Morgunblaðið - 06.06.1989, Qupperneq 8
SNOKER
TENNIS / OPNA FRANSKA MEISTARAMOTIÐ
mrniR
Sá „besti“ úr leik!
Ivan Lendl tapaði óvænt fyrir 17 ára Bandaríkjamanni
Reuter
BandaríkjamaAurinn Chang sigraði Lendl eftir að hafa tapað fyrstu
tveimur lotunum . „Eg var tveimur lotum undir og að því kominn að gef-
ast upp. En ég lagði allt ( sölumar (lokin.“
i VAN Lendi, efsti maður á
heimslistanum og þrefaidur
meistari á opna franska
meistaramótinu, er úr leik
eftir tap fyrir 17 ára gömlum
Bandaríkjamanni, Michael
Chang. Tap Lendl kom mjög
á óvart, einkum vegna þess
að hann hafði unnið tvær
fyrstu loturnar.
Lendl byrjaði vel og vann
fyrstu tvær lotumar 6:4. Þá
tók Chang við sér og með gífur-
legri baráttu náði hann að sigra
í þrernur næstu lotum, öllum 6:3.
Undir lokin var Chang gjörsam-
lega uppgefmn og varla að hann
gæti staðið í fætuma sökum
þreytu — en leikurinn stóð yfir í
§órar klukkustundir og 38 mínút-
ur.
Eftir sigurinn gekk Chang
grátandi af vellinum undir dynj-
andi lófaklappi 16.500 áhorfenda.
Hann þakkaði Guði sigurinn og
sagði: „Ég var tveimur lotum
undir og að því kominn að gefast
upp. En ég lagði allt ( sölumar í
lokin."
Lendl tók tapinu heldur illa;
strunsaði af leikvelli án þess að
yrða á nokkum mann og þvertók
fyrir að þakka Chang fyrir leik-
inn. Lendl var reyndar mjög
óhress með áhorfendur, sem hon-
um fannst of hávaðasamir, og þá
þótti honum einnig dómarinn vera
hlutdrægur.
Tvær af helstu stjömum móts-
ins, Bandaríkjamaðurinn Andre
Agassi og argentíska stúlkan
Gabriela Sabatini, töpuðu einnig
og eru því úr ieik. Þeim var báðum
spáð góðu gengi á mótinu, en
féllu fyrir lítt þekktum andstæð-
ingum.
Agassi tapaði fyrir landa sínum
Jim Courier, 7:6, 4:6, 6:3 og 6:2.
Courier, sem var ( sama tennis-
skóla og Agassi, var að sjálfsögðu
í sjöunda himni eftir sigurinn.
„Honum (Agassi) hefur fleygt
fram, en ég hef farið þetta ró-
lega. Það er vissulega erfitt að
ieika gegn vini sínum, en maður
gleymir því strax," sagði Courier.
Hann hefur mjög svipaðan stfl og
Agassi, leikur af miklum krafti
og öryggi.
Agassi var heldur óhress með
tapið, eins og við var að búast,
og sagðist ætla að taka næstu
flugvél heim til að slaka á. Couri-
er var hinsvegar alsæll og gerði
sér vonir um að komast lengra.
Það verður þó erfitt því það eru
engir aukvisar sem eftir eru á
mótinu.
Gabriela Sabatini tapaði fyrir
17 ára stúlku frá Bandaríkjunum,
Mary-Jœ Femandez, 4:6, 4:6.
Femandez lék mjög vel en Sabat-
ini virtist frekar taugaóstyrk. Hún
gerði margar skyssur og var refs-
að fyrir það.
Sabatini mun þó án efa fá verð-
laun á mótinu því hún leikur með
Steffi Graf í tvfliðaleik og þarf
eitthvað mikið að gerast til að þær
sigri ekki í þeirri grein.
Morgunblaöið/Ólafur Þ. Júlíusson
Gary Hill setti heimsmet í snóker á
heimsmeistaramóti unglinga í Hafnar-
Sðri á sunnudaginn.
Hill setti
heimsmet
- náði 147 stig-
um sem er hæsta
skoríeinu stuði
Englendingurinn, Gary Hili, setti
heimsmet í snóker á heims-
meistaramóti unglinga sem nú
stendur yfir í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði. Hann hreinsaði borðið í leik
gegn Gunnari Adam Ingasyni á
sunnudaginn og hlaut samtals 147
stig og er það hæsta skor sem um
getur og ekki hægt að fá meira.
Gunnar Adam byrjaði leikinn og
splundraði kúlunum, en síðan tók
Hill við og hreinsaði borðið. Hann
tók 15 sinnum rauða og svarta
kúlu til skiptis síðan raðaði hann
niður litakúlunum. Þetta er í fyrsta
sinn á heimsmeistaramóti unglinga
sem þessi árangur næst og aðeins
í 10. sinn í heiminum sem keppandi
nær þessu skori á stórmóti.
Til gamans má geta þess að á
heimsmeistaramóti atvinnumanna,
sem fram fór í Sheffíeld í Englandi
fyrri skömmu, var hæsta skor 141.
SUND / NORÐURLANDAMEISTARAMÓT FATLAÐRA
Góður árang-
ur íslenska
sundfólksins
ISLENSKU keppendurnir náðu
góðum árangri á Norðurlanda-
meistaramóti fatlaðra í sundi
sem fram fór f Vestmannaeyj-
um um helgina. Keppendur
voru 80 frá öllum Norðurlönd-
um, þar af 20 íslendingar og
fór mótið í alla staði vel fram,
en sunddeild ÍBV sá um fram-
kvæmd.
Ieinstaklingsgreinum unnu ís-
lendingar til 13 gullverðlauna, 16
silfurverðlauna og 19 bronsverð-
Iauna. Auk þess unnu íslensku
keppendurnir þrenn
FráSigfúsi gullverðlaun í boð-
Gunnarí sundi. Á mótinu
Guðmundssyni voru se^ 22 Norður-
' yjum landameistaramóts-
met — þar af settu íslendingar 5.
Sigrún Huld Hrafnsdóttir vann
til 5 gullverðlauna á mótinu. Hún
sigraði í 400 m skriðsundi á
6:06,19, 100 m skriðsundi á
1:17,26, og 200 m fjórsundi á
3:10,72. Þá setti Sigrún Norður-
landameistaramótsmet í 100 m bak-
sundi á 1:32,23 og 100 m bringu-
sundi á 1:32,92.
Gunnar Þór Gunnarsson, ÍFS,
var einnig afkastamikiil á mótinu,
en hann vann 4 gullverðlaun. Gunn-
ar sigraði í 400 m skriðsundi á
5:20,11, 200 m fjórsundi á 2:50,05,
100 m baksundi á 1:19,91 og 50 m
flugsundi á 32,94. Gunnar setti
Norðurlandameistaramótsmet í 100
m baksundi og 50 m flugsundi. Þá
setti Geir Sverrisson, UMFN, Norð-
urlandameistaramótsmet í 100 m
bringusundi, en hann synti á
1:16,71.
Sigrún Hrafnsdóttir, Gunnar Gunnarsson og Geir Sverrisson stóðu sig vel á Norðurlandameistaramóti fatlaðra í sundi.
Þau unnu öll til gullverðlauna og settu þar að auki Norðurlandameistaramótsmet.
Settu Norðurlandameistaramótsmet
Morgunblaöið/Sigurgeir
GETRAUNIR: 22X 2 X X 2X1 X 1 X
LOTTO: 3 20 21 24 29 +9