Morgunblaðið - 02.06.1989, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDÁGUR 2. JÚNÍ 1989
Ferðalög
Veitingahús og barir
í London og París
ítalskir sjávarréttir
í London
Jafnvel þó veitingastaðurinn
The Waterfront við Chelsea
Harbour í Lundúnum líkist einna
helst ófullgerðri leikmynd í kvik-
mynd utan frá séð, þá á slík lýs-
ing ekki við þegar komið er inn
fyrir. Staðurinn er nýtískulegur
og snotur að innan með útsýni
yfir höfnina. Á sumrin er borðun-
um komið fyrir á stórri verönd
sem nær alveg niður að ánni.
Eins og nafnið gefur til kynna
sérhæfir staðurinn sig i sjávar-
réttum, matreiddum að ítöskum
hætti. Þar eru líka tveir barir frá-
teknir handa þeim sem aðeins
vilja fá sér í glas með nokkrum
ostrum. The Waterfront er við
Harbour Yard, Chelsea Harbour,
SW 10 London og símanúmerið
er 352.4562.
Næturlífið á
The Dive Bar
The Dive Bar er lítill bar í tveimur
kjöllurum, þessa stundina vin-
sæll af lista-, húsgagna- og tísku-
hönnuðum, sem sitja í kringum
formika borðin og láta sig
dreyma um frægð og frama. Um
helgar er þarna allt troðið af fólki.
Skífuþeytarinn Earl Gateshead
spilar bæði gamla tónlist, be-
bop, jass og fönk tónlist áttunda-
áratugsins. Allt fer þetta vel við
innréttingarnar. The Dive Bar er
opinn frá mánudegi til laugar-
dags frá 17.30 til 23 og á sunnu-
dögum frá hádegi til kl. 15 og frá
19 til 23. Hann er staðsettur í
kjallaranum við King's Head 48,
Gerrard St., W 1 London. Síminn
er 437.5858.
Breskar nýlendur
í Mýrarhverfinu í París var
nýverið opnaður staður þar sem
innréttingarnar flytja mann í hug-
anum til breska nýlendutímans.
Þarna eru bleikir veggir, grænar
jurtir, indversk antík og 19. aldar
húsgögn. í þessu andrúmslofti
eru bornirfram „ensk-indverskir“
réttir. Morgunverðurinn er Ijúf-
fengur og notalegt í te tímanum
eins og hjá Bretum. Þarna er
salur fyrir þá sem ekki reykja og
breskur klúbbur í kjallaranum.
Lokað á mánudögum, en annars
opið til kl. 23. A sunnudögum
er morgunverður framreiddur frá
kl. 11 til 18. British Colonies er
við 40, rue Vielle du Temple í
fjórða hverfi í París. Síminn er
42.72.40.96.
Hreyfing
er nauðsynleg
1. Líkamsæfingar eru jafnvel
veigameiri þáttur í megrun en
fækkun hitaeininga. Megruna-
rkúr dregur aðeins úr fitu og
minnkar vöðva, en líkamsþjálfun
hjálpar til að losna við fitu um
leið og vöðvar styrkjast.
2. Reglulegar líkamsæfingar
halda fólki ungu lengur. Frá 30
ára aldri minnkar hæfileikinn til
að vinna súrefnið úr loftinu um
1% á ári. Líkamsæfingar draga
úr þessari þróun. Æfingarnar
halda viðkvæmum liðamótum
liðugum og styrkja stoðkerfið.
3. Hitaeiningar brenna ekki
aðeins hraðarvið líkamsæfingar
heldur brenna þær í allt að 48
klukkustundir eftir æfingarnar,
að sögn sumra sérfræðinga.
4. Líkamsæfingar byggja upp
og viðhalda beinum — sem er
nauðsynlegt til að draga úr
hættu á beinrýrnun síðar á
ævinni.
5. Líkamsæfingar í tólf mínut-
ur eða fleiri á dag draga úr löng-
un í mat. Sú staðreynd gengur
þvert á þá kenningu að miklar
líkamsæfingar verði til að auka
á hungurtilfinningu. Æfingarnar
geta því hjálpað fólki í megrun
við að hafa hömlur á matarlist-
innni.
— Úr Woman's Day
M. Þorv
1
4
;
4.V
!
c ;;
r_ ■■;
Framboðið er
ótakmarkað.
Indverskirokk-
urlitir, indígó
liturfrá
Kólombíu og
maskari frá
Ankara. Það er
endalaust hægt
að kaupa snyr-
tivörurog vera
jafnframt nátt-
úruleg í útliti.
Því að nú er í
tísku að vera
með farða sem
„erenginn
farði“.
Hverju Ijóstrar
hálsinn upp um þig?
„Skítugir skór segja mér heil-
mikið um eigandann" sagði eitt
sinn maður sem var að ráða fólk
í vinnu. „Þegar ég hef virt fyrir
mér skó umsækjandans virði ég
fyrir mér hendurnar. Ef viðkom-
andi er líka skítugur undir nöglun-
um get ég kvatt hann samstund-
is.“
En skyldi þessi atvinnurekandi
í miðbænum hafa velt því fyrir
sér hvernig háls umsækjandans
væri í laginu? í nýlegu bresku
tímariti er vitnað í franskan lækni
sem segir að ýmislegt megi lesa
af því hvernig háls fólk hafi. Ekki
þorum við að ábyrgjast sannleiks-
gildi þessa en látum þetta til gam-
ans fljóta hér með.
Fínlegur háls bendir til yfir-
burða. Stuttur, feitur háls þýðir
að viðkomandi er ástríðufullur en
langur og mjór háls gefur til
kynna jafnlyndi. Línur á hálsi
koma upp um eigandann líka. Ef
á hálsi eru margar láréttar línur
gefur það til kynna að um mjög
Ijúfa manneskju sé að ræða.
Fólk sem ber höfuð hátt er
stolt og öruggt með sig en ef
fólk ber höfuð það hátt að auð-
veldlega rigni upp í nefið fer í
verra. Þá er það merki um frá-
hrindandi persónuleika sem telur
sig betri en aðra. Halli fólk iðu-
lega undir flatt er það feimið.
Þá vitið þið það!
Leiðrétting
Á miðopnu Daglegs lífs í síðustu
viku voru birtar myndar af munum
nokkurra íslenskra gullsmiða og
sagt frá þeim. Rangt var farið með
nafn föðurs Sigurðar G. Steinþórs-
sonar, en hann hét Steinþór Sæ-
mundsson, gullsmiður.
Einnig var sagt að Félag
íslenskra gUllsmiða hafi verið
stofnað 24. október 1924 en það
ku hafa verið 19. október sama
ár. Daglegt líf biðst velvirðingar á
þessum mistökum.