Morgunblaðið - 07.01.1989, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.01.1989, Qupperneq 8
8 B ' MOR'GUNBLAÐIÐ’ LÁUGÁRDÁGÚR 1 JaNUÁR' 1§8§ Hnákméíí uppnámi Fyrri grein Eftir Matthías ViÖar Sœmundsson Arið 1924 var Fritz Haarman, kynferðislegnr öfuguggi, fjöldamorðingi og mannæta léiddur fyrir rétt í Hannover. Haarman var gefíð að sök að hafa dregið á tálar umkomulausa drengi á jámbrautar- stöðinni í Hannover og farið með þá heim til sín en hann bjó fyrir ofan matvöruverslun í gamla borgar- hlutanum. Eftir að hafa svalað fysn- um sínum myrti Haarman piltana með því að halda þeim föstum með aðstoð yngismannsins Hans Grans og bíta þá á barkann. Var hann af þeim sökum kallaður „Hannover- blóðsugan" í blöðum. Talið er að Haarman hafi framið um 50 morð á fimm árum. Hann var mannæta eins og fyrr getur og sauð kjöt fóm- arlamba sinna eftir að hafa úrbeinað það. Át hann sumt en seldi hitt í versluninni fyrir neðan sem hafði dag hvem úrvals nautahakk á boð- stólum. Haarman var afhöfðaður með sverði í apríl 1925. Öld áður, árið 1829, losaði sam- félagið sig við annan stórmorðingja með öllu rosalegri hætti. Það var Burke sem ásamt Hare er talinn hafa myrt sextán manns í Edinborg í Skotlandi. Refsing Burkes var eftir- farandi: Hann var kæfður líkt og fómarlömb hans, síðan var skinnið flegpð utan af líkamanum og sútað, en búkurinn saltaður ofan í tunnu, síðar var hann kmfinn opinberlega og beinagrindinni komið fyrir ti) sýnis í Háskólasafni. Skinnið var hins vegar selt heldri mönnum í borginni og notað í tóbakspunga. Aðfarir af þessu tagi vom ekki nýjar af nálinni og þóttu í sjálfu sér lítið fréttaefni. Þær tengdust réttar- vitund sem ennþá setur mark sitt á viðhorf fólks þótt henni sé í orði kveðnu hafnað. Réttarvitund sem best verður lýst með dæmi um af- töku í París á 18du öld: „Böðullinn notaði barefli úr jámi líkt þeim sem notuð vom í slátur- húsum. Hann sló því af alefli í enni vesalingsins sem hlunkaðist dauður niður. Síðan kom mortis exactor og . skar fómarlambið á háls með sveðju. Gaus blóðið þá um hann allan og þótti það hiyllileg sjón. Síðan skar hann á fótsinar líksins, opnaði þá magann, og dró út hjartað, lifrina, miltað og lungun sem fest vom á jámkrók, og sneidd niður í hluta sem festir vom á aðra jámkróka líkt og gert var við slátrun dýra.“ (Michel Foucault) Aftökur em ekki lengur opinberar helgiathafnir þar sem samfélagið færir sjálfu sér fóm. Nú á dögum er öðmm aðferðum beitt enda virð- ast viðhorf manna til líkamans hafa breyst og hann orðið sálrænni en áður ef svo má að orði komast. í samfélagi okkar er hugurinn kallað- ur til ábyrgðar en ekki líkaminn. Okkur óar við grimmd forfeðranna af því að hún sýnist með öllu skyn- laus og ómennsk. Hún brýtur gegn hugmyndum okkar um mannhelgi er við tengjum í senn líkama og sál. Hugmyndum sem okkur hafa verið innrættar um tveggja alda skeið. Engu að síður er Burke tekinn af lífi kvöld hvert nú á tímum þótt með öðmm hætti sé en árið 1829. Þörfin, ógnin og nautnin hafa ekki horfíð heldur flust til eða öðlast nýjan búning. Núna fer athöfnin ekki fram á borgartorgi eða í fang- 'élsisgarði heldur á þúsund heimilum til sjávar og sveita frammi fyrir skínandi skjá eða gulum bókarblöð- um. Þar blöndumst við múgnum fyrir neðan aftökupalla Parísarborg- ar og gleymum lærdómi tveggja alda. Valinkunnar sómakonur verða að blóðþyrstum böðlum með morð í augum og upp rís þeirra sál í magn- þmngnu ákalli: Drepið’ann, drepið- ’ann, helvítið atarna! Er þá ekki spurt um mannhelgi eða málsbætur né heldur mögulegt ósakhæfi. Og vondur verður dauðinn að vera. Ein- ungis hroðalegt helstríð getur full- nægt kvalalosta þessara sóma- kvenna áður en þær syngja bömin sín í svefn. Ótti og útrás Hrollvekjulist nútímans veitir úrlausn af framangreindu tagj. Hún er veruleiki í böndum. Í henni fáum við útrás fyrir ótta okkar við eigin hvatir, merkingarleysi og vondan dauða. Um leið minnir hrollvekjan á hvað við erum í raun með því að draga fram veruleika sem í senn er kynferðislegur og dulvitaður, sið- laus og kennimarkalaus. Veruleika sem er falinn eða bannfærður í menningu okkar og fæstir vilja vita af, þótt hann móti að miklu leyti sjálfsímynd þeirra og hugsun um heiminn. Hrollvekjan veitir nauðsynlega útrás að margra dómi. „Öskraðu hærra, lifðu lengur!” kallast grein eftir virtan fræðimann um ofbeldi á hvíta tjaldinu. William Castle gerði eitt sinn kvikmynd er hann kallaði The Tingler (Stinginn) með Vincent Price í aðalhlutverki. Efnis- þráðurinn er í stuttu máli þessi: 1 upphafi myndar birtist Castle sjálf- ur á tjaldinu og segir áhorfendum að þeir verði að öskra af öllum lífs og sálar kröftum þegar hryllingur- inn nái hámarki. Að öðrum kosti magnist spenna innra með þeim og geri þá vitskerta. Síðan er sýnd mynd þar sem Vincent Price leikur vísindamann sem er sannfærður um að heft eða bæld hræðsla valdi því að örvera sem hann kallar „sting“ þrengi að taugum neðst í mæn- unni. Slíkt leiði í fyrstu til líkamlegs áfalls en síðan sársaukafulls dauð- daga. Eina leiðin til að halda „stingnum" { skefjum sé að öskra eins og skelfdur api. Price sannar síðan mál sitt með sögu. Dag nokk- um uppgötvar daufdumb kona að blóð streymir úr krönum í bað- herbergi hennar. Sér hún hönd teygjast upp úr baðkerinu og rekst loks á eigið dánarvottorð í bað- herbergisskápnum. Er henni þá nóg boðið sem vonlegt er, fellur á gólfið og deyr með harmkvælum því ekki getur hún öskrað. Seinna er fram- kvæmdur líkskurður og bregður þá svo við að „stingurinn" sleppur úr höndum líkskerans. Hann sleppur raunar úr myndinni sjálfri og fleyg- ist með ógnarhraða út í sal til áhorf- enda. Á sama augnabliki byrja áður tengdir stólar í salnum að nötra og skjálfa. Hrollvekjan breytist úr list í raunveruleika. Mænustingurinn leikur lausum hala í bókstaflegum skilningi og áhorfendum er nauðug- ur einn kostur að öskra og öskra. Það eitt heldur stingnum í skcfyum. William Castle vissi gjörla hver gangvirki hrollvekjunnar eru. Að hún byggist í senn á sérstöku mynd- máli og taugakerfi áhorfenda. Myndin bregst öllum væntingum: Hvað er leikstjórinn að gera í mynd- inni? Hvers vegna flæðir blóð úr krönum? Hvemig getur myndin brotist út úr tjaldinu og niður til okkar? Áhorfendur hafa hins vegar engan tíma til að íhuga slík túlkun- arvandamál í hita leiksins. Hið eina sem þeir geta er að hrökkva í kút og öskra. Þeir hafa sogast inn í rökleysu þar sém vitið má sín einsk- is. Bannfærð þjáning- Hrollvekjan hefur öðlast sívax- andi vinsældir á seinni ámm jafn- framt því sem fólska af ýmsu tagi hefur aukist að mun í lýsingum bókmennta og kvikmynda. Ég hygg að orsakirnar séu að hluta félags- legar. Ofbeldi virðist skipa æ stærra rúm í vitund okkar um heiminn enda eru ódæðisverk daglegt brauð — stríð, pyndingar, sifjaspell, nauðganir o.s.frv. Sagan er þó ekki öll þar með sögð. I daglegu lífi höldum við yfirleitt sársauka og dauða í ákveðinni fjarlægð. Við vit- um hvað er að gerast en forðumst að láta það hafa áhrif á tilfinninga- líf okkar. Þannig fylgjumst við með fjöldamorði í sjónvarpi á næsta kaldrifjaðan hátt eða þá það gleym- ist á örskömmum tíma. Það vekur óhugnað en er samt undarlega fjar- lægt. Þjáningin kemur okkur ekki við. Dauðinn kemur okkur ekki við. Ástæðan er m.a. fólgin í því að samfélag okkar hefur myndað ákveðið vamarkerfi gegn þessum fyrirbærum lífsins. Kerfi sem ekki var til fyrir svo sem einni öld. Þá máttu börn þola líkamlegar mis- þyrmingar án þess að skorist væri í leikinn. Þau sáu jafnaldra sína kafna úr barnaveiki unnvörpum saman eða veslast upp úr öðmm sjúkdómum. Þau sáu mæður sínar fæða böm í næsta rúmi og í öðru sáu þau gamalmenni geispa gol- unni. Þau sáu lömbin aflífuð og hestana gelta. Töluðu við geðsjúkl- inga og krabbameinssjúkt fólk. Þau gengust undir læknisaðgerðir án deyfingar og máttu jafnvel þola hungur. Þessi börn vissu ekki að- eins um sannleikann líkt og yngri kynslóðir nú á dögum. Þau upplifðu á líkamlegan hátt sársauka, ofbeldi og dauða — tilurð og sundrun lífs. Nú á dögum er fólk að vissu leyti ofvemdað. Hið óhugnanlega er geymt á stofnunum þar sem það er ekki í augsýn. Margir upplifa aldrei fæðingu eða andlát nema á sjálfum sér. Það hafa verið búin til einskonar bannsvæði þar sem óhreinu börnin hennar Evu em geymd: vanskaplingar, geðsjúkir — þeir sem ijúfa form mennskunnar með einhveijum hætti. Form sem meðal annars er byggt á hugmynd- um um æskilegt útlit mannslíkam- ans. Okkur finnast þessar hug- myndir vera sjálfsagðar og jafnvel algildar en raunin er þó sú að þær tengjast hugsunarhætti sem á sér menningarlegar og sögulegar for- sendur. Hann býr eins og sjálfgef- inn sannleikur að baki dómum okk- ar og stýrir þeim þótt við höldum að þeir séu okkar eigin. Nærtækt dæmi er afstaða íslendinga sem og annarra Vesturlandabúa til fitu. Áður fyrr var þétt og svellandi hold mælikvarði á mannlega fegurð. Nú á dögum þykir flæðandi spik frekar til lýta í flestum tilvikum. Við byrgjum þjáninguna inni á hælum eða stofnunum. Rekum hana úr augsýn okkar og gefum á þann hátt til kynna að hún sé af- brigðileg og viðbjóðsleg. Hið sama gildir raunar um tilfinningar al- mennt. Margir kunna til dæmis hvorki að veita gleði sinni né reiði útrás í líkamlegri athöfn. Sársauki, ofbeldi og dauði eru vanheilög þrenning sem halda verður í skefj- um hvað sem það kostar. Slík bæl- ing kallar óhjákvæmilega á and- hverfu sína. Við hrífumst af því sem afneitað er með ómótstæðilegum hætti. í ljósi þess er útbreiðsla of- beldiskvikmynda á seinni árum skiljanleg. Einnig það að hrollvekjur hafa orðið sífellt líkamlegri eða sóðalegri (svo ég noti gildishlaðið orð): hausar klofna, splundrast og fljúga í allar áttir, afhöggnir fingur slíta í sundur hálsa o.s.frv. Þessi verk sýna að ákveðin þróun hefur átt sér stað í tilfinninganæmi Vest- urlandabúa. Þeir tengja nú hið hryllilega við árás á holdið öðru fremur andstætt því sem áður var. Þá voru erótíkin og hið yfirnátt- úrulega framar öðru aflvakar hrolls og ógnar. Gamla samfélagið leyfði sorgar- viðbrögð, reiði og líkamlegt ofbeldi innan vissra marka en lagði afar sterkar hömlur á kynlífið. Kyn- hvötinni var nánast skipað í and- stætt skaut við menningu og skipu- lag. Nú er öldin önnur. Óhugnaður okkar tengist öðru fremur holdi sem svipt hefur verið merkingu. Okkur hryllir við eigin efnisleika, saur og vökva, því sem eyðir útlínum líkam- ans og bræðir hann saman við ann- að. Við óttumst hold sem er siðvana og meðvitundarlaust kerfi atóma er helst líkist iðandi maðkaveitu. Vísindin hafa magnað þennan hroll þótt við leiðum þau að mestu hjá okkur. Enn höldum við í hugmynd- ina gömlu um heildstæðan líkama þar sem hreyfing og stöðugleiki haldast í jafnvægi. Allt sem ógnar henni vekur andstyggð, viðbjóð, annarleika. Slíkar kenndir kristall- ast í afstöðu okkar til hins dauða líkama sem í senn er síkvikur og óhræranlegur. Hann er nú á dögum eitt helst forboð (tabú) vestræns þjóðfélags. Eru hrollvekjur seinni ára til marks um það. I þeim hafa líkamningar og sombíur rutt sér mjög til rúms á kostnað blóðsugna og venjulegra drauga sem þykja heldur gamaldags. Ástæðan er m.a. fólgin í þeirri firringu sem getið var um áðan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.