Morgunblaðið - 01.07.1989, Side 5
MQRfiUNgLA.ÐIIj) LftUGARDAGUR ý.JÚLÍ 1,989
5
Loðdýrarækt:
Þjóðminjasaftiið
Þjóðminjasafii íslands:
Miklar endurbætur eru
nauðsynlegar á húsinu
Heildarkostnaður vegna þeirra gæti orðið 250 milljónir
„Þjóðminjasafiiið er mjög illa farið og miklar endurbætur á því til þessa hafa nayðsynlegar endur-
verða ekki umflúnar," sagði Júlíus Sólnes, formaður byggingarnefnd-
ar Þjóðminjasafiisins, í samtali við Morgunblaðið. Að sögn Júlíusar
er einangrun hússins nánast ónýt, það lekur og viðgerð á múrverki
er nauðsynleg. Júlíus telur heildarkostnað vegna viðgerða og endur-
bóta geta legið á bilinu 100 tii 250 milljónir.
Svavar Gestsson menntamála- upp sýningu þar sem hugmyndir
ráðherra skipaði byggingamefnd
Þjóðminjasafnsins í apríl sl. til þess
að annast endurbætur á húsi Þjóð-
minjasafnsins við Suðurgötu í
Reykjavík. Upphaflega stóð til að
endurbætur hæfust í sumar en að-
eins verður hafist handa við nauð-
synlegustu viðgerðir, t.d. á múr-
verki ’nússins, í ár. Að sögn Júlíusar
Sólness getur tekið allt að 3 ár að
gera við húsið og endurskipuleggja
það að innan.
Einangrun þess er nánast ónýt
og segist Júlíus ekki sjá aðra leið
færa til endurbóta en að einangra
húsið að utan. Einnig þurfi að
breyta inngangi í safnið svo að fatl-
aðir eigi hægara með aðgang að
þvi og byggja yfir kaffistofu, snyrt-
ingu og verslun með safnmuni.
„Þetta þýðir að útlit Þjóðminja-
safnsins mun taka einhverjum
breytingum," sagði Júlíus. „Bygg-
ingarnefndin telur mikilvægt að
kynna almenningi tillögur um úr-
bætur og breytingar á húsinu og
mun í þeim tilgangi eflaust setja
verða kynntar."
Hús Þjóðminjasafnsins var reist
á ámnum 1946 til 1951, sem minn-
isvarði um stofnun lýðveldisins árið
1944. Á þessum tíma vom innflutn-
ingshöft og mikill skortur á bygg-
ingarefnum. Gallar reyndust því
vera á húsinu frá upphafi og fram
Stefiiir í gjaldþrot
hjá fóðurstöðvum
bætur ekki verið gerðar.
í byggingarnefnd Þjóðminja-
safnsins sitja auk Júlíusar Sólness,
sem er formaður hennar, Leifur
Benediktsson verkfræðingur hjá
Innkaupastofnun ríkisins, Lilja
Árnadóttir deildarstjóri á Þjóð-
minjasafninu og Maríanna Jóns-
dóttir viðskiptafræðingur í fjár-
málaráðuneytinu. Með nefndinni
starfa einnig Þór Magnússon Þjóð-
minjavörður og Hjörleifur Stefáns-
son arkitekt.
REKSTRARVANDI fóðurstöðva
í loðdýrarækt er orðinn veruleg-
ur, og að sögn Reynis Barðdal,
stjórnarformanns Sambands fóð-
urframleiðenda, hafa þær að-
gerðir, sem ríkisstjórnin sam-
þykkti til aðstoðar loðdýrarækt-
inni 15. júní siðastliðinn, ekki
skilað sér til fóðurstöðvanna.
Ríkisstjórnin samþykkti meðal
annars að flýta greiðslum á upp-
söfiiuðum söluskatti til loðdýra-
bænda, og leita samninga við við-
skiptabanka um að fresta inn-
heimtu á afurðalánum vegna
óseldra loðskinna, og jafnframt
veita bændum greiðslufrest á
lausaskuldum.
Halldór Blöndal alþingismaður,
sem sæti á í Stjóm Stofnlánadeildar
landbúnaðarins, segir ljóst að
nokkrar fóðurstöðvanna séu að
komast í þrot í næstu viku, og svo
virðist sem enginn vilji taka ábyrgð
á þeim.
„Ég óskaði eftir því fyrir nokkr-
um vikum í stjórn Stofnlánadeildar
landbúnaðarins að hún kallaði á
sinn fund alla þá sem loðdýramálin
varðar, viðkomandi ráðherra og
fulltrúa frá öðmm lánastofnunum,
þar sem Stofnlánadeildin á mikið í
húfi í þessu máli. Nú skilst mér að
slíkur fundur verði haldinn miðviku-
daginn 5. júlí, en ég geri mér ekki
miklar vonir að út úr þeim fundi
komi svo sem nokkuð, því ástandið
í loðdýraræktinni er svo alvarlegt
að menn reyna í lengstu lög að
komast hjá því að horfast í augu
við sannleikann, og það kann ekki
góðri lukku að stýra. Ég óttast að
fjöldi loðdýrabænda sé svo hart
leiddur að það sé farið að spilla
heilsu manna, og tel óhjákvæmilegt
Fljótsdalsvirkjun og stækkun Búrfells:
68 millj. kr. veitt til rannsókna
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að heimila Landsvirkjun að veita
68 milljónum króna til rannsókna og undirbúnings Fljótsdalsvirkjun-
ar og stækkunar Búrfellsvirkjunar. Munu þessar rannsóknar fara
strax af stað og áæltað er að þeim ljúki fyrir ágústlok.
Jóhann Már Maríusson aðstoðar- heimild nú komin.
forstjóri Landsvirkjunar segir að
stjórn Landsvirkjunar hafi á fundi
sínum 22. júní s.l. ákveðið að veita
þessari upphæð til rannsóknanna
að að því tilskildu að heimild feng-
ist frá iðnaðarráðherra og sé sú
í máli Jóhanns kemur fram að
inni í þessu rannsóknum verði
könnun á línustæði frá Fljótsdals-
virkjun til Þjórsársvæðisins, um
Akureyri, en þar sé um 220 KW
línu að ræða. Hann segir að nauð-
synlegt hefði verið að hefjast handa
um þetta verkefni. strax sökum
áforma um stækkun álversins í
Straumsvík, sem komast á í gagn-
ið 1992.
„Við verðum að vera á undan
með rannsóknir okkar á þessum
virkjanakostum til að’ vera í stakk
búnir að mæta ákvarðanatökunni
um álverið," segir Jóhann Már.
að þeir fái svör undireins um það
til hvaða ráðstafana ríkisstjómin
hyggist grípa. Ef ekki stendur til
að gera neitt er lang best fyrir
bændur að skera niður þegar í
stað,“ sagði Halldór Blöndal.
Skoðanakönnun Skáís:
22% ætla til út-
landa í sumar
UM 22% íslendinga átján ára og
eldri segjast ætla til útlanda í
sumar samkvæmt nýlegri skoð-
anakönnun Skáís. Tæplega 70%
segjast ekki ætla til útlanda, og
8% segjast vera óákveðnir.
í Reykjavík sögðust 25,5% að-
spurðra ætla til útlanda í sumar,
en 61% sögðust ekki ætla. 21%
aðspurðra á Reykjanesi sögðust
ætla til útlanda, en rúmlega 71
ekki, og í dreifbýlinu sögðust tæp-
lega 19% ætla til útlanda, en 78%
svöruðu neitandi.
Kópavogur:
Guðmundur
Oddssonkjör-
inn forseti
bæjarstjórnar
GUÐMUNDUR Oddsson var kjör-
inn forseti bæjarsljórnar Kópa-
vogs á fundi bæjarstjórnar á
þriðjudag. Guðmundur var einnig
kosinn formaður félagsmálaráðs í
stað Huldu Finnbogadóttur, sem
sagði starfi sínu lausu af persónu-
Iegum ástæðum.
Árleg kosning í ýmis embætti hjá
Kópavogskaupstað fór fram í bæjar-
stjórn sl. þriðjudag. Fyrsti varafor-
seti bæjarstjórnar var valinn Valþór
Hlöðversson. í bæjarráð voru kjörin
Heimir Pálsson, Alþýðubandalagi,
Kristinn Ó. Magnússon og Sigríður
Einarsdóttir, Alþýðuflokki, Richard
Björgvinsson og Ásthildur Péturs-
dóttir, Sjálfstæðisflokki.
Á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag-
inn voru einnig kosnir skoðunarmenn
bæjarreikninga, framtalsnefnd,
hafnarstjórn og kjörstjómir.
Bæjarráð Kópavogs kom saman á
fimmtudaginn og var Heimir Pálsson
þá kjörinn formaður þess.
w
'
'mm
-
n
- goóur kostur í bílakaupum
Bein lína í söludeild 312 36
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARvELAR HE
Ármúla 13 - 108 Reykjavík - S* 681200
Framhjóladrifinn bíll á undraverði.
Við hjá B & L erum sloltir af að kynna nýja og endurbætta
Lada Samara.
Lada Samara hefur nýja og kraftmikla 1500 cc vél og fæst nú
bæöi 3 og 5 dyra.
Lada Samara er rúmgóður, framhjóladrifinn fjölskyldubíll,
með góða fjöðrun og aksturseiginleika, sem gerir hann
sérstaklega hentugan fyrir íslenska staðhætti.
Lada Samara svo sannarlega kærkomin kjara-
bót fyrir íslenskar
fjölskyldur.
3 dyra 1300 399.617.-
3 dyra 1500 444.091.-
5 dyra 1300 456.873.-
5 dyra 1500 485.446.-
Ryðvörn innifalin í verty.
Opið laugardaga frá kl. 10*°-14"