Morgunblaðið - 27.08.1988, Side 7

Morgunblaðið - 27.08.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988 B 7 Morgunblaðið/Sverrir örlítið í kampinn. Hann bætir því við að þessi kynnisför til Barcelona hafi breytt fyrri heimferðaráætlun- um til íslands þetta vor þannig að í stað þess að fara aftur heim hafi hann flutt til Barcelona. „Síðan hef ég búið þar og starfað," segir hann. Ég bið Amald að segja frá Luth- ier-tónlistarskólanum, hversu stór hann sé og hvernig kennslu sé hátt- að. „Luthier-tónlistarskólinn var stofnaður árið 1979 og í upphafi voru nemendur og kennarar fáir. Skólinn hefur síðan stækkað jafnt og þétt og síðastliðinn vetur voru nemendur um 400 talsins og kenn- arar um 20. Luthier-skólinn er al- mennur tónlistarskóli og um leið stærsti einkatónlistarskólinn í Barc- elona. í borginni eru tveir ríkisskól- ar sem eru stærri en síðan er þama fjöldinn allur af einkaskólum. Tón- listarkennsiu er háttað á þann veg á Spáni að í hverri borg eru einn til tveir skólar sem njóta stuðnings hins opinbera en síðan em einka- Islendingur við tónlistarkennslu skólar sem njóta einskis af hálfu hins opinbera. Margir þessara einkaskóla em mjög sérhæfðir, sumir þeirra em kannski bara með kennslu á strengjahljóðfæri, aðrir aðeins með píanókennslu svo dæmi sé tekið. Í þessu tilliti er Luthier- tónlistarskólinn stærsti einkaskól- inn í Barcelona því við höfum reynt að bjóða kennslu í sem flestum greinum hljóðfæraleiks. Við prófuð- um t.d. að vera með jassdeild, en það er sérhæfður skóli í jass í borg- inni, svo við ákváðum að sinna því ekki frekar. Við höfum einnig boðið takmarkaða kennslu í leik á gömul hljóðfæri, en fyrst og fremst er Luthier-skólinn almennur tónlistar- skóli þar sem hægt er að stunda nám í hljóðfæraleik á strengi, píanó, blásturshljóðfæri og ásláttarhljóð- færi,“ segir Arnaldur. Amaldur bætir því við að eftir því sem skólanum hafi vaxið fiskur um hrygg hafi orðstír hans aukist og kröfur aukist bæði innandyra og utan. „Til að byrja með vom teknir þeir nemendur sem buðust, einfaldlega til þess að reksturinn gengi. Núna emm við farin að velja svolítið meira úr og það á sérstak- lega við um yngstu bömin. Við er- um með stóra forkennsludeild þar sem em börn allt niður í þriggja ára gömul. Algengasti aldurinn er þó 5-10 ára. Við reynum að velja svolítið inn í þessa deild því þannig fáum við betri nemendur útúr henni þegar kemur að því að þeir snúa sér að einhveiju ákveðnu hljóðfæri af alvöru. Einkakennslan ræðst allt- af dálítið af því kennaraliði sem við Arnaldur Arnarson gítarleikari í viðtali höfum á að skipa hveiju sinni; það kemur t.d. fyrir að við höfum feng- ið nemendur til okkar sem hafa lokið námi í konservatoríi borgar- innar en telja sig geta lært meira hjá þeim kennumm sem við höfum á að skipa. En próf frá okkur em aðeins viðurkennd á lfægstu stig- um. Þeir sem koma til okkar í fram- haldsnám verða að taka próf utan- skóla í viðurkenndu konservatoríi til þess að fá nám sitt viðurkennt. Þannig er kerfið þarna m.a. frá- bmg-ðið því sem hér er.“ Eg bið Arnald að gera saman- burð á þvi sem er líkt og ólíkt með uppbyggingu tónlistarkennslu hér á Íslandi og á Spáni. Hann er fús til þess, en tekur þó fram að hann sé ekki kunnugur fyrirkomulaginu hérlendis í smáatriðum en, „. . . þó em ákveðin gmndvallar- atriði sem ég veit þó um og em afskaplega ólík,“ segir hann. „Tón- listarkennsla í almenna skólakerf- inu er mjög takmörkuð á Spáni og það er í sjálfu sér í höndum stjóm- enda hvers skóla fyrir sig að ákvarða slíkt. Það verður einnig að hafa það í huga að nær allt skóla- kerfið á Spáni er einkarekið og spænskum bömum er engan veginn tryggð skólaganga af hálfu hins opinbera. Hvað varðar tónlistar- skólana sjálfa þá er um ákveðinn gmndvallarmun að ræða á milli þeirra íslensku og spænsku. Senni- lega njótum við á íslandi nokkurrar sérstöðu á Vesturlöndum í þessu tilliti. Hér em allir tónlistarskólar á opinbemm fjárlögum, ríki og sveitarfélög skipta með sér launa- kostnaði. Hér hafa tónlistarskólar getað nýtt skólagjöld í eigin þágu til t.d. hljóðfærakaupa og endumýj- unar, því laun hafa verið greidd af opinbemm aðilum. Ég held að þetta sé einstakt og til mikillar fyrir- myndar. Nú skilst mér að yfirvöld séu að reyna að breyta þessu fyrir- komulagi. Það væri stórt skref aft- urábak ef hugmyndir um að varpa þessu alfarið yfir á sveitarfélögin yrðu að vemleika. Mér sýnist þá sjálfgefið að tónlistarskólar á smærri stöðum út um landið leggi upp laupana. Auðvitað er þetta dæmi um menningarpólitík stjórn- valda, að draga úr tónlistarmennt- un. Á Spáni reyna bæjarfélög að styðja einn eða tvo tónlistarskóla á hveijum stað, en þessir skólar em víðast hvar yfirfullir, aðstaða slæm og allt skipulag í molum. í Barcel- ona em tveir slíkir skólar og þeir fullnægja engan veginn eftirspurn. Á þessari umframeftirspurn þrífast einkaskólamir," segir Árnaldur. „Það er auðvitað ekki hægt að gera beinan samanburð á mennta- kerfi landa á norðurslóðum og lönd- um Suður-Evrópu. Þar hafa Norð- urlönd auðvitað vinninginn, en um Spán má segja að á síðustu ámm séu að verða hægfara breytingar í átt tii okkar og hið opinbera að vakna til meðvitundar um skyldur sínar í þessum efnum. Ég hef t.d. bent á það að einkaskóli á borð við Luthier-skólann sé að vinna verk hins opinbera. Skilningurinn er að breytast en það gerist afskaplega hægt. Á móti þessum yfirburðum Norðurlanda má segja að lönd Suð- ur-Evrópu hafi vinninginn þegar litið er til tónlistarhefðarinnar. Hér á Islandi er t.d. tæpast til nein marktæk tónlistarhefð. Á Spáni er hún margra alda gömul,“ segir Arnaldur. Ég spyr Amald og Aliciu að lok- um hvort það sé ábatasamt að reka einkatónlistarskóla á Spáni.„Nei, þetta er ekki auðveldur rekstur við þær aðstæður sem ríkja á Spáni. Það em til skólar sem setja upp geysihá skólagjöld og sækjast eftir úrvalsnemendum. Slíkt verður allt- af dálítið hjákátlegt því oft verður þetta frekar spuming um fjárráð foreldranna en hæfileika nemand- ans. Ef ég á að vera alveg hreinskil- inn þá em lög og reglugerðir þann- ig á Spáni að ef þeim væri fylgt út í ystu æsar þá væri rekstur einka- tónlistarskóla gjörsamlega ófær. Á hinn bóginn er þessi staðreynd óop- inberlega viðurkennd og flestir ef ekki allir einkaskólar fara að meira eða minna leyti í kringum reglu- gerðir. Þetta gerir hins vegar það að verkum að reksturinn fær á sig dálítinn keim ævintýramennsku og framtíðin verður svolítið óljós við þessar aðstæður." Arnaldi er greini- lega óljúft að fara nánar út í þessa sálma af skiljanlegum ástæðum svo ég tek hann upp á síðasta orðinu og spyr um framtíðaráform. „Þau snúa að Spáni enn um sinn og rekstri skólans. Ég held samt góðum tengslum við Island og vil helst hvergi annars staðar vera yfir sumarið. Besta fyrirkomulagið væri ef hægt væri að skipta árinu til helminga milli íslands og Spánar. Barcelona er afskaplega þéttbýl og hávaðasöm borg, þar búa um 3 milljónir manna á litlu stærra svæði en Reykjavík nær yfir og það er geysileg hvíld að koma hingað heim á sumrin,“ segir Arnaldur Amarson gítarleikari að lokum. H. Sig. Úr sýningu LR á Hamlet. Sigurður Karlsson í hlutverki Kládíusar kóngs og Guðrún Ásmundsdóttir sem Geirþrúður drottning. upp aftur. Þetta er óbreytt sýning frá því í vor og ég held mér sé óhætt að segja að hún hafí vakið verðskul- daða athygli. Engin Shakespeare- sýning hérlendis hefur haft jafn mikil áhrif í þá átt að bijóta niður fordóma fyrir verkum Shakespeares og sýna þau sem lifandi leikhús en ekki safngripi. Það er margt sem taka þarf afstöðu til þegar ákveðin er uppfærsla á verki eins og Ham- let. Á að setja það upp út frá þeirri tímasetningu sem Shakespeare setur á það, út frá leikhúsinu eins og það var á dögum Shakespeares, þar sem allt var sett upp á sama hátt eftir ákveðinni klisju, eða á að færa verk- ið til nútímans. Engin þessara leiða er rétt og óvéfengjanleg í sjálfri sér, það eina sem ég get fullyrt að sé rétt er að leikstjórinn taki eigin afstöðu til verksins og færi það upp út frá sinni upplifun og sannfær- ingu. Og hvað sem mönnum kann að finnast um uppfærslu Kjartans Ragnarssonar verður því ekki neitað að hún er heiðarleg og persónuleg túlkun Kjartans á Hamlet. Það er Grétar Reynisson sem gerir leik- mynd, tónlist er eftir Jóhann G. Jó- hannsson og Pétur Grétarsson og Hamlet sjálfan leikur Þröstur Leó Gunnarsson". „Milli jóla og nýárs kemur upp söngleikur af alvarlegra taginu, Maraþondansinn, sem byggður er á sömu skáldsögu og kvikmyndin They shoot horses, don’t they? Það er Karl Ágúst Ulfsson sem þýtt hefur verkið og verður hann jafnframt leikstjóri. Það er óvíst ennþá hvar sýningamar verða, en ljóst að þær verða utan Iðnós.“. „Strax eftir áramótin verður frumsýning á nýju verki eftir Göran Tunström, og ber það heitið Chang- Eng eftir aðalpersónunum tveimur, samvöxnu tvíburunum Chang og Eng sem fæddust í Siam árið 1811 og fluttust til Bandaríkjanna þar sem þeir höfðu sitt lifibrauð af því að sýna sig. Þeir efnuðust ágætlega og keyptu sér búgarð í Kaliforníu, þar sem þeir bjuggu ásamt konum sínum og tuttugu bömum. Konurn- ar, sem voru systur urðu ósáttar og flutti önnur þeirra af heimilinu með sín böm. Uppfrá því eyddu þeir Chang og Eng einni viku í einu á hvoru heimili. Þótt þeir væru óað- skiljanlegir bæði í eiginlegri og óeig- inlegri merkingu voru þeir um margt mjög ólíkir og það er hollt fyrir okk- ur á þessum tímum einstaklings- hyggju og sjálfsdýrkunar að skyggn- ast inn í líf þessara bræðra sem urðu að koma sér saman um alla hluti, annar kostur gafst ekki. Þórar- inn Eldjárn þýddi Chang-Eng, leik- stjóri verður Lárus Ýmir Óskarsson, leikmyndateiknari hefur ekki verið ráðinn, en samningar standa yfir við einn þekktasta leikmyndahönnuð Vestur-Þjóðveija. Tvíburarnir verða leiknir af þeim Þresti Leó Gunnars- syni og Sigurði Siguijónssyni. Þetta leikrit var fmmsýnt í Borgarleik- húsinu í Stokkhólmi um áramótin síðustu og vakti mikið umtal og hlaut feykigóða aðsókn". „í seinni hluta janúarmánaðar kemur á fjalirnar nýtt barnaleikrit, sem Olga Guðrún Amadóttir er að skrifa fyrir okkur í samvinnu við starfshóp um bamaleiksmiðju. Starfshópurinn var stofnaður sl. vet- ur og haft samstarf við Melaskóla. Yngstu bekkimir komu í leikhúsið til okkar og með þeim var unnnið skapandi starf í ákveðinn tíma. Þessi bamaleiksmiðja er tilraun af okkar hálfu til að komast í nánara sam- starf við börn, fá vitneskju um óskir þeirra og langanir varðandi leikhús. Það er mjög brýnt að ná sambandi við yngstu hópa áhorfenda og hefur sá þáttur verið skammarlega van- ræktur í íslensku leikhúsi. Það verð- ur Ásdís Skúladóttir sem leikstýrir bamaleikritinu og leikmynd gerir Hlín Gunnarsdóttir". „Síðasta verkefni leikársins verð- ur svo Þijár systur, eftir Tsjekov. Það verður frumsýnt fyrir páska og leikstjóri er Stefán Baldursson. Þá verða væntanlega byijaðar æfingar fyrir fyrsta starfsár Borgarleikhúss- ins, sem verður afhent næsta sum- ar. Enn er ekki ljóst hvenær sýning- ar geta hafist þar, en stefnt er að því að fmmsýning þar verði ekki síðar en á afmæli Leikfélagsins 11. janúar 1990. Iðnó er þegar orðið allt of lítið fyrir þær viðamiklu sýn- ingar sem þar eru settar upp. Kostn- aðurinn við hveija sýningu er það mikill að svona lítill salur stendur varla undir honum. En það er stefna okkar og metnaður að efla menning- arsköpun í landinu og hvað sem líður virðisaukaskatti og öðmm kostnað- arauka munum við kappkosta að halda miðaverði eins lágu og kostur er. Menningameysla er ekki aðeins sjálfsagður og eðlilegur hlutur, held- ur lífsnauðsyn og ekki einu sinni físksalan er veigameiri þáttur í sjálf- stæði þessarar þjóðar en hvernig til tekst á menningar- og listasviðinu". FB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.