Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 8
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM KARLA
Girardelli fyrstur til að
vinna bran tvisvar í röð
í Lauberhom-brautinni
Hefur nú 75 stiga forskot á Pirmin Zurbriggen
M ARC Girardelli, sem keppir fyrir Luxemborg og er fœddur
í Austurríki en er af ítölskum œttum og býr nú í Svíss, hefur
heldur betur slegið í gegn f heimsbikarnum. Hann sigraði í
bruni á föstudag og laugardag í Wengen f Sviss og varö fjórði
f svigi á sunnudag og vann tvíkeppnina og hlaut samtals 82
stig. Hann hefur nú hlotlð samtals 306 stig f keppninni saman-
lagt. Helsti keppinautur hans, Pirmin Ziirbriggen, er með 231
stig og ítalinn Alberto Tomba er í þriðja sseti með 133 stig.
Girardelli varð fyrstur til að
sigra tvo keppnisdaga í röð
í hinni erfíðu Lauberhom-brun-
braut í Wengen. Hann var hálfri
sekúndu á undan Markus Was-
meier frá Vestur-Þýskalandi á
föstudag. Luxemborgarinn var
tæpri sekúndu á undan Pirmin
Ziirbriggen, sem varð annar, á
laugardaginn. Daniel Mahrer,
Sviss, varð þriðji báða dagana.
Á sunnudag var keppt í svigi
og þar hafnaði Girardeili ( fjórða
sæti og tryggði sér þar með sigur-
inn í tvíkeppninni. Rudolf Ni-
erlich, Austurríki, varð hins vegar
sigurvegari í sviginu og var 2/100
hlutum úr sekúndu á undan Al-
berto Tomba frá Ítalíu, sem varð
annar. Hubert Strolz frá Aust-
urríki varð þriðji.
Góðurárangur
Eftir þann góða árangur sem
Girardelli hefur náð í heimsbik-
amum að undanfömu er ekki úr
vegi að glugga í metabækur
heimsbikarkeppninnar. Þá kemur
í ljós að Girardelli er fyrstur allra
til að vinna tvö brunmót í röð í
Wengen og í bæði skiptin setti
hann nýtt brautarmet. Hann er
fyrstur til að vinna þijár mismun-
andi greinar á sama tímabili: svig,
bmn og stórsvig, slðan Jean-
Claude Killy gerði það 1968. Hann
er næstur á eftir Ziirbriggen til
að vinna allar fjórar greinamar í
heimsbikarkeppninni: svig, stórs-
vig, risastórsvig og bmn. Hann
er einn af níu sem unnið hafa tvö
bmnmót í röð og þannig mætti
lengi telja.
Þetta vom sfðustu heimsbikar-
mótin fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í alpagreinum sem hefst í
Vail í Colorado í Bandaríkjunum
á sunnudaginn. Þar verða m.a.
tveir íslendingar á meðal kepp-
enda, þau Guðrún H. Kristjáns-
dóttir og Ömólfur Vaidimarsson.
Rauter
Úrslit/B6
Mare Qlrardalll frá Luxemborg jók enn frekar forskot sitt í heimsbikar-
keppninni um helgina. Hér er hann í brunbrautinni fWengen á laugardaginn.
HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM KVENNA
Reuter
Svlssneska skfðadrottnlngln Vreni Schneider hefur nú þegar jafnað
met Moser-Pröll og á góða möguleika á að gera enn betur. Hér er hún í stór-
svigskeppninni á laugardaginn.
Schneider jafnaði
15ára gamalt
met Moser-Pröll
- með því að vinna 11. heimsbikarmótið
Vreni Schneider jafnaði 15 ára
gamalt met austurrísku skfða-
drottningarinnar, Annemarie Mos-
er-Pröll, er hún sigraði í stórsvigi
í Tignes í Frakklandi á laugardag.
Þetta var ellefti sigur hennar á
keppnistímabilinu.
Schneider hafði þriðja besta
brautartímann eftir fyrri umferð,
en eins og svo oft áður í vetur sýndi
hún yfírburði sína í síðari umferð-
inni og skaut þeim Carole Merle frá
Frakklandi og Mariu Walliser,
Sviss, aftur fyrir sig.
„Mér er sama hvemig ég stend
mig f heimsmeistarakeppriinni í
Vail. Árangur minn í heimsbikam-
um til þessa verður alltaf í minnum
hafður hvað svo sem ég kem til
með að gera í Vail. Ég mun mæta
mjög afslöppuð til leiks vestra,"
sagði Schneider.
Schneider á góðan möguleika á
að slá nýtt met í heimsbikamum í
bæði karla og kvennaflokki. Hún
þarf aðeins einn sigur til að slá
met Moser Pröll og met Ingemars
Stenmark, 13 sigrar á sama keppn-
istímabili, er í mikilli hættu.
Á föstudag var keppt í risastór-
svigi á sama stað. Þar sigraði Ca-
role Merle á heimavelli. Anita
Wachter frá Austurríki varð önnur
og Sigrid Wolf, Vestur-Þýskalandi,
þriðja. Schneider hafnaði aðeins í
12. sæti.
■ Úrsllt/B6
Claudla Lelstner frá Vestur-
Þýskalandi varð Evrópumeistari
kvenna í listhlaupi á skautum í Birm-
ingham í Englandi um helgina.
Érim
FOLK
■ CLAUDIA Leistner varð um
helginaEvrópumeistari í listhlaupi
kvenna á skautum. Evrópumótið
fór að þessu sinni fram í Birming-
ham f Englandi. Leistner hafði
nokkra yfirburði. Natalia
Lebedeva frá Sovétríkjunum varð
önnur og Patricia Neske frá Vest-
ur-Þýskalandi þriðja. í parakeppn-
inni sigraði sovéska parið Sergei
Ponomarenko og Marina
Klimova nokkuð örugglega.
■ OLE GUNNAR Fidjestoel
frá Noregi sigraði skíðastökki af
70 metra palli í Oberhof í Austur-
Þýskalandi á laugardag. Hann
stökk 90,5 metra og 85 metra og
hlaut samtals 216,6 stig og var
aðeins 0,1 stigi á undan Austur-
Þjóðveijanum Jens Weissflog.
Ingo Zuechner frá A-Þýskalandi
varð þriðji og Jan Bokloev frá
Svíþjóð Qórði. Þoka og vindur ollu
því að fresta varð keppninni í fjóra
klukkustundir. Á sunnudag var
keppt á sama stað og varð Jens
Weissflog þá hlutskarpastur. Hann
stökk 90 metra og 87,5 metra og
hlaut 229 stig. Ole Gunnar Fidj-
estoel varð annar og Jon Inge
Kjörum frá Noregi þriðji. Jan
Bokloev frá Svfþjóð er enn efstur
í heimsbikamum með 175 stig,
Dieter Thoma, V-Þýskalandi,
kemur næstu með 163 stig og Risto
Laakonen frá Finnlandi er fjórði
með 130 stig. Matti Nykaenen er
í fímmta sæti með 106 stig.
■ NORÐMAÐURINN Baard
Jörgen Elden sigraði í norrænni
tvíkeppni heimsbikarsins sem fram
fór í Breitenwang í Austurríki á
laugardag og sunnudag. Elden
náði sér ekki á strik í stökkinu og
var aðeins í 15. sæti, en í 15 km
göngunni sigraði hann með nokkr-
um yfírburðum og það nægði hon-
um til sigurs í tvíkeppninni. Pól-
veijinn Stanislaw Ustupski varð
annar og Klaus Sulzenbacher,
Austurríki, þriðji. í stökkkeppn-
inni, sem fór fram á laugardag,
sigraði Klaus Oflier frá Aust-
urríki, stökk 79 og 75,5 metra og
hlaut 213 stig, en Elden hlaut
aðeins 197 stig. Á sunnudaginn
sigraði Elden með yfírburðum f
15 km göngunni á 33:25.4 mínútum
og var 23 sekúndum á undan
Frantisek Repka frá Tékkósló-
vakíu, sem varð annar. Sulzenbac-
her hefur forystu í heimsbikamum
með 61 stig. Trond Arne Bredes-
en frá Noregi er í öðru sæti með
59 stig og Hipployt Kempf frá
Sviss og Elden jafnir í þriðja sæti
með 55 stig.
GETRAUNIR: X11 1X2 122 X11
LOTTO: 6 8 9 26 32 + 25