Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989 B 3 BADMINTON / EVROPUKEPPNI B-ÞJOÐA KNATTSPYRNA „Ásgeir er hættuleg- asta vopn Stuttgart" segirJosef Stabel, þjálfari Kaiserslautern JOSEF Stabel, hinn ákveðni þjálf- ari Kaiserslautern, telur Ásgeir Sigurvinsson, fyrírllða Stuttgart, einn af hœttulegustu leikmönnun- um íVestur-Þýskalandi. Asgeir er hættulegasta vopn Stuttgart. Tii að stöðva Stuttg- art-iiðið verða mótheijamir að stöðva Ásgeir með öllum ráðum. Þegar Kais- erslautem lék gegn Stuttgart sagði ég mínum mönnum að ra allt til að klippa ir út úr leik Broddl Krlstjánsson var óstöðvandi í einliðaleik karla á Gvrópumóti b-þjóða í badminton, sem lauk um helgina. „Viðerumaðná upp meiri breidd" - sagði Broddi Kristjánsson, sem var óstöðvandi í einliðaleik karla. ísland hafnaði í 5. sæti „MÓTIÐ var gífurlega spennandi. Flestir leikirnir voru jafnir og tvísýnir og þess vegna hefðum við getað spilað um verðlaunasœti, en óverð- skuldað tap gegn Finnum í fyrsta leik gerði þann draum að engu,“ sagði Broddi Kristjánsson f samtali við MorgunblaðitJeftir að Evrópu- keppni b-þjóða í badminton lauk f Budapest í Ungverjalandi um helg- ina. Eftir 4:3 tap gegn Finnum sigraði íslenska liðið í fimm leikjum í röð og hafnaði í fimmta sæti af 15 liðum. Fyrir- fram var gert ráð fyrir að Pólland, Wales, Belgía og írland væru með sterkustu liðin og var þeim raðað í riðlana. ísland var í riðli með Belgíu. Finnlandi og Ítalíu; vann Belgíu 5:2 og Ítalíu 7:0. Pólland sigraði í keppninni, Finnland hafnaði í 2. sæti, írland í þriðja og Wales í fjórða. í keppni um 5.-8. sætið keppti íslenska liðið við Norðmenn, Austurríkismenn og Ungveija og sigraði í öllum leikjunum 4:3. Gegn Norðmönnum sigraði Broddi í einliðaleik karla, Þórdís Edwald og Guð- rún Júlíusdóttir í einliðaleik kvenna og Þórdís og Guðrún í tvíliðaleik kvenna. Gegn Austurríki sigruðu Broddi og Þórdís í einliðaleiknum, og Broddi og Þorsteinn Hængsson annars vegar og Þórdís og Guðrún hins vegar í tvíliðaleik. Síðast var keppt gegn Ungveijum. Þá sigruðu Broddi og Þorsteinn í einliðaleik, Broddi og Armann Þorvaldsson í tvíliða- leik og Þorsteinn og Guðrún í tvenndar- leik. Broddi Kristjánsson var óstöðvandi í einliðaleik karla og Þórdís Eðwald tapaði aðeins einum leik í einliðaleik kvenna — gegn Ungveijum. „Þetta er besti árangur hingað til, en í Belfast fyrir tveimur árum höfnuðum við í sjöunda sæti. Við erum að ná upp meiri breidd, sem skilar sér í keppni," sagði Broddi. Inga Kjartansdóttir sleit liðbönd í ein- liðaleik kvenna gegn Austurríki og hélt heimleiðis í gær, en hópurinn kemur ann- ars heim á morgun. Hrólfur Jónsson dæmdi á mótinu og stóð sig vel, en þetta var í fyrsta sinn, sem íslandi var boðið að senda dómara á Evrópumótið. Þórdís Edvalds stóð sig vel í Búdapest. KNATTSPYRNA Barcelona borgaði metupphæð fyrir Ronald Koeman Hollenski landsliðsmaðurinn Ronald Koeman skrifaði undir fjögurra ára samning við Barcelona á sunnu- daginn. Koeman er þar með orðinn dýrasti knattspymu- maður heims, en Barcelona borgar Eindhoven 500 millj. ís. kr. fyrir þennan 25 ára vamarleikmann. Koeman, sem gengur til liðs við Barcelona í júlí, fær 50 millj. kr. í sinn vasa. Þeir leikmenn sem hafa verið keyptir fyrir himinháar upphæðir, eru Ruud Gullit og Diege Maradona. AC Mflanó keypti Gullit frá Eindhoven á 425 millj. kr. í fyrra og Napólí keypti Maradona frá Barcelona á 375 millj. kr. 1984. „Það verður örugglega skemmtilegt að leika fyrir Barcelona, sem er eitt ríkasta félag heims," sagði Koe- man. Stuttgart-iiðsins — gefa honum aldrei tækifæri til að ógna vöm okkar með hinum hættulegu langsendingum sínum," sagði Stabel, sem vildi þakka þessu hemaðarbragði sínu að Kaisers- lautem náði að leggja Stuttgart að velli, 6:1. Stabel sagði að Ásgeir væri sérfræð- ingur í að sundra vömum andstæðing- anna með nákvæmum, löngum spym- um. Þá sagði hann að Júgóslavinn Srecko Katanec væri mjög hættulegur við hliðina á Ásgeiri. KNATTSPYRNA Léttæfing hjá Amóri og félögum Þessi leikur var létt æfíng hjá okkur. Við unnum fyrri leikinn stórt, 8:0, þannig að leikmenn vom áhugalausir," sagði Amór Guðjohnsen, eftir að Anderlecht varð að sætta sig við jafn- tefli, 1:1, gegn 3. deildarliðinu Hamme í 16-liða úrslitin belgísku bikarkeppninnar. Bosmann skoraði §ögur mörk - þar af þijú úr vítaspymum, þegar Mecelen vann Boom, 6:0. Óvænt- ustu úrslitun urðu að 3. deildarliðið Rijkevarsel gerði jafntefli, 0:0, við Antverpen og komst áfram þar sem liðið gerði jafntefli, 1:1, í Antverpen á dögunum. Þau félög sem leika í 8-liða úrslit- unum em: Anderlecht, Mecelen, Zarte Leeuw, Standard Liege, FC Liege, FC Briigge, Lokeren og Westerlo. HANDKNATTLEIKUR / BALTIC CUP Sovétmenn lögðu V-Þjóðverja „VIÐ höf um ekki leikið gegn svona sterku liði að undan- förnu - ekki einu sinni á Ólympíuleikunum í Seoul. V- Þjóðverjar eru með skemmti- legt llð,“ sagði Anatoli Euvtuchenko, þjálfari iands- liðs Sovótmanna, eftir að það hafði unnið V-Þjóðverja, 21:16,í úrslitaleik Baltic Cup íDortmund. V-Þjóðveijar byijuðu leikinn betur og sýndu mjög góðan leik í fyrri hálfleik. Þegar flautað FráJóni Halldóri Garðarssynií V-Þýskalandi var til leikshlé vom þeir yfir, 11:8. Þeir höfðu frum- kvæðið í byijun seinni hálfleiksins, en þegar staðan var, 13:12, fyrir þá, datt botninn úr leik þeirra. Sovétmenn gengu á lagið og kaf- sigldu V-Þjóðveija. Viascheslav Atawin fór á kostum og skoraði tíu mörk. Petre Ivanescu, þjálfari V- Þjóðveija, var ánægður með leik sinna mann á mótinu, þrátt fyrir að þeir hefðu klúðrað niður leikn- um gegn Sovétmönnum. „Þetta er allt að koma hjá okkur. þess má geta að við komum beint I mótið eftir miklar og erfíðar æf- ingar," sagði Ivanescu. Jochen Fraatz, Essen, sem er veikur og Andreas Thiel, mark- vörður Gummarsbach, sem er meiddur á hné, léku ekki með V-Þjóðveijum í mótinu. Mesti höfðuverkur v-þýska liðsins er lftil ógnun sem er vinstra megin fyrir utan. Stephen Schöne er veikur og Riidiger Neitzel, Gummers- bach, hefur ekki náð sér á strik. Þeir leikmenn sem komu best frá mótinu voru Stefan Hecker, markvörður hjá Essen, línumaður- inn Christian Fitzek, Gummers- bach og hægri homamaðurinn Peter Quarti, Essen. A-Þjóðveijar urðu í þriðja sæti. Þeir unnu Pólveija, 30:22. B-lið V-Þýskalands varð í fímmta sæti eftir sigur á Tékkum, 21:19. Ung- veijar urðu í sjöunda sæti. Þeir unnu Finna, 29:20. FráBjama Markússyni i Belgiu $fúm FOLK ■ BRASILÍUMAÐURINN Romario skoraði mark eftir aðeins 38 sek. þegar Eindhoven vann MW, 3:1, í hollensku 1. deildar- keppninni og hann bætti síðan öðru marki við. ■ VESTMANNAE YINGAR fara í æfingabúðir til Stuttgart um páskana. Þeir koma til með að leika þar nokkra leiki. Stjaman fer einn- ig í æfingabúðir til Stuttgart. I FREYR Sverrisson hefur ákveðið að leika með KeÐavík í sumar, eftir að hafa leikið með Grindavik sl. keppnistímabil. ■ SÆVAR Bjamason, mark- vörður, hefur gengið til liðs við KR, eftir að hafa verið í herbúðum FH í fyrra. MBERND Schuster, leikmaðurinn kunni hjá Real Madrid, er greini- lega ákveðinn að snúa aftur heim til V-Þýskalands, eftir að samn- ingur hans við Real Madrid rennur út 1991. Schuster hef- ur fest kaup á stór- um bóndabæ fyrir - heimaborg sína. Schuster segir að hann sé ákveðinn að setjast þar að. „í Köln era flest- ir bestu vinir mínir. Þetta segir þó ekki að ég ætli að leika með mínu gamla félagi, Köln, þegar ég kem aftur heim. Eg hef ákveðið að leika aldrei framar í Bundesligunni," sagði Schuster. FráJóni Halldóri Garöarssyni iV-Þýskalandi utan Köln

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.