Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989 Einar Hákonarson Sérfræéinga- valdié í myndlist Undirritaður átti þess kost að hlusta á nokkrar listvitrar mann- eskjur tala um list og listgagnrýni einn sólríkan föstudagsmorgun fyrir stuttu í Norræna húsinu. Var þar um að ræða upphaf á dagskrá sem Norræna húsið stóð að með stuðningi Menningarsjóðs Norður- landa og ýmissa annarra norr- ænna stofnana. Aundanfömum árum hefur útskrifast fj'öldinn allur af allskonar fræðingum á sviði lista og stofnaðar hafa verið menningarstofnanir víðsvegar um Norðurlönd til þess að auka skilning á hinum ýmsu menn- ingarsvæðum innan þeirra. Megin hluti þeirra peninga sem veittur er til samnorrænna verkefna, hefur farið til þessara stofnana og fræðinga af ýmsu tagi tengdum þeim. Þetta væri svo sem allt í lagi ef einhver árangur væri af starfí þeirra, en því miður hefur manni oft fundist að norrænar ráðstefnur um menningu séu takmark í sjálfu sér, gerðar til þess að fullnægja ferða- og fundargleði þeirra, sem að þeim standa. Það er til dæmis sorglegt hvemig komið er fyrir norrænu myndlistarsýningunum sem haldnar voru hér á árum áður þegar myndlist- armenn sjálfír réðu gangi mála í gegnum Norræna listabandalagið, þær lögðust af. Nú sér sérfræðingavaldið á Nor- rænu myndlistar-miðstöðinni í Svea- borg um allt norrænt sýningarhald og fær til sín fjármagnið sem til slíks er úthlutað. Einnig er eitt peningum í rit eitt sem stöðin gefur út með tilheyrandi ferðalögum ritnefndar, einn frá hveiju landi, sem hlýtur að kosta mikið. En það versta er að blaðið er hrútleiðinlegt, og fáir lesa það. Það ætti að leggja þessa mið- stöð niður sem fyrst eða breyta henni í venjulegt norrænt hús fyrir Finna og láta myndlistarmennina sjálfa sjá um sýningamar. Þá fengjum við a.m.k. að sjá eitthvað annað en það sem hefur verið sett á mælistiku al- þjóðahyggju sérfræðingaveldisins. Vonandi lesa einhveijir ráðamenn þetta og fínna sinn vitjunartíma í því að fá þessu breytt, því þó vel hafí verið meint í upphafí hefur þessi listamiðstöð alls ekki náð tilgangi sínum. Þar fer forgörðum mikið fé, sem nýta mætti betur. Sá hluti ráðstefnunnar sem ég hlustaði á fjallaði um myndlist. Máls- heflandi var frú Else Marie Buk- dahl, listsagnfræðingur og rektor Listaakademíunnar í Kaupmanna- höfn. Hún flutti langt mál um það sem hún kallaði hlutverk listgagnrýni sl. tíu ár, þó að mestur hluti máls hennar fjallaði um sögulegan bak- grunn myndlistargagniýni. Síðan fékk maður að heyra enn einu sinni staðlaða skilgreiningu á alþjóðlegum lista- stefnum samtímans. Næstur talaði Norð- maðurinn Hans Jakob Brun, listsagnfræðing- ur og forstöðumaður Ósló kunstforening og Bergens-kunstforen- ing. Hann hefur skrif- að myndlistargagnrýni í Dagblaðið í Osló og sagði meðal annars frá reynslu sinni af því, sem að hans sögn var ekki alltaf auðvelt. Síðastur af frummæ- lendum var Tryggvi Ólafsson listmálari, sem búsettur er í Kaupmannahöfn. Hann hafði safnað saman nokkrum punktum um það hvemig er að fá á sig gagnrýni, vegna þess að honum hafði verið boðið á þessa ráð- stefnu. Margar at- hugasemdir hans voru réttmætar og settar fram á áheyrilegan hátt. Nokkrar umræður spunnust síðan áfram undir stjóm Bjöms Th. Bjömssonar listsagn- fræðings, en fengu heldur snubbóttan endi þar sem ekki var fjall- að um ýmis atriði er snerta skrif og umíjöll- un um myndlist í fjöl- miðlum. En það var ef til vill af hagnýtum ástæðum að umræð- umar urðu ekki lengri, efni í fleiri samnorræn- ar ráðstefnur verður að vera fyrir hendi og því óskynsamlegt að eyða öllu púðrinu strax. Það er kannski skrítið að maður sem reglulega fær á sig gagmýni skuli setjast niður og skrifa nokkurs- konar gagnrýni á gagnrýnendur. Þeir em óvanir því. Um hinn vestræna heim hefur komið fram ný stétt manna, listsagn- fræðingar sem nú um stundir hafa náð fmmkvæðinu af myndlistar- mönnum. Varla er til sá póstur, hvort sem um er að ræða gagnrýnenda- starf, listasafn eða listaskóla að þar sé ekki í forsvari listsagnfræðingur sem mótar stefnuna. Hér á landi hefur fjölgað mjög störfum ætluðum listsagnfræðingum. Á sama tíma er lítið gert af opinbemm aðilum til styrktar sjálfstæðri myndlistarsköp- un._ í raun geta íslenskir myndlista- menn ekki stundað listsköpun sína án þess að stunda aðra vinnu eða aðlaga sig markaðnum, sem lítið vill annað en natúralisma í landslags- formi. Listamennimir sjálfir em sem sagt algjört aukaatriði, annað en að vera peð í leiksýningum listsagnfræðing- anna. Þeir fá völd til að ákveða hveij- ir fái að vera með á sýningum, þeir sjá um innkaup á listaverkum og þeir era settir í það að búa til sýning- ar og hengja myndir í söfn. Nú er það svo að innan hinnar nýju stéttar verða til sjömulistsagn- fræðingar sem gefa tóninn um hvað sé frambærilegt eða ekki og allir hinir minni spámennimir, hvort sem þeir em á íslandi eða annars staðar reyna að fylgja eftir með þeim árangri að það er sama hvert litið er, öll nútímalistasöfn em að verða eins. í litlum samfélögum eins og okkar verða tískubylgjur í listum mjög áberandi og fær fátt náð fyrir augum hinna ráðandi listsagnfræðinga hér á landi annað en nýjustu eftirapanir úr alþjóðlegum listatímaritum. Þetta gengur orðið svo langt að svokölluð nútímalist verður að ríkjandi aka- demisma og þykir ýmsum skrýtið. Því miður era margir myndlistar- menn það ósjálfstæðir að þeir þora ekki annað en að taka þátt í leiknum af hræðslu við að vera útskúfað af nýju stéttinni, sem öllu ræður. Þær úttektarsýningar sem Listasafn ís- lands og Kjarvalsstaðir keppast um að halda á seinni tímabilum íslenskr- ar myndlistar hafa ekki náð til al- mennings. Bæði er að ekki er nógu langt um liðið frá því hlutimir vora gerðir og ekki hefur verið lagður nægur undirbúningur í þær. Mikils misskilnings gætir meðal almennings um menntun listsagn- fræðinga, enda stuðla þeir sjálfír að þessum misskilningi með því að kalla sig listfræðinga, alvitra á alla list. En sannleikurinn er sá að þeir læra sögu og sem sagnfræðingar hafa þeir nokkra þekkingu á Evrópskri myndlistarsögu. í þeirra námi erlend- is er ekki Ijallað um íslenska mynd- listarsögu. Þeir em ekki hæfari en hver annar til þess að meta list nút- ímans enda byggist þeirra röksemda- færsla á hugmyndum komnum beint frá áðumefndum stjömulistsagn- fræðingum. Geti þeir ekki tengt hugsanir sínar ýmsum erlendum list- stefnum og formúlum verða skrif þeirra heldur rýr. Annars er mín skoðun á gagnrýni sú að hún sé sjálfstæð sköpun þess er skrifar hana. Þegar best lætur er hún sjálfstæð listsköpun og segir oftast meir um þann er skrifar, en þau verk sem um er ijallað. Hún á fyllilega rétt á sér sé hún vel skrifuð og af heilindum, laus við þá rætni sem oft einkennir skrif um myndlist og myndlistamenn á íslandi. Maður fær oft á tilfínninguna þeg- ar lesin er gagnrýni hjá sumum gagnrýnendum hér á landi að þeir skrifí fyrir mjög þröngan hóp vina og kunningja eða pólitíska samheija. Orðalagið er fyrir ofan skilning hins venjulega manns, kannski til að slá um sig og slá ryki í augu fólks og auka með því gloríu og mikilvægi sérfræðikunnáttu sinnar. Mál er að linni. Frsðingur fsðist Kvikmyndir oggagnrýni EKKI í HÁVEGUM Gagnrýnendur horfa á myndina í tvo tíma og eyða, efþú ert hepp- inn, öðrum tveimur í að skrifa um hana. Þeir slá fram ótrúlegvm staðhæSngum, einfalda hryllilega og eru svo undrandiáþvíafhverju fólk eins og ég er að æsa mig. Alan Parker, kvikmyndaleikstjóri. Ég hefði áttaðgagnrýna kvikmyndir, éta poppkom og rugla aldr- ei hárinu. Ævintýrablaðakonan Brenda í Myndasögum Morgxmblaðsins. I bíómyndum er iðulega annað hvort gert gys að kvikmynda- gagnrýnandanum eða hann er drepinn á hroðalegan hátt. Alan Parker lýsir honum sem vitleysingi og hann er brandarinn i myndasögum. A ráðstefnu um list og listgagn- rýni í Norræna húsinu fyrir skömmu dró norski kvikmynda- gagnrýnandmn Dan Tagesen upp dökka mynd af stöðu gagnrýnand- ans í heimalandi sínu, mynd sem á vel við hér á landi eins og fundar- stjórinn, Ingólfur Margeirsson rit- höfundur, var fljótur að benda á; starf kvikmyndagagnrýnandans nýtur lítillar virðingar miðað við aðra gagnrýnendur. Lifandi myndir eru ekki teknar alvarlega miðað við leiklist og bókmenntir og þó em lifandi myndir fyrir augunum á fólki í marga tíma á degi hveijum og það innbyrðir þær að mestu gagn- rýnislaust. Kvikmyndagagnrýnina skortir hefðir, sagði Tagesen, það vantar nægilega umfjöllun, það vantar vettvang fyrir umræður, það vantar kvikmyndaskóla, það vantar að meta starf kvikmyndagagnrýn- andans til jafns við aðra. Norðrið á engar stjömur á sviði kvikmynda- gagnrýni sem hægt er að lesa og læra af — enga Pauline Kael. Allt fylgir þetta því hvemig kvik- myndin er metin sem listgrein og hún virðist ekki vera höfð í háveg- um í Noregi, á íslandi og miklu víðar — nema hún sé innlend. Fjöl- miðlar líta varla á innfluttar kvik- myndir sem list til jafns við innlend- an tónlistarflutning, leiklistampp- færslur og bókmenntaskrif og ef um mjög listrænar bíómyndir er að ræða á annað borð (við fáum ekki mikið af þeim hingað) er það inn- flutt list og ekki eins fín. Fyrir utan það nú að massalist er ólist. í framsöguræðu sinni, Ögmn og ábyrgð, tók sænski gagnrýnandinn Jurgen Schildt öllu heimspekilegri pól í hæðina og velti fyrir sér spurn- ingum eins og hvort gagnrýnin væri dauð eða hvort hún næði nokk- umtíman takmarki sínu? Og ef kvikmyndagagnrýnandi ber yfirleitt einhveija ábyrgð, gagnvart hveij- um þá? Listinni? Lesandanum? Sjálfri sér? Verður ekki að gera þá kröfu að hún sé fyrst og fremst samkvæm sjálfri sér? Það er ekkert til sem heitir að vera hlutlaus. Lista- maðurinn er hlutlægur þegar hann býr til list sína og af 'hveiju ætti gagnrýnandinn ekki að geta verið það líka? Finnski rithöfundurinn og kvik- myndagerðarmaðurinn Jöm Donn- er tók undir orð Schildts um hlut- lægnina í framsöguræðu sinni og sagði að sér virtist sem innlendar myndir á Norðurlöndum mættu meiri skilningi gagnrýnenda en aðr- ar af því þeir þekkja betur til þeirra. Við lifum í litlum samfélögum og samgangur er mikill á milli þeirra sem gera myndir og þeirra sem skrifa um þær en líka er það svo að þegar gagnrýnendur skrifa um myndir frá heimalandi sínu hafa þeir meiri skilning en aðrir á að- stæðum, umhverfi, bakgranni, sögu °g þjóðháttum. Gagnrýnendur í öll- um löndum em bundnir af sinni menningu. Fólk leggur mismunandi skilning í myndir eftir því hvar það býr og þess vegna er gagniýni af- stæð. Það er alltaf talað um að bió- myndir skiljist um allan heim, þær séu á heimsmáli, en það er ekki rétt, sagði Donner og tók dæmi af vissri tegund japanskra mynda sem byggja á fomum japönskum hefð- um sem hann t.d. ætti erfitt með að setja sig inní. Síðustu framsöguræðuna hélt Láras Ýmir Óskarsson kvikmynda-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.