Morgunblaðið - 14.04.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.04.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLApiÐ FQSTUDAGyfi 14^^^,1989 B 3 að setja þá í mold. Ekki er ráðlegt að stinga þeim í vatn því þá kunna þeir að skjóta rótum og það getur verið slæmt vegna þess að ræ- turnar kunna að skemmast þegar þær eru settar niður. Ef gróðursetja á runna er best að gera það á vorin. Þegar búið er að útbúa holu er gott að blanda húsdýraáburði saman við moldina undir runnanum og gæta þess að vökva mjög vel fyrst á eftir. SUMARBLÓM Það er enn hægt að sá fræjum inni og setja út í glugga ef rækta á sumarblóm en stjúpum þyrfti þó að vera búið að sá núna. Nauðsyn- legt er að vanda valið á mold og er fáanleg sérstök mold fyrir sán- ingu. Fræin eru sett yfir moldina þegar búið er að strá henni í bakka eða potta og að því loknu er hent- ugt að þekja með fínum vikri. Það þarf að gæta að því að moldin þorni ekki. Þegar að því kemur að græn lauf birtast má færa bakkann þar sem er lægra hitastig. Það er ágætt að hafa fræin við stofuhita framan af en færa þau svo í um það þil 15 gráðu hita. Næg birta þarf að vera en það er mikilvægt að hitinn sé ekki of mikill. Mygla er merki um ofvökvun." - Hvenær má planta út? „Sumarblómin þarf að hafa inni þangað til veður er orðið sæmi- legt. Oft er júnímánuður notaður til að setja plönturnar út en iðulega er hægt að byrja að venja þær við í maí. Þá eru þær settar út í nokkra daga en kippt inn á nóttunni. Ef blómin eru sett beint út án þess að fá að venja sig við getur farið svo að þau bláni upp og þá stöðv- ast vöxtur þeirra. Best er að hafa reiti úti í garði með glugga yfir og setja blómin þá fyrr út en ella." INNIPLÖNTUR Ólöf segir að það fari hver að verða síðastur að umpotta því gróður fari að taka vaxtarkipp. „Ef skipta á plöntum niður í fleiri er þetta rétti árstíminn. Það er um að gera að fara að gefa áéurð og klippa plöntur til ef þær þurfa þess með. Rytjulegar plöntur má jafnvel klippa alveg niður og láta bara fimm til tíu sentimetra staut standa uppúr." grg Úr gráðosts- afgangi Úr gráðostsaf- göngum má laga góð- an smurost. Látið gráðostinn í pott og dálítinn rjóma. Þegar farið er að hitna í pott- inum er gott að merja ostinn með kartöflu- mosaranum og hræra ost og rjóma saman. Þetta verður ágætis smurostur. Ljósmynd/Odd Stefán Þórisson. Fréttaljosmyndun áhugaverðust SEGIR LJÓSMYNDARINN ODD STEFÁN ÞÓRISSON Odd Stefón Þórisson er 29 óra Njarðvíkingur. Fyrir skömmu hlaut hann 2. verðlaun fyrir Ijósmyndir sínar ó sýningu sem Félag atvinnuljósmyndara í Rhðne- og Alpahéruðunum í Frakklandi stóð fyrir í Lyon. Odd Stefón útskrifaðist með BS, gróðu í Ijósmyndun fró tækniskólanum Societé d'enseignement de Rhðrte í Lyon síðastliðið sumar en starfar nú við landmælingar hjó Islenskum aðalverktökum. Odd Slefán, hverskonar sýning var þelta? ' „Það voru starfandi Ijósmyndarar í Rhðne- og Alpahéruðunum sem stóðu fyrir þessari sýningu. En hún er hugsuð sem kynning ó þeim sem eru að Ijúka prófum úr Ijósmyndaskólum í þessum héruðum. Nemendur eru valdir eftir einkunnum, I -2 fró hverjum skóla, alls tuttugu manns. Takmarkið er að finna hæfileikafólk og tengja það við atvinnulífið. Það ótti að senda inn ótta myndir sem skiptust í fjóra flokka,- portretljósmynd- ir, stúdíómyndir, arkitektúrljósmyndir og frjólst mótíf." Af hverju fórslu í Ijósmyndun? „Ahuginn vaknaði eftir að ég kom til Frakklonds. Eg ætlaði upphaflega í verkfræði og byrjaði í Hóskólanum hér heima, en það ótti ekki við mig. Eg ókvað oð fara í nóm til Frakklands og þurfti þó að byrja ó að fara í frönsku. Eftir eitt ór í Mont- pellier fór ég til Lyon og var þar ófram í frönsku í eitt ór við Université Catholique. Ég tók tækninóm með en hætti í því þegar ég byrjaði ! Ijósmyndun- inni." Hverskonar skóli er þetta sem þú varst í? „Skólinn er tækniskóli sem sérhæfir sig í öllu því sem snýr að byggingaiðnaði. Ljósmyndadeildin er langyngst. Nómið er tæknilegt og mikil óherslo lögð ó t.d. efnafræði, stærðfræði og Ijósfræði, sem er hluti af eðlisfræðinni. Ég trúi því að góð tæknileg kunnótta sé Ijósmyndaranum nauðsynleg til að gera honum kleift að tjóð sig til hlítar. Það voru teknar fyrir allar tegundir Ijósmyndunar og mikill tími fór í stúdíó-vinnu, framköllun og stækk- un ó verkefnum. Það eru fjögur stúdíó í skólanum sem maður hafði alltaf aðgang að og framköllunar- herbergi fyrir bæði svart/hvítar myndir og litmyndir. Nómið tekur þrjú ór og ó síðasta órinu er maður í starfskynningu. Ég vann einn mónuð ó dagblaði sem heitir lyon Matin. Það var mjög lífllegt og vinnan fjölbreytt. Fréttaljósmyndun er það sem ég hef- mestan óhuga ó.“ Hvernig er að búa í lyon? „Það er mjög gott að vera í Lyon. Borgin er líklega einna þekktust fyrir matargerðarlist enda eru þarna frægustu og bestu veitingahús í Frakklandi. Svo er Lyon mjög vel staðsett enda eru borgaryfir- völd í þv! núna að kynna hana. Genf er í innan við 200 kílómetra fjarlægð, það er stutt niður að Miðjarðarhafinu, upp í Alpana og yfir til italíu. Og tiltölulega stutt til Spónar og Parísar. En mengunin í Lyon er mikil. Hún er af völdum verksmiðja sem eru skammt utan borgarinnar. Þær eru undarlega staðsettar þar sem Lyon er niðri! dal, svo meng- unin grúfir alltaf yfir. Ég fann sérstaklega fyrir því þegar ég kom út núna fyrir sýninguna." Vióurkenningin, auóveldar hún þér ekki aö fá vinnu í Frakklandi? Eöa hefuröu kannski engan áhuga á því? Jú, ég gæti vel hugsað mér það, en það er erfitt fyrir útlendinga að fó at- vinnuleyfi. Þeir gefa manni það ekki þó svo oð einhver vilji róða mann, því at- vinnuleysið er svo mikið. Fyrirtæki geta róðið mann en komist það upp að þeir séu með ólöglegan mann í vinnu þurfa þeir að greiða 250.000 króna sekt. Éina róðið væri líklega að giftast einni franskril En svo langar mig lika til að vera heima." Þú starfar við landmælingar. Hefurðu ekkert reynt aö fá vinnu sem Ijósmyndari hér heima? „Ég hef ekki sótt um neins staðar. Ekki ennþó. En ég hef aðeins tekið myndir fyrir Islenska aðal- ' verktaka. Ljósmyndir geta verið mjög gagnlegar þegar unnið er við framkvæmdir. Þær geta komið að gagni við samningagerð, ef verkinu seinkar og hjólpað þeim sem sitja inni ó skrifstofu að fylgjast betur með framkvæmdunum." Munurinn á því aö læra Ijósmyndun í listaskóla og tækniskóla. Hver er hann? „Það er mikill rígur ó milli þessara skóla. I lista- skólunum er óhersla lögð ó tjóninguna, en Ijósmynd- arinn er samt auðvitað alltaf að tjó sig. I rauninni tekur hann myndir af sjólfum sér ! hvert skipti sem hann tekur mynd. Það er því mikilvægt að nó kon- takt við myndefnið, manneskjuna, ef það ó að takast að nó fram persónueinkennunum. Blaðaljós- myndarar sem oft hafa lítinn tíma til umróða verða þv! að geta verið fljótir að mynda samband við fólk. En tæknin er grundvöllurinn. Myndin verður ekki til ón hennar. Annars er oft sagt að maður eigi að gleyma tækninni þegar maður er búinn að læra hana. Og Ijósmyndarar sem eru komnir með sinn eigin stíl hætta að hugsa um tæknina." Hvað finnst þér um aöra Ijósmyndara? „Þeir Ijósmyndarar sem eru hlédrægir og tvístígandi, oftast eru þeirra myndir bestar. En þeir sem eru hóværir, eða tala mikið, þeirra mynd- ir eru oft þreytandi." Hvert finnst þér vera hlulverk Ijósmyndunar og hver er tilgangurinn? „Hlutverk Ijósmyndunar er að fó fólk til að skilja hvort annað og um leið að skilja sjólft sig. Tilgang- ur hennar er að fanga augnablik sem eru í raun- inni ekki til." Morgunblaðið/Júlíus Viðtal.-Margrét Elísabet Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.