Morgunblaðið - 07.01.1989, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 07.01.1989, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 Fjöldi listamanna frá öllum Norðurlöndum sýnir verk á norrænum veflistarþríæringi ■ SKÚLPTUR 81x179x70 sm. Eftir Seppo Manninen frá Finn- landi. ■ SAMAN 240x180 sm. Eftir Ragnhild Monsen frá Noregi. á Kjarvalsstöðum immti norræni veflistarþríæring- urinn opnar á Kjarvalsstöðum næstkomandi laugardag-, þann 6. janúar. Þetta er yíírgripsmikil sýn- ingþví 64 listamenn frá öllum Norðurlöndunum sýna 81 verk og eru báðir salir Kjarvalsstaða, gang- ar og forsalir lagðir undir. Hönnuður sýningar- innar er fínnski arkitektinn Hannele Grönlund. Af Islands hálfu eiga textíllistamennirnir Guðrún Gunnarsdóttir, Anna Þóra Karlsdóttir, Guðrún Marínósdóttir og Ina Salóme verk á sýningunni að þessu sinni. Að loknum sýningartíma á Kjar- valsstöðum þann 22. janúar opnar þríæringurinn í Þórshöfíi í Færeyjum, síðan í Oðinsvéum í Dan- mörku, þar næst í Osló, svo í Stokkhólmi og Gautaborg í Svíþjóð og norræna veflistarþríær- ingnum 1989 lýkur svo í Helsinki í Finnlandi í byrjun janúar 1990. Gunnar Kvaran listráðunautur á Kjarvalsstöðum sagði að þríæringn- um væri ætlað að gefa yfirlit um það helsta sem væri að gerast í norrænni textíllist þessi misserin. „Þríæringurinn á að sýna hvernig textíllistin hefur breyst og hvernig listamennimir hafa tileinkað sér ný efni og nýja tækni. Að öðru leyti er ekki hægt að tala um „sér- norræna" textíllist, því listamenn- imir em fijálsir og óbundnir og leita víða fanga eftir efnum að vinna dír og hugmyndum að vinna með. Þá em tengsl við málverk og skúlpt- úr augljós í verkum margra lista- mannanna á sýningunni," sagði Gunnar Kvaran listráðunautur Reykj avíkurborgar. Listamiðstöðin í Sveaborg Norræni veflistarþríæringurinn hefur verið haldinn reglulega síðan 1974 og er umsjón og framkvæmd þríæringsins nú í fyrsta sinn í hönd- um safnstjómar norrænu listamið- stöðvarinnar í Sveaborg í Finn- landi. Auk fulltrúa listamiðstöðvar- innar var dómnefnd sú sem valdi verk á sýninguna skipuð einum listamanni frá hverju Norðurland- anna. Fulltrúi íslands í dómnefnd að þessu sinni var Ragna Róberts- dóttir. Þá vom í dómnefnd fulltrúi Kulturhuset í Stokkhólmi og ritari þríæringsins. Alls bámst um 600 verk til dóm- nefndar þríæringsins og vom valin úr þeim mikla fjölda 81 verk til sýningar. Þetta fyrirkomulag við framkvæmd þríæringsins er nýjung því til þessa hefur þríæringurinn verið alfarið í höndum listamann- anna sjálfra; þeir hafa skipað dóm- nefnd úr sínum röðum og vinnuhóp- ar í hverju landi séð um framkvæmd og uppsetningu sýningarinnar og notið fjárhagslegs stuðnings Nor- ræna menningarsjóðsins og ann- arra opinberra aðila. Að sögn þeirra þriggja viðmælenda Morgunblaðs- ins sem rætt var við á Kjarvalsstöð- um fyrr í vikunni, Önnu Þóm Karls- dóttur, Guðrúnar Gunnarsdóttur og Hannele Grönlund, stafar þessi skipulagsbreyting á þríæringnum af því að hann er nú styrktur beint af fastri ijárhagsáætlun Norræna menningarsjóðsins. Við þessa breytingu hefur öll umsjón og skipulag þríæringsins færst yfir á HfitBi tí ranoveid wrí-i(i«iiijw. Morgunblaðið/Sverrir ■ Textíllistamennirnir Guðrún Gunnarsdóttir og Anna Þóra Karlsdóttir ásamt Hannele Grön- lund við eitt verkanna á sýning- unni ÞRJÁR SÚLUR eftir norsku listakonuna Gertrud Hals. Norrænu listamiðstöðina í Svea- borg. „Úr því að Norræni menning- arsjóðurinn fjármagnar þríæringinn er eðlilegt að sjóðstjórnin vilji að umsjónin færist í hendur einhvers samnorræns aðila,“ sagði Anna Þóra Karlsdóttir. Hún bætti því við að annars sé sýningin með svipuð- um hætti og tíðkast hafi til þessa. „Nýju stjórnendumir ákváðu að gera ekki of miklar breytingar að þessu sinni heldur nota tækifærið og læra af þessu og koma síðan með breytingar seinna ef þörf verð- ur talin á því,“ sagði Anna Þóra. Finnskur arkitekt hannar sýninguna Hannele Grönlund er finnskur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.