Morgunblaðið - 17.09.1988, Blaðsíða 1
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988 BLAÐ
Leikhúsin virðast ætla að
halda sig við íslensk leikrit
sem fyrstu verkefni
leikársins. Þjóðleikhúsið
sýnir Marmara eftir
Guðmund Kamban í
næstu viku, en eins og
menn rekur eflaust minni
til voru tvær forsýningar á
verkinu á Listahátíð 1988
6
Jón Stefánsson er ungur
maður sem nýverið hefur
sent frá sér sína fyrstu
ljóðabók - Með byssuleyfi
á eilífðina. Blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi
stuttlega við hann af því
tilefni -6/7
Brúðuleikhúsfólk hér á
landi virðist jafnt og þétt
vera að byggja upp íslenska
hefð í þessari listgrein. Um
síðustu helgi frumsýndi
Sögusvuntan nýtt íslenskt
verk, Söguna af músinni
Rúsínu, í Gerðubergi í
Breiðholti, en þar kom
fram ný leikkona, Helga
Amalds, sem er við
brúðuleikhúsnám í
Barcelona á Spáni. Viðtal
við Helgu er á síðu6/7
Senn líður að fyrstu
frumsýningu vetrarins hjá
Leikfélagi Reykjavíkur.
Leikárinu er hleypt af stað
með nýju íslensku verki,
Sveitasinfóníunni, eftir
Ragnar Amalds,
mannmörgu verki sem
höfundurinn segir að fjalli
um ástir og pólitík,
menningu og drauga2/3
Á Kjarvalsstöðum verður
opnuð sýning á
myndvefnaði Ásu
Ólafsdóttur í dag. Að setja
kraft í óskir sem eiga að
rætast er yfirskrift viðtals
við Ásu4/5