eiginlega mestan part af forvitni,
mig langaði til að skoða Barcelonu-
borg og dvaldi þar í nokkra daga.
Sfðan má segja að málin hafi þró-
ast á þann veg sem þeim er nú
háttað," segir Amaldur og brosir
Arnalds,
Shakespeare,
Tunström,
Tsjekov
Hallmar Sigurðsson,
leikhússtjóri LR
segir frá verkefnum leikársins
Á haustdögum hefst starfsár leik-
húsanna á ný, eftir sumarfrí
starfsfólks. Leikfélag Reykjavík-
ur mnn hefja starfsemi sína hinn
1. september og af því tflefni kom
biaðamaður að málí við Hallmar
Signrðsson, leikhússtjóra og bað
hann að segja frá verkefnum leik-
ársins framnndan.
„Fyrsta framsýning vetrarins
verður á nýju verld eftir Ragnar
Arnalds sem hann nefiiir Sveitasin-
fóniu. Þetta er kímin frásögn aí
sveitalífí fyrir tveim til þrem áratug-
um, með alvarlegum undirtón þó.
Verkið er ekki sögulegt, en §allar
um atburði og persónur sem við
könnumst við úr raunveraleikanum,
án þess að eiga sér beinar fyrirmynd-
ir. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son, leikmynd gerir Siguijón Jó-
hannsson og tónlistin er eftir Atla
Heimi Sveinason. Með viðamikil
hlutverk fara Valdimar Öm Flygenr-
ing, Edda Heiðrún Bachmann,
Margrét Akadóttir og Gunnar Ey-
jólfsson. Frumsýning verður um 20.
september".
„Um mánaðamótin september
október verður svo uppfærsla Kjart-
ans Ragnarssonar á Hamlet tekin