Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988
■'» CS
C 3
önnur brunnu hægt. Hitagildið fór
eftir því hvernig þau brunnu. Eftir
því sem þau brunnu hægar því
meira var hitagildið. Kolin voru flutt
inn frá Englandi og Póllandi. Stórt
tæki, kolakrani sem kallaður var
Hegrinn var notaður í Reykjavík til
að losa kol úr skipunum, en hér á
Akureyri var enginn krani. Á Akur-
eyri voru þrír til fjórir aöilar sem
seldu kol. Þar á meðal Kaupfélag-
ið. Það var um það bii þriðjungur
af árslaunum verkamanns sem fór
í upphitun á ári. Upp úr 1945 fór
verð á kolum lækkandi miðað við
aðrar nauðsynjavörur.
Hópur af mönnum hafði atvinnu
af því að keyra út kolin. Fyrst voru
notaðir hestvagnar til að keyra út
kolin en síðar tóku bílarnir við. Þó
var það svo að hestasleðar voru
notaðir við útkeyrsluna þegar
þungfært var á vetrum. Lengi
framan af höfðu menn engin
hlífðarföt en síðar meir notuðu
sumir sjófrakka. Um 1940 var farið
að nota rafmagn til næturhitunar
á Akureyri. Það var eftir að Laxár-
virkjun var tekin í notkun. Eftir að
farið var að nota eingöngu olíu-
kyndingu þurfti aðeins að fara eina
umferð um bæinn á ári til að sóta.
Síðan hitaveitan var tekin í notkun
á Akureyri árið 1978 þá hefur eng-
inn sótari verið hér að störfum.
Oft hugsa ég um þá tíma þegar
það þurfti að spara heita vatnið
því bæði var dýrt að hita vatnið
og eins gat það klárast þar sem
hita varð það T smáskömmtum.
Það er ekki eins og í dag. Þegar
skrúfað er frá heita krananum er
vatniö jafnheitt allan tímann sem
það rennur.
Þannig mælti Gestur Jóhannes-
son fyrrum sótari, fulltrúi starfs-
stéttar sem tilheyrir fortíöinni.
Á Islandi eru kol notuð enn í dag
og meðal annarra notar Sements-
verksmiðjan á Akranesi kol. Þeir
hjá Sementsverksmiðjunni sögðu
að kolin væru miklu ódýrari en olíu-
kyndingin. Að vísu er enginn sót-
ari að störfum hjá Sementsverk-
smiðjunni því öll aska er rykhreins-
uð. Það er aðallega loftgufa sem
við sjáum koma út úr stóra
strompnum á Akranesi.
En enginn veit sína ævina fyrr
en öll er. Hver veit nema kolakynd-
ing verði tekin upp á nýjan leik og
að hér verði virkur og stór hags-
munahópur starfandi sótara.
Texti: Kristín Jónsdóttir.
fer mjög mikið eftir þeim viðbrögð-
um og viðurkenningu sem það
fær. Notaðu fjölbreyttar aðferðir
tl að sýna barninu viðbrögð: 1)
hrós, 2) góðgæti, 3) drykki, 4) vina-
listann og 5) ýmis konar viðbrögð
s.s. faðmlög, kossa, bros og lófa-
klapp. Barnið verður að finna
áþreifanlega fyrir ánægju þinni, þú
hvetur það ekki til dáða nema þú
tjáir hrifningu þína opinskátt. Það
gerir ekkert til þótt þú ofleikir svol-
ítið. Þegar þú sérð barnið brosa
út að eyrum og verða himinlifandi
þá veistu að viðbrögð þín hafa
verið rétt.
Útskýröu hvers vegna þú
gleðst
Ef þér á að takast að hvetja barn-
ið til að læra verður það að vita
hvers vegna þú gieðst og hrósar
því. Því verður þú alltaf aö útskýra
fyrir barninu hvers vegna það fær
hrós. Segðu t.d.: Villi pissaði í
koppinn, nú er mamma glöð, eða
ef hann situr kyrr á koppnum: Villi
situr stilltur 'a koppnum og þú
strýkur honum um leiö eða ef hon-
um tekst að hysja upp um sig:
Villi er stór strákur, hann getur
tekið buxurnar sjálfur upp, eða...
AUSTURBÆR
Sóleyjargata o.fl.
Drekavogur
Viðjugerði
Laugarásvegur 39-75
Dyngjuvegur
KÓPAVOGUR
Kársnesbraut77-139o.fl.
ar 35408 og 83033
Bókaflokkur bandaríska metsöluhöfundarins Jean M. Auel um Börn
Jarðar hefur fyrir löngu öðlast frægð og fádæma vinsældir um allan
heim. Mammútaþjóðin er þriðja bókin sem kemur út á íslandi.
Sögusviðið er sem iyrr Jörðin eins og hún var byggð fyrir 35.000
árum síðan. Söguhetjan Ayla tekst á við lífið sem fullþroska kona í
hörðu samféiagi Mammútaveiðimanna og enn tekst höfundinum
einstaklega vel að skapa andrúm fortíðar og glæða forfeður okkar lífi
og tilfinningum.
Mammútaþjóðin er sjálfstætt framhald bókanna Dalur hestanna og
5 Þjóð bjarnarins mikla. Þar var rakin uppvaxtar- og reynslusaga Aylu,
| m.a. hjá Neanderdalsmönnum og lesendum veitt óvenju næm og skýr
| innsýn í þennan horfna heim, sem nánast ekkert hefur verið skrifað
| um til þessa. Mammútaþjóðin er spennandi framhald þessara
i stórkostlegu skáldsagna um ..
mmm