Morgunblaðið - 16.12.1988, Side 10

Morgunblaðið - 16.12.1988, Side 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUÐAGUR 16. DESEMBER 1988 Stelpnafræðaranum grípum við niður í kafla sem ber heitið „Allt um kynlif" og birtum upphaf hans: Flestir unglingar hafa mjög blendnar tilfinningar gagnvart kynlífi og undar- legt ef svo væri ekki. Margir full- orðnir telja kynlíf unglinga sið- laust eða a.m.k. afar óæskilegt og sum trúfólög fordæma kynlíf utan hjónabands. En myndin sem kvikmyndir, sjónvarp, aðrir fjölmiðlar, auglýsingar og ungl- ingablöðin bregða upp gerir ráð fyrir að kynlíf unglinga sé í hæsta máta eðlilegt, ef ekki beinlínis æskilegt. Mjög oft eru skilaboðin frá foreldrunum aðeins til að rugla unglingana. Þeir halda oft fram siðsemi en líta í reynd mjög frjálslega á kynlíf innan hjóna- bands sem utan. Engin furða er þótt unglingum finnist oft erfitt að gera upp hug sinn þegar þeim finnst foreldrarnir ekki vera komnir að niðurstöðu sjálfir. Samkvæmt könnun sem ég gerði um kynfræðslu hjá unglingum hafa þeir oft mjög mótsagna- kenndar hugmyndir um kynlíf. Oft finnur þú fyrir töluverðum þrýstingi, baeði jákvæðum og neikvæðum. í fyrsta lagi getur verið að þú sért ósátt við hegðun vina þinna og skólafélaga en dragist engu að síður í sama far- veg til að vera með hópnum og halda áliti innan hans. Sumar stelpur eru forvitnar um kynlíf og vilja kynnast því betur, en eru hræddar um að fá á sig óorð. Verst er þó að mjög lítið tiltækt er af áreiðanlegum upplýsingum. Þú getur óvíða leitað hjálpar við að koma lagi á tilfinningar þínar. Fæstar unglingsstelpur eiga eldri vinkonu sem er vingjarnleg og gefur góð ráð og upplýsingar. Gott er ef þú tekur þér örlitla stund til að hugleiða til hvers kynlíf er. Þetta kann að virðast einkenniieg spurning og svarið liggja í augum uppi, en fæst ger- um við okkur Ijósa grein fyrir málinu. Ef þú hugleiðir viðhorf annarra til kynlífs í alvöru hjálpar það þór ef til vill til að gera þér þínar eigin tilfinningar Ijósar. Ef litið er á kynlff í allra þrengstri mynd er það til að við- halda tegundinni. Það tryggir að mannkynið haldi áfram að marg- faldast. Auk þess vill svo til að fólki finnst kynlíf ánægjulegt og það tryggir að fólk heldur áfram að búa til börn og þar með við- hald mannkynsins. Frá fólagslegu sjónarmiði og fjölskyldusjónarmiði treystir kynlíf tengsl miili hjóna á einstak- an hátt, styrkir þau og gerir þau varanleg. Fjölskyldan verður ein heild og hjón gleðjast yfir því að eignast saman börn. Gift fólk lítur fyrst og fremst á kynlíf sem ánægjulegan þátt hjónabandsins sem staðfestir sambandið. Eng- inn vafi leikur á því að það er ein öflugasta leiðin sem hjón geta tjáð tilfinningar sínar með. En það sem kannski skiptir mestu máli að í kynlífi er hægt að sína umhyggju, ást og væntumþykju á þann hátt sem annars væri ómögulegt.. . . . . Foreldrarnir ættu að vera þeir fyrstu sem þú leitar til þegar þú ert að reyna að henda reiður á tilfinningum þínum og hug- myndum um kynlíf. Hjá mörgum unglingum er þetta þó nánast útilokað. Margir segja t.d. „ef ég nefndi kynlíf heima myndi pabbi kasta mér á dyr“ eða „ef ég gerði tilraun til að tala um kynlíf myndu mamma og pabbi læsa mig inni og hleypa mér aldrei aftur út“, eða þá „mamma og pabbi halda að ég sé engill og ef ég myndi reyna að tala um kynlíf við þau Margir unglingar hika við að ræða viðkvæm mál eins og kynlíf við foreldra sína, en það erauðveld- ara efmaður hugsar sér það sem æfingu í að tala um erfið mál við ókunnuga. Þaðmuntþú þurfa að gera oft á ævinni og er margt vitlausara enaðæfasigá fjölskyldunni... myndi þeim finnast ég gjörspillt; mella“. Ef svona er ástatt heima hjá þér ættir þú að reyna að finna fullorðna konu, t.d. ættingja eða kennara sem þú geturtreyst, eða vinkonu sem er eldri og sem þú virðir og getur leitað ráða hjá. Mestu máli skiptir að þú getir fengið að tala um kynlíf við ein- hvern, hver sem fyrir valinu verð- ur. Nær allir unglingar hafa mikla löngun til að ræða þessi mál en engan til að tala við. Mörgum finnst lausn allra sinna vanda- mála vera að tala við einhvern og sannleikurinn er sá að næst- um alltaf er hjálp í að tala við einhvem og það leiðir til lausnar á flestum vanda sem upp kemur. Ef gott er að tala við foreldra þína og þú heldur að þið getið talað saman um ást og kynlíf skaltu endilega reyna það. Það borgar sig því þeir hafa mikla reynslu og þú munt sennilega komast að raun um að þeir eiga ýmsar nytsamar ráðleggingar til að miðla þér, þótt þú takir e.t.v. ekki mark á þeim öllum. Engum er eins annt um þig og foreldrum þínum og þeir gæti komið með ýmislegt sem hefur ekki einu sinni hvarflað að þér. Þú getur líka treyst því að for- eldrar þínir fari ekki að slúðra um þig, eins og mögulegt er að sum- ir vina þinna gætu gert. Þau fara með allt sem þú segir þeim sem algert trúnaðarmál. Eitt það mik- ilvægasta við að tala við foreldra sína er það að það hjálpar þeim að treysta þér, minnkar líkurnar á togstreitu milli ykkar og bætir sambandið. Jafnvel þótt þér finnist þú vel geta komist af ein og án foreldr- anna leikur enginn vafi á því að líf þitt og velferð eru tryggari ef foreldrar þínir styðja við bakið á þér. Margir unglingar hika við að ræða viðkvæm mál eins og kynlíf við foreldra sína, en það er auð- veldara ef maður hugsar sér það sem æfingu í að tala um erfið mál við ókunnuga. Það munt þú þurfa að gera oft á ævinni, svo það er margt vitlausara en að æfa sig á fjölskyldunni, sem tek- ur mistökum ekki eins alvarlega og aðrir og auðveldara er að treysta aftur sambandið við. Éitt að lokum. Ef foreldrar þínir standa með þór verður þú í raun styrkari og öruggari. Aðrir munu ekki geta misnotað þig eða farið illa með þig. Þú finnur fyrir meira trausti og sjálfsöryggi. Það er gott að skipuleggja þetta vel. konur III „Mannslíkaminn ar failag og fjölhæf vól og því er ástæöa tll aö fara val meö hann, gæta þass aö allt sé í lagi og sinna vlðhaldi hans. Þatta fæst launað hundraðf alt af maður notar svolítlnn tíma og orku til að fyrirbyggja að eitthvað farl úrskeiðis og grípur nógu snamma í taumana af það gerist. Mað þessu móti geta konur notlð sín tll fulls, þær líta betur út og þelm líður betur.“ Á þessa leið kemst Mlrlam Stoppard, höfundur bókarinnar Stórl kvennafræðar- inn, að orði, en bókaforlagið Iðunn gefur þessa bók út nú fyrir jólin, í þýðingu Nönnu Rögnvaldsdóttur. Er um að ræða einar432 blaðsíður af efni um konur fyrir konur og hafa ýmsir kaflar bókarinnar verið staðfærðir og lagaðir að íslenskum aðstæðum. Bók- Inni er sklpt í 9 aðalkafla sem svo skiptast aftur í allt að 15 undirkafla hver. Aðalkaflarnir bera yfir- skriftirnar hellbrlgði og hreystl, dagleg líkamshirða, kyneðli og kynlíf, frjósemisskeiðið, sérstök vanda- mál kvenna, sálrænir erfiðleikar kvenna, sórmeð- ferð, lífshættlr og að halda sór unglegrl. Sem dæml um undirkafla má nefna að í kaflanum um sálræna erfiðleika kvenna má finna undirtltla á borð við streitu, kvíða, þunglyndl, fælnl, lýti, áfenglssýki, nauðgun og ofbeldi á heimlllnu og fleira. Reyndar er Stórl kvennaf ræðarinn ekki elna bók- inn é markaðnum eftlr Stoppard, sem er breskur læknir og hefur um árabll sáð um f ræðsluþætti þar í sjónvarpl, skrifað grelnar f tímarlt og bækur, s.s. foreldrahandbóklna sem kom hór út árið 1984. Stelpnafræðarinn nefnist bók eftir hana sem kom út í fyrra hjó Iðunni og er endurútgef In nú fyrir jólin, _ en þar er á ferðlnnl bók með lelðbelnlngum og upplýs- Ingum ætluðum stúlkum sem eru í þann mund að breytast í ungar konur. Sú bók er 162 blaðsíður að stærð og fjaliar m.a. um þær breytingar sem verða á Ifkamanum, lífl og tllflnnlngum stúlkna á kyn- þroskaskelðlnu, ráðleggingar um líkamsrækt, mat- aræði, útlitið, sambandið vlð fálagana og ekki síst foreldrana, kynlff og getnaðarvarnlr, ráðleggingar varðandl skólastarf og ýms vandamál sem þar kunna að koma upp, sem og Innan helmillslns. Vlð birtum hár úrdrættl úr þessum tveimur bókum eftlr Mlriam Stoppard. VE

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.