Morgunblaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989 „Kvenverkamadur, “ 1933. „Stúlka meó rauóa stöng, ‘ 1932-33. m „Súprcmatismi, “ 1921—27 (?) ■ „Eng- lendingur i Moskvu, “ 1914. ALLT SEM ER EKKIFAGURT í SJALFU SÉR VERÐURFAGURT ÞEGAR ÞAÐ ER SETT FRAM Á LISTRÆNAN HÁTT." að er búið að vekja Rússland; lifi listin! Þökk j sé Malewitsch." ' Tilvitnuð orð voru skrifuð í gestabók Rúss- neska listasafns- ins í Leníngrad í nóvemberbyrjun 1988. Þá var í fyrsta skipti opnuð yfirlitssýning á verkum Kazimir Malewitsch (1878-1935), þar sem öllum þáttum myndgerðar hans voru gerð skil. Malewitsch er talinn til mikilvægustu brautryðjenda ab- straktlisarinnar, ásamt Kandinsky og Mondrian; hann er jafnvel sagður hafa orðið fyrstur listamanna til að koma fram með óhlutbundið mál- verk. Árið 1915 sýndi hann svartan ferning á hvítum grunni — og þar með var kominn súprematisminn. Þá fór nefnd yfirlitssýning til Moskvu og var þar sett upp í Tretj- akov-galleríinu fyrr á þessu ári; og nú síðast er viðkomustaður Stedelijk Museum, Amsterdam. í nefndum borgum er einmitt að finna þijú helztu söfn verka Malewitsch. Það, að tekizt hefur að ná þessum safna verkum saman og mynda eina sýn- ingarheild, er í fyrsta skipti sem slíkt var hægt. Er það til marks um umbótastefnu Gorbatsjovs, perestro- ika; og lýsandi tákn um breytt sam- skipti milli Austurs og Vesturs er sýningin í Amsterdam. Hún er við- burður ársins í myndlistarheiminum. Malewitsch fæddist í Kiev og voru foreldrar hans af pólskum uppruna. í uppvextinum vaknaði hjá honum sterk hvöt til að mála náttúruna og sitt næsta umhverfi; hann fikraði sig áfram með pentskúfinn af eigin rammleik til að byija með. — Þá var milikafli, þar sem hann fór í gegnum fimm ára nám í landbúnaðarskóla. En að lokum tókst honum að kom- ast inn á listaakademíuna í Kiev. Málaraferill gekk þannig fyrir sig, að smám saman fékk Malewitsch nýja sýn á náttúruna. Náttúran varð ekki lengur málað samansafn hluta á lérefti, heldur meira leikur með ljós og liti. Hann færðist frá rússn- eskum natúralisma yfir til þess im- pressjónisma er átti franskar rætur. Til Moskvu flutti Malewitsch í árslok 1905, til þess að verða sér úti um frekari skólun og taka þátt í ólgandi listalífi. Myndgerð hans fer í gegnum symbólisma og síð-impres- sjónisma. — Það er upptendraður áhugi samtíðarmanna fyrir þjóðlegu, rússnesku málverki: Malewitsch enduruppgötvar íkona- og alþýðu- list. I sjálfsævisögu skrifaði hann: „Viðkynning mín af list íkonsins sannfærði mig um, að málið snýst hvorki um anatómíu 'eða fjarvídd, ■ „Súprematismi (meó 8 rauóum rétthymingum), “ 1915. né það að myndgera sjálfa náttúr- una, heldur það að skynja listina og listrænan veruleika í gegnum tilfinn- ingarnar. Með öðrum orðum, sá ég, að veruleikinn eða þemað er nokkuð sem umbreytist yfir í hugkvæmileg- asta form þess er risið getur upp úr djúpum fagurfræðinnar. Allt sem er ekki fagurt í sjálfu sér verður fagurt þegar það er sett fram á list- rænan hátt.“ Áfram liggur leið — í gegnum ný-primitívisma má rekja þróunar- ferilinn, þar sem bændur og náttúr- an eru viðfangsefni — og er svo loks- ins komið að þætti kúbismans. Síðla árs, 1912, sýnir Malewitsch í fyrsta skipti abstrakt, kúbískt málverk á sýningum í Moskvu og Skt. Péturs- borg Rússland var á þessum tíma í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.