Morgunblaðið - 16.12.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 16.12.1988, Qupperneq 4
'4 'C to'ORGÚNÖLAÐIÐ, F'ÖSTUDAGÚR 16. DÉSEMBER 1988 TOKU9ÝNING í GALLERÍ CmÓTI Katrín Júlía Ólafsdóttir. Hún er í leðurpilsi og vesti úr bómullarblöndu. Sigrún Gunnarsdóttir og Þorkell Guðjónsson í fatn- aði úr leðri og gallaefni. Morgunblaðið/K.G.M. Kári Freyr Björnsson og Sigrún Vala Þorgrímsdóttir. Strákurinn er í leðurbuxum og jakkinn er með leður- kraga og vasa. Telpan er í handprjónaðri peysu og leðurpilsi. Ingibjörg Þóra Gestsdóttir eða Inga eins og hún er kölluð, hélt skemmtilega sýningu á hönnun sinni í Gallerí Grjóti í síðustu viku. Inga lauk nýlega tveggja ára námi í fatahönnun frá Köbenhavns Mode og Design skole. Að þessu sinni voru það fjórar íslenskar stúlkur sem útskrifuðust saman, auk Ingu, Aðalheiður Alfreðs- dóttir, Steinunn Jónsdóttir og Guðrún Lára Guðmundsdóttir. Skömmu eftir að kiga kom heim frá Danmörku var stungið upp á því við hana að hún héldi tískusýningu í Gallerí Grjóti og síðan hefur hún staðið að undir- búningi hennar. Herrafatnaðinn sem var á sýningunni átti Inga í fórum sínum, en hún valdi herra- fatnað sem lokaverkefni í skólan- um. Hinsvegar sagðist hún hafa haft hug á að hanna barnafatnað og vinna með leður í því sam- bandi. Hún fékk til liðs við sig systkinabarnahópinn sinn og hófst handa við að hanna á hann fatnað. Þar sem hópurinn er stór hefur verið í mörgu að snúast og tíminn verið naumur. Því hafa andvökunæturnar verið margar, sérstaklega síðustu dagana fyrir sýninguna. „Þetta voru tíu al- klæðnaðir sem ég þurfti að hanna, sníða og sauma," segir Inga. „Saumaskapinn sá ég þó ekki um ein, því ég fékk Krist- björgu Jóhannesdóttur í lið með mér og hún hjálpaði mér mjög mikiö. Einnig fékk ég fólk til að hjálpa mér við prjónaskapinn á barnapeysunum." Þegar okkur bar að garði rétt fyrir sýningu var það fríður flokk- ur barna og unglinga sem blasti við augum, klæddur frumlegum og skemmtilegum fatnaði. Sýn- ingin tókst vel, húsfyllir var og krakkarnir stóðu sig eins og at- vinnufólk þó að minnsta mann- eskjan í hópnum beygði aðeins útaf þegar mannfjöldinn starði á hana. En er Inga komin heim til að vera? „Ég er að reyna að fá inni í skóla í París þessa dagana. Þó .'•Tm* í - < 1 : mm Kjartan Yngvi Björnsson og Óskar Vatnsdal Guöjónsson. Bima Kristín Jónsdóttir. Hún er í leðurpilsi og jakkinn er úr bómullarblöndu. Þorteifur Grétarsson, Ólafur Lúövfksson og Guöjón Ingi Gestsson. Herrarnir eru klæddir í fatnað sem var lokaverkefni Ingu. Fötin eru úr leðri, ull og bómull. Kolbrún Anna Björnsdóttir og Þuríður Björg Þorgrimsdóttir. Kolbrún klæddist leðurstuttbuxum en Björg leðurjakka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.