Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
Persónuleg
JOLA
KORT
leðileg jól
farsælt komandi ár“. Jói,
Sigga og börn eða Ella og
Bárður...!
Sama setningin á öllum
kortunum bara með mismun-
andi undirskriftum. Og mörg
kortin eru lík að útliti, jafnvel
stór hluti þeirra alveg ná-
kvæmlega eins.
En mitt á meðal kortanna
lólin
Jkoma
er „öðruvísi" kveðja sem
stingur í stúf, jólakveðja sem
sendandinn hefurdundað við,
— heimatilbúið jólakort.
Viðtakandinn er svo ham-
ingjusamur með kveðjuna að
hún fær heiðursstað á píánó-
inu og er sýnd hverjum sem
vill.
Þetta tilfelli er líklega ekkert
einsdæmi og flestum kemur
óneitanlega skemmtilega á
óvart þegar þeir fá kort sem
sendandinn hefur lagt tíma í
og vinnu. Kveðjan gleður og
yljar þeim sem hana fær.
Ekki þarf kortið að líta út
eins og listaverk, nóg er að
það hafi verið nostrað dálítið
við það.
Krakkar hafa gaman af því
að föndra fyrir jólin og það er
tilvalið að gefa þeim mismun-
andi skrautpappír, lím, liti og
skæri og láta svo ímyndunar-
afliðráða ferðinni.
Það eru kannski til garnaf-
gangará heimilinu og þá eru
til ótal skemmtileg mynstur
sem má sauma. Ef efnisbútar
eru nægir þá má klippa þá út
og útfæra jólamyndir sem
síðan eru límdará pappa.
Og þá er bara að hefjast
handa. Hér á síðunni gefur að
líta nokkrar útfærslur sem
kannski koma ykkur á sporið.
GRG