Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 5

Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 5
MORGUNBLAPIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚtyí 1989 B 5 „Liösmenn" Framó óskaplega mikla smáþjóð í ríki þjóða. Utan landamæranna sést fáni þeirra eiginlega aldrei. Samt eru Færeyingar mjög víðförlir. Þú hittir ekki Færeying, sem ekki hef- ur verið annars staðar. Þeir eru í senn algerir heimsborgarar og al- gerir eyjaskeggjar. Og sú sjálfstæð- isbarátta sem þeir hafa farið í gegn- um með sitt tungumál er ekkert lftil. Sú barátta stendur enn. Þeir halda fast í þjóðlegar hefðir og eru allt sem við höldum að við séum. Auðvitað kvarta þeir yfír því, eins og við, að hinn þjóðlegi arfur sé á undanhaldi. En eitt dæmi um hversu fast þeir halda í hefðirnar er, að þeir kenna færeyska dansa í skólum, strax í barnaskóla." Nú er þetta 2. færeyska sýn- ingin sem við fáum að sjá í Þjóð- leikhúsinu hér í vor. Hvað kemur til? „Já, en þetta er í rauninni í fyrsta skipti sem færeyskt leikhús kemur hingað í boði Þjóðleikhússins. Þjóð- leikhússtjóri taldi að fyllilega væri kominn til þess.“ Þú hefur greinilega hrifíst af Færeyingum. Hvað finnst þér við geta lært af þeim? „Það er ansi margt. Ég held að hvergi séu eins margar manneskjur með tónlistarhæfileika - og finna sköpunarþörf sinni á þeim vettvangi útrás. Ég held að hver einasti mað- ur í sýningunni hjá mér leiki á eitt- hvert hljóðfæri. Sömuleiðis er ógrynni af málurum. Við getum sagt sem svo, að sköpunarþörfin sé almenningseign í enn ríkara mæli en hér. Kannski vegna þess að þeir fengu sjónvarp svo seint. Það eru um það bil fimm ár síðan þeir fengu færeyskt sjónvarp. Önn- ur ástæða getur verið hversu stijál- K*lar eyjarnar eru. Fjölskyldubönd- in eru ennþá sterkari en þau eru hér — jafnvel þótt þau séu með sterkasta móti hér. Forsendan fyrir hámenningu og blómlegri atvinnumennsku í listum er sú, að kennsla og leið barna og almennings til að finna þessari þrá sinni einhvern farveg, sé fyrir hendi. Það verða að vera aðstæður til almennrar þátttöku, svo ekki verði menningarleg stéttaskipting. Færeyjar eru kannski eins og ísland var fyrir 20 árum og við ættum að líta meira til þessarar þjóðar, án þess að hafna þróun sem verður hér. Við eigum ekki að hafna því jákvæða í samfélaginu, sem við áttum í sköpun og menningameyslu fyrir fjölmiðlabyltinguna." staka - svona sér á parti? „Við förum ekki þessar viður- kenndu leiðir í listsköpun á íslandi. Ég er t.d. dálítið sér á parti í minni ljóðlist. Ég yrki öðruvísi en þessi geðlausu ljóð sem fá viðurkenningu bókmenntafræðinga. Ómar hefur alltaf verið dálítið sér á parti í mynd- listinni og sérstaklega í gerningun- um. Óskar Thorarensen er allur í nítjándu aldar teikningunum og hann semur einnig tónlist. Svo eru þeir Einar Melax og Örn Ingólfsson einnig með okkur núna. Þetta er hinn núverandi kjarni Inferno 5 en við framkvæmd gerninganna fáum við fólk til aðstoðar við okkur og eru stundum allt að átta manns. Það sem fyrst og fremst gerir okkur sérsinna núna eru sjónleikirnir — gerningarn- ir. Þetta er eins konar þráhyggja því þetta er mikil vinna, engir pen- ingar og miklir andlegir timbur- menn. Grunnhefðin sem við styðj- umst við er upphaf nútímagerning- anna 1909. Það var fútúristinn Mari- netti sem framdi fyrsta nútímagern- inginn og síðar fylgdu fútúristar í Rússlandi og dadaistar í Sviss í kjöl- farið. Þetta er undirstaða okkar þó við séum auðvitað staddir í nútíman- um. Fyrir nokkrum árum gekk tísku- bylgja yfir hér á íslandi í gerningum. Nánast allir myndlistarmenn þurftu að framkvæma gerning og fjölmiðlar gerðu mikið úr þessu. Einkenni á þessum gerningum var hversu létt- vægir þeir flestir voru og oft litið á þá sem einhvern fíflagang. Okkar gerningar hafa þróast út í stóra sjón- leiki þar sem mikil alvara er að baki. Fyrsti stóri gerningurinn okkar nefnist Klumbudansinn sem við höf- um sýnt hér í Reykjavík, á Snæfells- nesi og nú í vor í Kaupmannahöfn. Klumbudansinn byggist fyrst og fremst á sjónrænni skynjun. Hann er nokkurs konar myndlistarverk þar sem ýmsum myndlistargreinum er beitt. Kvikmyndir, skyggnur, mál- verk og risastórar verur sem hreyf- ast á tjaldi. Næsti stóri gerningurinn okkar nefnist Rykdjöflar og við sýndum í Nýlistasafninu í vor og einnig út í Kaupmannahöfn." — Orðið gerningur hefur ákveð- inn framandleika í hugum fólks. Það er gjaman sett í samband við vitleys- isgang og alvöruleysi. Hvers vegna er það? Er ykkur umhugað um að gerningar hafi þetta dulúðuga yfir- bragð í huga almennings? „Nei, alls ekki. Það er okkur ekk- ert atriði að viðhalda slíkum hug- myndum um gerninga. Við viljum gjarnan að fólk skilji hvað við erum að fara í okkar gerningum," segir Ómar. „Við heyrum líka frá fólki að þetta sé svo nýtt og framandi að það þurfi tíma til að átta sig. Það er auðvitað mesta vitleysa því nútímagerninga er búið að stunda í ein 80 ár.“ Þorri bætir því við að hræðsla og skilningsleysi vegna orðsins eins sé ótrúlega mikil víða. „Við sóttum um styrk til mennta- málaráðuneytisins til ferðarinnar með gerningana tvo til Kaupmanna- hafnar í vor. Þeirri umsókn var hafn- að vegna þess að þetta væri nýtt og óreynt listform. Ef við hefðum beygt okkur og sótt um styrk til að fara með „sjónleik" til Danmerkur þá er líklegt að umsókninnni. hefði verið betur tekið.“ „Það þarf líka að gera skýran greinarmun á orðun- um gerningur og gjörningur. Bjorn Th. Björnsson fann upp orðið gern- ingur yfir þetta listform, því gjörn- ingur er fornt íslenskt orð yfír galdra og hefur allt aðra meiningu," segir Ómar. „Gerningur er líka annað en uppá- koma — happening. Við undirbúum okkar gerninga vandiega, skrifum handrit, semjum ljóð, tónlist og myndverk sem verða hluti af gern- ingnum. Uppákoma er hugmynd framkvæmd á augnablikinu sem hún fæðist á,“ segir Þorri. Gerningur eða sjónleikur. Ér þetta ekki bara angi af leikhúsi sem þið eruð að reka þarna? „Nei,“ segir Ómar. „í leikhúsi eru leikarar sem eru lærðir í túlka aðrar persónur en þeir eru sjálfír í raun- veruleiþanum. Þeir þurfa að fram- kalla ýmis konar geðbrigði, grátur, hlátur og þess háttar án þess að þeim séu þessar tilfinningar kannski persónulega í huga. Svona leikur kemur okkar starfsemi ekkert við. Við semjum röð athafna og fólk kemur og framkvæmir þær og það er raunverulega að framkvæma at- hafnirnar á því augnabliki sem gern- ingurinn stendur yfir. Þátttakend- urnir eru þeir sjálfir. Þetta er raun- veruleikaleikhús í staðinn fyrir það blekkingaleikhús eins og viðgengst í hefðbundinni leiklist. Þar samein- ast kannski tugir manna við að sann- færa áhorfendur um einhveija ákveðna blekkingu. Gerningur er enginn blekking, hann á sér stað í tíma og rúmi á þeirri stundu sem hann fer fram. Hann er hér og nú.“ — Nú munu sumir áreiðanlega kalla listsköpun ykkar úrkynjaða — kannski vegna þess að hún er öðruv- ísi en hefðbundin listsköpun. Hveiju svarið þið slíku? „Er ekki öll þróun úrkynjun," spyr Ómar á móti. „Er ekki tungumálið og öll þróun mannsins eins konar úrkynjun frá hinu upprunalega öskri. Það er talað um úrkynjun þegar þróunin stefnir niðurávið. Það er greinilegt að þróunin er frá náttú- runni og það má kalla úrkynjun. Maðurinn er á leiðinni frá náttúr- unni og við erum auðvitað hluti af þeirri þróun. Hvort við stefnum upp eða niður er ekki okkar að svara til um. Við erum að þróa okHar list á þann hátt sem okkur hentar. Við viljum hins vegar vera teknir alvar- lega í okkar list eins og aðrir.“ — Hvers vegna ekki að fara hefð- bundna leið. Mála málverk, yrkja ljóð, halda málverkasýningar, gefa út ljóðabækur og spila inn á plötur? „Fyrst og fremst fáum við ekki næga útrás fyrir okkar tjáningu eft- ir slíkum leiðum og í öðru lagi finnst okkur þetta tjáningarform — gem- ingurinn — hæfa nútímanum betur. Við eru líka alltaf að leita að nýjum leiðum og möguleikum til að sameina okkar listform," segir Þorri. „Þetta er besta leiðin fyrir okkur til að vinna sameiginlega að okkar listsköpun. Við erum búnir að vera í mörg ár að svitna í einrúmi hver í sínu homi. Hefðbundin listsköpun er einmana- legt starf og með þessu móti fáum við útrás fyrir félagsþörf okkar í list- inni,“ bætir Ómar við í lokin. Viðtal: Hávar Sigurjónsson Morgunblaðið/Einar Falur „Útrás fyrir félagsþörf í listinni," segja gerningalistamennirnir Ómar Stefánsson og Þorri Jóhannsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.