Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FOSTUDAGUR 19. MAI 1989
Þegar ákveðið hefur verið að fá sér reiðhjól, er ráðlegt að
hugsa sinn gang áður en rokið er af stað inn í næstu reið-
hjólaverslun og fest kaup á fyrsta hjólinu sem á vegi manns
verður. Úrvalið er mikið og því um að gera að byrja á því
að kanna vei hvað hentar þörfum manns best. Það getur
verið gaman að eiga gott reiðhjól, rétt eins og góðan bíl.
En það má kannski segja að hið sama gildi um þetta tvennt:
Verð og gæði fara saman.
Það sem ræður úrslitum um val á reiðhjóli er hverskon-
ar hjólreiðar maður ætlar að stunda, hversu mikið fé mað-
ur hefur milli handanna og hvaða stærð af reiðhjóli maður
þarf.
Það er því hyggilegt að gera smá
könnun áður en peningarnir eru
reiddirfram. Besta leiðin er að
prófa mismunandi gerðir reið-
hjóla, tala við vini og kunningja
og stauta sig fram úr erlendum
hjólareiðablöðum, ef þau eru fá-
anleg. Þegar þú telur þig hafa
komist að raun um hvað hentar
þér, ætti að vera óhætt að gera
kaupin. Hérá eftirfylgja stuttar
lýsingar á helstu gerðum reið-
hjóla, notkunarmöguleikum,
kostum og göllum, sem kannski
geta oröið einhverjum þeirra að
liði, sem nú eru að hugsa um
reiðhjólakaup.
I flestum reiðhjólaverslunum
fást margar gerðír reiðhjóla. Til
að velja rétt hjói er nauðsynlegt
að gera sér grein fyrir hvar og
hversu mikið maður kemurtil
með að hjóla. í fyrsta lagi er
ágætt að muna að á íslandi er
vindasamt og velja hjól sam-
kvæmt því. f öðru lagi hvort hjóla
á innanbæjar eða utan, í hæð-
óttu landslagi eða á flatlendi,
hvort nota á hjólið í skotferðir
milli húsa, lengri vegalengdireða
í tugkílómetra þolþjálfun.
Hefðbundin götuhjói
Gamla beinsetuhjólið hefur
verið algengasta reiðhjólið hing-
að til. Það vegur frá 14 kílóum
og kostar frá 10—14 þúsund
krónum.
Stell götuhjólanna eru úr stál-
rörum, þau eru með stálbúnaöi,
venjulegum hnakk, uppbognu
eða beinu stýri, bretti og keðju-
hlífum. Bögglaberi er fastur fylgi-
hlutur og oft pumpa, Ijósabúnað-
ur og lás. Vandaðri gerðir eru
gjarnan með búnað úr áli og öllu
léttari en þau ódýrari.
Götuhjólin eru ýmist án gíra,
þriggja gíra eða fimm gíra (inn-
byggðir í afturdrifi). Og yfirleitt
með fótbremsum.
• Þau henta til notkunar í styttri
. ferðir innanbæjar og á flatlendi.
Eru encfingargóð, ódýr, nokkuð
‘ þægileg og óhéð tískusveiflum.
• En nokkuð þung og notkunar-
. möguleikar þeirra takmarkaðir.
* Borgarhjól
Borgarhjólin eru eftirlíking af
* alvöru fjallahjólum. Þau kosta frá
• 17—20 þúsund krónur og vega
. 14—17 kíló. Borgarhjólin er svip-
_ uð hefðbundu reiðhjólunum, en
* hafa sumt af þeim búnaði sem
• notaður er á fjallahjólin, svo sem
. breið dekk.
Einkenni eru stálrör, álgjarðir,
" breið dekk, miðtogsgafalsbrems-
' ur (á sumum), beint stýri, gorma-
• sæti, bretti og bögglaberi.
. Stundum Ijósabúnaður og lás og
þrír, fimm eða tíu gírar.
* Það má hjóla á borgarhjólun-
• um á flestum vegum, en þau
. henta illa utan vega. Notkunar-
# möguleikar þeirra eru nokkuð
* miklir, þau eru endingargóð og
* sæmilega þægileg. Aftur á móti
• er ekki hægt að fara á þeim í
. miklar ógöngur né langar ferðir
og þau eru þunglamaleg.
Ódýr trimmreiðhjól
* Trimmreiðhjólin kosta frá 14 þús-
• undum og vega 15—18 kíló.
. Ódýr trimmreiðhjól eru oftast
soðin upp úr hefðbundnum götu-
* hjólum með bognu stýri og hand-
• bremsum með aukagripi á hand-
. bremsuhandföngum. Þau eru
_ ágæt handa krökkum sem vilja
’ ganga í augun á öðrum krökkum,
* en fullorðnir ættu heldur að velja
. vandaðri trimmhjól eða önnur
. vönduð reiðhjól.
Ódýru trimmhjólin eru úr stál-
•
. Sjá næstu síðu
ÞILSNER
aö sjálfsögðu!
Sjálfsagður drykkur með öllum mat
YDDA F5.36/SIA