Morgunblaðið - 01.07.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JULI 1989
--------------------i---! 1—r—l------)—M
15
Frá opnun málverkasýningar Kristjáns Davíðssonar í Nýhöfn.
Kristján Davíðs-
son sýnir í Nýhöfii
KRISTJÁN Davíðsson listmál- Snjór, land og vatn. Á henni eru
ari sýnir um þessar mundir í 11 olíumálverk sem öll eru máluð
listasalnum Nýhöfii í Hafiiar- á þessu ári nema eitt.
stræti 18 í Reykjavík.
Sýningin ber yfirskriftina Sýningin stendurtii 12. júlí nk.
Eyðslan er fólg’in í atvinnu
leysi, auður í athöfhum
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
Á réttu ári hafa tveir ijármála-
ráðherrar nú staðið á gati, fjár-
lagagati. Jón Baldvin Hanniblasson
boðaði um þetta leyti í fyrra fjár-
lagahalla frá sjö hundruð milljónum
til eins milljarðs eftir „ráðstöfun-
um“ og Ólafur Ragnar Grímsson
boðar með spekingum sínum þetta
frá 3.7 milljörðum í halla, líka eftir
„aðgerðir". Sumir segja að 7.2 millj-
arða halli Jóns verði að 10-15 millj-
arða halla Ólafs og er ég í þeirra
hópi. Báðir hafa þessir ráðherrar
gefið skilmerkilegar og. augljósar
skýringar á þessu fyrirbæri og eru
þær efnislega á þessa leið:
„Tekjur ríkissjóðs hafa vaxið
minna en áætlað var en gjöldin
meira“. Báðum virðist þó fyrirmun-
að að gera sér grein fyrir sam-
henginu. Hvorugum virðist hafa
hugkvæmst þegar þeir voru að
Flýgur fiskisaga, fer hvalsaga
eftir Björn S.
Stefánsson
Almenningsálitið víða um lönd
er andsnúið íslendingum í hvala-
málinu og mæðir það sem vonlegt
er á íslendingum sem dveljast er-
lendis. Sveinn Aðalsteinsson og
Ólafur Ingólfsson, náttúrufræðing-
ar í Lundi í Svíþjóð, fjalla um málið
í blaðinu 6. þ.m. (Af „fingraförum"
hvala). Þeir koma víða við, en geta
ekki um það, að á skrá Alþjóðahval-
veiðiráðsins um hvalategundir í út-
rýmingarhættu er engin þeirra
hvalategunda sem íslendingar hafa
veitt undanfarið. Menn geta vita-
skuld gert ágreining við Alþjóða-
hvalveiðiráðið um þetta, en ég sé
ekki að þar sé við íslendinga að
sakast.
Ég verð að játa að svo illa les
„Á skrá Alþjóðahval-
veiðiráðsins um hvala-
tegundir í útrýmingar-
hættu er engin þeirra
hvalategunda sem ís-
lendingar hafa veitt
undanfarið."
ég íslensk blöð að ég vissi þetta
ekki með vissu fyrr en í dag (mið-
vikudag) að ég leitaði til sérfræð-
ings í málinu. Ég hygg að grein
þeirra Sveins og Ólafs hefði orðið
nokkuð öðru vísi, ef þeir hefðu áður
kynnt sér skoðun Alþjóðahvalveiði-
ráðsins í þessu efni.
Ég er á leið i stutta ferð til
Svíþjóðar og Noregs og þykir þægi-
legt að hafa fengið þessa vitneskju
í farteskið. Ef talið berst þar að
hvalveiðum íslendinga finnst mér
eðlilegast að segja, að ég viti nú
ekki mikið um málið, en raunar
telji Alþjóðahvalveiðiráðið enga
hvalategund sem íslendingar veiða
í útrýmingarhættu. Mér kæmi ekki
á óvart að einhveijir spyiji þá: Nú,
hvaða læti eru þetta þá út i íslend-
inga?
Fróðlegt væri að frétta frá þeim
Sveini og Ólafi í Lundi hvernig
Skánveijar bregðast við þessari
vitneskju um skoðun Alþjóðahval-
veiðiráðsins. Væri ekki ráð að
kynna hana í Málmhaugablöðunum
Sydsvenska Dagbladet eða Arbetetl
Höfiindur er hagfræðingur.
„Á meðan menn ekki
skilja heimskuna við
ijárlagagerð og ofskött-
un verður áfram til fá-
tækt á íslandi og hún
mun fara vaxandi með
hveijum degi sem
ólánsstjórnin situr við
völd.“
troða upp í Ijárlagagötin og „hafa
borð fyrir báru“ að útgjaldahliðin
kynni eitthvað að raskast, en hún
gerði það samt þegar líða tók á
síðasta ár og nú æða útgjöld ríkis-
sjóðs áfram samhliða lækkun raun-
tekna hans, en ekki bara Hans,
heldur auðvitað lika alþýðu og at-
hafnalífs. Almennings vegna þess
að stjórnarherrunum hefur tekist
að draga úr þenslunni eins og þeir
orða það og koma á hæfilegu at-
vinnuleysi og atvinnuveganna
vegna þess að kerfiskörlunum og
möppudýrunum hefur tekist að
rústa fjárhag þeirra og þar með
undirstöðu auðæfaöflunar alþjóðar
í bráð og lengd.
Þrátt fyrir allt báknið hefur þó
ekki til skamms tíma tekist að koma
á hendur ríkisins meiru en um það
bil þriðjungi umsvifanna í þjóðlíf-
inu, tveir þriðju hlutar hafa verið í
höndum fólksins og fyrirtækjanna.
Og hyar eiga svo einstaklingar og
atvinnufyrirtæki að finna helmingi
fleiri milljarða en ríkið til að fjár-
magna sig? Spyr sá sem ekki veit,
og þó. Það er gert með arðráni ríkis-
ins og gripdeild þess, sem skilur
fólkið eftir í sárum nauðum og ör-
væntingu en atvinnuvegina flest
alla eignalausa og örmagna við að
mynda þjóðarauð í góðærinu.
Á meðan menn ekki skilja
heimskuna við fjárlagagerð og of-
sköttun verður áfram til fátækt á
íslandi og hún mun fara vaxandi
með hverjum degi sem ólánsstjórnin
Eyjólfur Konráð Jónsson
situr við völd. En fólkinu í stjórnar-
ráðinu, sumu hveiju a.m.k., er ekki
eins leitt og það Iætur. Það sjáum
við á sælubrosinu, montinu og glott-
inu. Það eru menn við æðstu völd
sem ekkert hafa farið dult með að
meginmarkmiðið sé að koma at-
vinnulífi í einka- og félagarekstri
fyrir kattarnef og tækið til að fá
fólkið til að sætta sig við ofstjórn-
ar- og óstjómarstefnuna sé einmitt
það að rýra kjör þess svo að það
sé reiðubúið að varpa „kapítalista-
þjóðfélaginu“ fyrir róða. Ríkistekjur
og ríkisauð skal í það endalausa
efla en þjóðarauðurinn minnkar
auðvitað. Og skítt með það, er það
bara ekki ágætt!
Höfundur er einn af
alþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
é
x
Steindór Sendibflar
Við verðum með stórgóða
sýningu um helgina á uppsett-
um tjöldum, tjaldvögnum og
alls kyns viðlegubúnaði í
miklu úrvali. Gott verð.
Ath.:
□ Stærri tjöldunum var öllum breytt
miðaö við íslenskar aðstæður.
□ Viðgerðarþjónusta á öllum okkar
tjöldum.
□ Vel heppnuð útilega hefst hjá
okkur.
Dallas, 4ra og 6 manna tjald
Ægistjöid
OPIÐ UM HELGINA
Laugardag frá kl. 11-16
Sunnudag frá kl. 12-16
Verið velkominn!
Göngutjöld
ÆGIR
Eyjarslóð 7 - sími 621780
Lapland, 4ra manna
SEGLAGERÐIN