Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
B 7
talgallar hjá bömum
Helstu mál- og talgallar
Framburðargallar.
Barnið á erfitt með að segja
ákveðin hljóð, algengast er r, s,
þ, f, ð, g og k.
Stam.
Talstraumur í tali verður sundur-
hogginn og óreglulegur
Raddveilur.
Ef álag á raddböndin verður of
mikið eða rangbeiting á vöðvum
raddbandanna getur raddveila átt
sér stað.
Klofinn gómur/ skarð í vör
Það segir sig sjálft að það verð-
ur erfitt með góðan framburð þar
sem vöðvar í vörum og góm eru
sundurskornir.
Síðast en ekki síst, seinn mál-
þroski sem getur orsakast af
mörgu, til dæmis félagslegum
vandamðlum, heilaskaða, sjúk-
dómum, slysum og skynjunar-
vandamálum.
Að sögn þeirra Hrafnhildar og
Svanhildar er það tvennt ólíkt að
hafa mái- eða talgalla og foreldrar
eru iðulega meðvitaðri um fram-
burðargalla en málskilning. „Það
þarf ekki heldur að reynast' erfitt
að ráða við framburðargalla. Um
málskilning er þessu oft öðruvísi
farið. Börn eru dugleg við að túlka
aðstæður og bendingar og fá
þannig réttu útkomuna úr setning-
unni sem við þau er sögð þó þau
viti í raun ekkert hvað verið er að
segja við þau.
Þegar þau síðan fara í skóla án
þess að hafa fullnægjandi mál-
skilning geta risið upp erfiðleikar.
Börnin fá boð og fyrirskipanir frá
kennara og skilja ekki vegna þekk-
ingarskorts á hugtökum um af-
stöðu, stærð, fjölda, form og lög-
un. Þau verða óörugg og kíkja á
hjá sessunaut sínum. Þetta er
hægt að koma í veg fyrir með
réttri þjálfun bæði heima og heim-
__ II
an.
- Hvenær kemur málgalli í Ijós
hjá börnum?
„Algengasta tímabilið er frá
þriggja og upp í fimm ára.“
- Fylgjastmál-ogtalgallarað?
„Það er nokkuð algengt að börn
með lélegan málskilning séu með
talgalla."
Haldið þið að mál- og talgallar
fari vaxandi?
„Það er nokkuð erfitt að segja
til um það því fleiri eru starfandi
við greiningu í dag en fyrir nokkr-
um árum og þeir vísa foreldrum
með þörn sín í meðferð og þjálfun.
Hinsvegar eru alltof fáir talmeina-
fræðingar starfandi hérlendis og
geta á engan hátt sinnt öllum þeim
börnum er þurfa á aðstoð að
halda."
Þær segja þó að líklega hafi mál-
og talgallar aukist frekar en hitt.
„Það þarf ekki annað en horfa á
þær breytingar sem hafa átt sér
stað í þjóðfélaginu undanfarin ár.
Börnum er boðið upp á myndrænt
efni í vaxandi mæli, myndabækur
og nú er það sjónvarpið og mynd-
böndin sem eiga stóran hluta af
degi barnsins. Það má segja að
börnin heyri orðið með augunum.
Foreldrar vinna tíðum úti allan
daginn og á kvöldin gefst kannski
ekki nægur tími tl að setjast niður
með barninu og spjalla við það um
heima og geima.
Það hafa engar vísindalegar
rannsóknir verið gerðar á þessum
málum heldur er þetta meira eitt-
hvað sem þeir hafa á tilfinningunni
sem vinna með börn.“
- Hvernig geta foreldrar örvað
barnið sitt?
„Spyrja barnið spurninga sem
krefjast langra svara, hvernig?
hvenær? af hverju? hvers vegna?
og svo framvegis. Það þarf að sýna
því áhuga þegar það talar og ræða
við barnið um það sem er að ger-
ast í nánasta umhverfi þess.“
Þær Svanhildur og Hrafnhildur
segja að skilyrði fyrir því að örvun
komi að gagni sé að sá sem vinn-
ur með barnið geti sett sig inn í
reynsluheim þess. Það er nauð-
synlegt að gera sér grein fyrir mik-
ilvægi umræðna um daglegar at-
hafnir í lífi barnsins eins og hvers
vegna burstum við tennurnar? Af
hverju þarf að þvo fötin?
Einnig þegar farið er út að vekja
áhuga barnsins á umhverfinu, árs-
tíðinni, birtunni, blómum og fleiru.
Barnið má örva með umræðu
um fjölskyldu og umhverfi, eitt-
hvað sem tengist því tilfinninga-
lega,“ segja þær Svanhildur og
Hrafnhildur að lokum.
grg
í actacyd léttsápan
fyrir viokvæmanúá!
Ungböm hafa viðkvæma húð sem verður fyr-
ir mikilli ertingu, t.d. á bleiusvæði. Þvottur
með Lactacyd léttsápunni dregur verulega
úr kláða og sviða.
Húðin er í eðli sínu súr og er það vöm hennar
gegn sýklum og sveppum. Þetta þarf að hafa
í huga við val á sápu.
Mikilvægt er að eðlilegt sýmstig húðarinnar
raskist ekki við þvott. „Venjuleg" sápa er
lútarkennd (hefur hátt pH-gildi, 10-11) og
brýtur niður náttúmlega vöm húðarinnar.
Lactacyd léttsápan hefur hins vegar lágt pH-
gildi (3,5) eins og húðin sjálf og styrkir því
eðlilegar vamir hennar.
Það er því engin tilviljun að margir læknar
mæla með Lactacyd léttsápunni fyrir ung-
böm og fólk með viðkvæma húð.
Þegar Lactacyd léttsápan er notuð á ungböm
skal þynna hana með þremur hlutum vatns.
Lactacyd léttsápan fæst í helstu stórmörkuð-
um og að sjálfsögðu í næsta apóteki.
'v
«i*i —• I-étlsápii