Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR! 24. JÚNÍ 1989 B 3 Skelfingin hefur eiH augnablik oröiö hetju- skapnum yfirsterkari. Sam, Pippin og Merrý leita skjóls. Pertti Sve- holm, Jarmo HyHinen og Timo To- formleg. og eru ekki þjál í munni. Það er svo til marks um hæfni leikar- anna að nánast enginn hefur kvartað yfir því að samtölin væru stirð.“ Hellström bætir því við að grínið og gamansemin hafi komið frá leikur- unum á æfingunum. „Nær allir leik- ararnir eru geysilega færir gaman- leikarar og þeir sögðust hreinlega ekki geta leikið af fyllstu alvöru í sex klukkutíma. Við létum sýning- una því ganga töluvert langt í þessa átt og ég tel að það hafi verið rétt, því áhorfendur hafa tæplega úthald í að taka alvarlega sex klukkutíma langa sýningu sem byggð er á hreinu ævintýri.“ „Svo eru auðvitað persónur í verk- inu sem bjóða hreinlega upp á kómíska útfærslu. Eins og Sméagol og Sam. Og við reyndum auðvitað að finna allar leiðir til þess að gera þetta skemmtilegt." Leppákoski skýtur hér inn þeirri athugasemd að Sméagol sé hiklaust orðin vinsæl- asta persóna sýningarinnar og und- irritaður getur hikstalaust tekið und- ir það, því leikarinn Kari Váánánen fer hreint á ótrúlegum kostum í þessu furðulega hlutverki. „Það er einkenni á okkar kynslóð að vondu persónurnar njóta meiri vinsælda en þær góðu,“ segir Láppakoski. Og í beinu framhaldi af því spyr ég hvort þessi afstaða hafi ráðið einhverju um það að ofurhetjan Aragon (sem Kari Váánánen leikur reyndar líka) er dálítið ringluð í hetjuskapnum — ekki alltaf alveg með á nótunum. Sama má segja um töframeistarann Gandálf (Vesa Vierikko), hann á sín augnablik þar sem honum bregst bogalistin og er stórhlægilegur fyrir bragðið. Hellström hlær þegar ég nefni þetta. „Báðir þessir leikarar eru meðal bestu gamanleikara Finn- lands í dag. Þeir sögðust ekki geta leikið þetta allt á eina hlið — góðar hetjur og ekkert annað. Auk þess hefði það verið hrein mannvonska af okkar hálfu að banna þeim að gera þessar persónur fyndnar. Ahorfendur eru líka komnir til að njóta gamanleiks uppáhaldsleikar- anna sinna.“ Leikstjórarnir viður- kenna fúslega að leikarnir hafi átt stóran þátt i að móta yfirbragð sýn- ingarinnar og hinn mannlegi þáttur sögunnar hafi ráðið mestu um end- anlegt andrúmsloft hennar. Litlir strákar verða stórir Eitt af sterkustu einkennum sög- unnar eru hin afgerandi skil milli þess góða og illa og ein af athuga- semdum mínum við leikstjórana beinist að því að þessi átök verða aldrei miðpunktur sýningarinnar. Hið illa nær sér aldrei verulega á Konungssonurinn Faramir heitir Denethor föður sínum aö hefna Boromirs. Perrti Sveholm og Carl-Kristinn Rundman. strik. „Það var ákvörðun af okkar hálfu strax í upphafi að leggja áherslurnar á annan þátt þessarar sögu en beinlínis átökin milli góðs og ills. Það er mjög erfitt að sýna raunverulegan óhugnað af þessu tæi á leiksviði. Iilmenni, skrýmsli og draugar verða aldrei verulega skelfi- leg á sviði. Ég held líka að illskan og hryllingurinn sem viðgengst allt í kringum okkur í raunveruleikanum séu svo mikil að það sé ekki hægt að veita því samkeppni á leiksvið- inu,“ segir Leppákoski. „Auk þess er þetta fyrst og fremst ævintýri. Ef allt er lagt fyrir áhorfandann á leiksviðinu þá er ekkert skilið eftir fyrir ímyndunarafl hans.“ „Við vildum gera úr þessu gamal- dags leikrit — og fylgjum að miklu leyti dramatúrgíu Shakespeares og Molieres þar sem atburðir gerast utansviðs en er lýst af persónum á sviðinu,“ segir Hellström. „í mínum huga er öll þessi saga umgjörð um ekkert," bætir Leppákoski við. „Alveg á sama hátt og hringurinn er umgjörð um ekkert. Það er ekk- ert inn í honum frekar en utan við hann. Hann er einfaldlega hringur. Hið góða og illa og valdið eru afstæð hugtök og mjög erfitt að hlutgera á leiksviði. I rauninni eru þetta innan- tóm hugtök — og hringurinn er tákn fyrir þennan tómleika. Fródó hefur í rauninni ekki náð neinu takmarki þó hann komi hringnum fyrir. Hann hefur hins vegar öðlast skilning á sjálfum sér og er orðinn raunsærri; hann er ekki barn lengur." „Þetta er kannski fyrst og fremst saga um litla stráka sem verða stór- ir. Hobbitarnir eru allir börn í upp- hafi og í lokin hafa þeir glatað hinu barnslega sakleysi sínu. Eg held að Tolkien hafi verið að skrifa sögu um lok bernskunnar og hvernig við glöt- um sakleysi okkar og hæfileikanum til að beita ímyndunaraflinu. Með hringnum líða dvergarnir, álfarnir, tijámennirnir, tröllin og skrýmslin undir lok og maðurinn verður allsr- áðandi á jörðinni. Þessari þróun var líka hægt að ná tökum á í leik- gerðinni og hún er kannski þunga- miðja sýningarinnar. Fródó, Sam, Merrý og Pippin leggja af stað í ferðina miklu og á leiðinni glata þeir sakleysi sínu og snúa heim aft- ur fullorðnir menn.“ Þessi leið að sögunni hefur einnig gefið sýningunni það hlýja, barns- lega og einlæga yfirbragð sem er svo sjaldgæft í leikhúsi nútímans. „Hreinar og einfaldar tilfínningar eru nánast bannaðar í nútímaleik- húsi. Það var mjög erfitt fyrir leikar- ana — sérstaklega karlleikarana að ná þessu stigi bamslegs sakleysis sem var alveg nauðsynlegt til að hobbitarnir yrðu trúverðugir. Við eyddum löngum tíma í upphafi með leikurunum til að ná réttum og eðli- legum tóni í þennan mikilvæga þátt verksins,"1. segir Leppákoski. Og Hellström bætir við að takmarkið hafi verið að gera sýninguna á viss- an hátt barnalega.„Ekki þannig að hún væri eingöngu fyrir börn, heldur á þann hátt að sakleysið og einlægn- in í öllum tilfinningum næðu beint til áhorfendanna." Og undirritaður getur staðfest að þetta markmið hafi svo sannarlega náðst. Því áhorfandi, sem ekki skilur orðin sem töluð eru, verður að reiða sig á tilfinningarnar sem streyma frá leikurunum. Og þegar upp var staðið eftir sex klukkutíma réðu bamsleg gleði og hlýja ríkjum í hjartanu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.