Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 6

Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 6
6 B Indíánar ✓ / rnuitar í Þjóðminjasafninu var í gær opnuö sýn- ing sem ber heitið „Fjaðraskúfar og fiski- klær;" farandsýning í tilefni af tíu ára afmæli heimastjórnar á Grænlandi. Sýn- ingin er hingað komin á vegum Norrænu stof nunarinnar í Nuuk á Grænlandi í sam- vinnu við Þjóðminjasaf nið, Norræna hús- ið og Grænlandssjóðinn. Sýningin fjallar um menningu inúíta og indíana og er sett upp hér í tengslum við námskeið í „shamanisma" á vegum Norrænu leiklistarnef ndarinnar. Nlenn- irnir á bak við sýninguna eru þeir Stig Thornsohn og Bo Egelund, frá danska fyrirtækinu Fenris, en það fyrirtæki sér- hæfir sig í uppsetningu sýninga, fram- leiðslu heimildarmynda og -bóka. Ég ræddi við Stig Thornson og spurði hann hvernig þessi sýning hefði komið til í upphafi. G! ! rænlenska heimastjómin | bað okkur að setja upp sýn- ingu í tilefni af tíu ára afmæli hennar. Upphaflega vildu þeir að sýningin fjallaði um framfarir í menntun og iðnaði á Grænlandi. Okk- ur fannst það hinsvegar ekki rétta leiðin til að marka þessi tímamót, sérstaklega það sem það hefur oft verið gert. Við óskuðum eftir því að fá að setja upp sýningu sem gæfi mynd af menningar- sögu Grænlands og tengslum þeirra við menningarhringinn sem inúítar tilheyra í raun- inni. Það eru inúítar í Síberíu, Alaska, Kanada og Grænlandi og tengsl þeirra við indíána eru svo augljós. Janvel þeir inúít- ar sem búa á Thule, nyrstu byggðum jarðar, fluttu þangað frá Alaska fyrir þúsund árum. Þang- að komu þeir frá Ameríku, eins og allar inúítaþjóðir á norðurhveli jarðar. Annað er, að að- staða inúíta er mjög svip- uð aðstöðu indíána í Norður-, Suður- og Mið- Ameríku. Og þetta eru hlutir sem þeir sjálfir vita mjög vel og þessar þjóðir era með starfandi samtök, ICC, sem era samtök inúíta á norð- urhveli og ISI, sem eru samtök ind- íána og inúíta. Tilgangurinn með þessari sýn- ingu er ekki pólitískur — við eram ekki.að rísa upp með krepptan hnef- ann. En fyrir utan það að sýna fram á samband indíána og inúíta, viljum við leggja ríka áherslu á þann þátt sýningarinnar sem segir okkur ótvírætt hvers vegna þessar þjóðir þurfa svo mikið á sjálfstæði að halda. Einn þáttur sýn- ingarinnar er helgaður lagalegri baráttu inúíta fyrir sjálfstæði — og þeirri baráttu sem þeir hafa háð með vopnum, sem þeir hafa vissulega gert líka. Þetta er fyrst og fremst sýning um menn- ingarverðmæti. Við reyn- um að sýna fram á þessi verðmæti á óhefðbundinn hátt. Við stillum ekki upp hlutum, eins og algengt er þegar settar eru um sýningar frumstæðra þjóðflokka í söfnum. Það sem við eram að gera er að setja sögu inúítanna í eitthvert sam- hengi. I staðinn fyrir að kalla sýn- inguna „Inúítar og indíánar“, hefð- um við einfaldlega getað nefnt hana „Indíánar“. Það fer eftir því hvaða línu maður velur að fara. Það eru í rauninni engin rök að baki því að skipta þeim í þessa tvo hópa. í Danmörku höfum við háskólakúrsa í lifnaðarháttum eskimóa og í lifn- aðarháttum indíána. En í rauninni er engin tungmálaástæða fyrir þessari skiptngu. Ekki heldur Bo Egelund og Slig Thornsohn pólitísk eða menningarsöguleg. Við sem berjumst fyrir sjálfstæði þess- ara þjóðflokka, vildum gjarnan sjá þessa kúrsa sameinaða.“ Kemur þessi sameiginlegi menningararfur fram í því hvern- ig þessir þjóðflokkar tjá sig í list- um? „Þarna kemur ein góð ástæða fyrir því að við völdum þessa leið með sýninguna. Þessir þjóðflokkar skilja listina ekki frá lífinu sjálfu — ekki fremur en trúarbrögð sín, menningu og stjórnmál, eins og við gerum hér. Mikill stjórnmála- maður er mikill listamaður, því allir þættir lífsins forma eina heild. In- úítar eru fyrst og fremst veiði- menn; hval- og selfangarar og þeir eiga sér orðatiltæki: „Ef þú veiðir, verðurðu að drepa.“ En ef þú drep- ur dýrið ekki á réttan hátt, snýr sál þess til baka og eyðir þinni sál. Vopnið sem þú drepur dýrið með skiptir líka máli. Ef það er fallegt og ríkulega skreytt, ei-tu að sýna dýrinu sérstakan heiður. Eftir veiði- ferðina dansa Inúítar sérstaka dansa; þeir líkja eftir dýrinu sem þeir veiddu, renna saman við sál þess. Öll náttúran er hluti af heild- arsamhengi og þetta samhengi skiptir öllu máli. Fyrir þeim er allt í hring og við höfum sett sýninguna upp í hring, til að leggja áherslu á þann hugsunarhátt. Fyrir nokkram áram settum við upp mannfræðilega sýningu fyrir Þjóðminjasafnið í Danmörku, en nú vorum við komin að þeim punkti, I - rættviöStig Thornsohn um menningu indíúna og eskimóa þar sem við vildum ekki stilla þeim upp sem sangfræðilegum fyrirbær- um. Við Vesturlandabúar sjáum ind- íána alltaf fyrir okkur sem “úandi“ stríðsmenn í tjöldum. En það búa ekki allir indíánar í tjöldum og við höfum, á þessari sýningu, búið til líkan af litlu indíánaþorpi sem er raunverulega til, til að sýna hvernig þeir búa. En hér fyrir utan Þjóð- minjasafnið höfum við líka sett upp indíánatjald í fullri stærð, til að fólk geti séð hvernig þeir indíánar lifa, sem búa í tjöldum. Við vonum að þetta geti aukið skilning fólks á lifnaðarháttum þeirra. Lifnaðarhættir indíána eru á ýmsa vegu, þeir era dreifðir um slétturnar í tjöldum, í litlum sam- félögum og meira að segja mjög þróuðum. Það er ótrúlegt hversu þróaðir lifnaðarhættir þeirra hafa verið. Ekki tæknilega þróaðir, held- ur var andlega og hringlaga hugs- unarháttur þeirra á miklu hærra plani en hann er í dag.“ Eru helgisiðir indiána og in- úíta hinir sömu hvar sem er í veröldinni? „Já. Það er til dæmis eitt sem þú finnur hjá öllum þessum þjóð- flokkum. Það er tjald sem þjónar hlutverki gufubaðs. Þeir bera inn í það glóandi steina, ausa vatni yfir þá og syngja og svitna til að hreinsa líkamann. Bandaríkjastjórn hefur farið virkilega illa með indíána. Hún hef- ur nærri útrýmt þeim. Og frá þeim sem eftir lifðu hafa þeir reynt að taka tungumálið, menninguna og hefðirnar. Upp.úr seinni heimsstyrj- öldinni áttu þeir engra annarra kosta völ, en að flýja aftur undir feldinn. Þó ekki í bókstaflegri merk- ingu. Indfánar vilja nota alla tækni,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.