Morgunblaðið - 01.07.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAU^ftffljjtGlJit JpLÍ 1,989,
ii.
17
Við eigiim samleið
eftirJón Sigurðsson
Hér birtist ávarp viðskiptaráð-
herra við undirritun samkomu-
lags um sölu á hlutabréfum ríkis-
sjóðs í Utvegsbanka Islands hf.
til Alþýðubankans hf., Iðnaðar-
banka íslands hf. og Verslunar-
banka íslands hf. og um samein-
ingu bankanna, á Kjarvalsstöð-
um, 29. júní 1989:
Við erum hér saman komin á
þessum sólfagra sumardegi til þess
að staðfesta sögulegt samkomulag
— um sameiningu íjögurra banka
— um nýsköpun í íslenskum banka-
málum. Það hefur verið stefnt að
fækkun og stækkun banka hér á
landi í meira en tuttugu ár. Arang-
ur af þeirri viðleitni hefur hins veg-
ar enginn orðið fyrr en nú. En nú
er hann svo sannarlega mikill.
Hinn nýi banki
Við sameiningu Alþýðubankans,
Iðnaðarbankans, Verslunarbankans
og Utvegsbankans mun viðskipta-
bönkunum fækka úr sjö í fjóra og
öflugur alhliða banki verða mynd-
aður sem mun veita öðruni lána-
stofnunum samkeppni og aðhald.
Nýi bankinn verður byggður á
víðtækri eignaraðild og tengir sam-
an helstu atvinnuvegi þjóðarinnar.
Þetta verður styrkur hins nýja
banka.
Jón Sigurðsson
Ávinningur af sameiningu
bankanna
Ég er sannfærður um að samein-
ing þessara banka mun verða þjóð-
inni til hagsbóta og skila sér í auk-
inni hagkvæmni í bankarekstri og
lækkun vaxtamunar. Þá er hún
einnig mikilvæg forsenda þess að
Islendingar geti tekið þátt í þeim
breytingum sem eru að verða á við-
skiptaháttum með fjármagn og fjár-
málaþjónustu í nágrannalöndunum
og að við getum áfram skipað okk-
Engin rök fyrir því
að ríkið ábyrgist öll
fasteignaviðskipti
- segir Halldór Blöndai alþingismaður
„ÉG er þeirrar skoðunar að hús-
bréfakerfið gangi ekki upp hér
á landi þar sem þessi svokallaði
islenski Qármagnsmarkaður er
svo veikburða að ekki er á hann
að treysta, auk þess sem ég sé
engin rök fyrir því að ríkið .taki
ábyrgð á öllum fasteignavið-
skiptum í landinu. Það getur vel
verið að fijálsi markaðurinn
verði einhvern tíma seinna fær
um að sinna húsnæðismálunum,
en mér sýnist, ekki svo vera nú,“
segir Halldór Blöndal, alþingis-
maður, en eins og fram hefur
komið hefúr þingflokkur sjálf-
stæðismanna ákveðið að tilnefiia
ekki fúlltrúa til samráðs við
framkvæmdanefiid um undirbún-
ing að framkvæmd laga um hús-
bréfakerfið.
„Það er eðlilegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn skuli ekki skipa fulltrúa
í nefnd á vegum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Hú^næðismálin eru komin í
algjört öngþveiti, og ekki hægt að
sjá hvernig hægt verður að greiða
íir þeirh öðruvísi en að hugsa þau
að nýju. í samræmi við yfirlýsingar
Sjálfstæðisflokksins á síðasta
landsfundi og síðasta flokksráðs-
fundi legg ég áherslu á að Sjálf-
stæðisflokkurinn berst fyrir því að
allir eigi sem jafnastan kost á því
að eignast þak yfir höfuðið. Ég er
þeirrar skoðunar að leggja eigi nið-
ur Húsnæðisstofnun ríkisins í nú-
verandi mynd en færa húsnæðislán-
in inn í bankana, en samtímis er
nauðsynlegt að vextir verði frá-
dráttarbærir eins og á árum áður.
Það er í anda þessarar fijálslyndu
stefnu sem ég vil vinna að hús-
næðismálum,“ sagði Halldór Blönd-
al.
„Það er einlæg von mín
að gott samstarf takist
með stjórnendum og
starfsmönnum um þau
verkefhi sem framund-
an eru. Það er mikið í
húfi að vel takist til um
sameiningu bankanna
og ekki síst að um hana
takist góður friður.“
ur á bekk með þeim þjóðum sem
bestra lífskjara njóta. Samningur-
inn tryggir einnig að almenningur
endurheimti á sanngjörnu verði
fjármuni sem bundnir hafa verið í
bankarekstri en engin gild rök
standa lengur til slíkrar bindingar
á almannafé.
Starfsfólk bankanna
Mér er auðvitað ljóst að starfs-
fólk bankanna fjögurra finnur til
óvissu um sinn hag vegna þeirra
breytinga á starfsháttum og skipu-
lagi sem framundan eru. Þetta eru
eðlilegar áhyggjur en ég bendi á
að sú leið til bankasameiningar sem
hér er farin er án efa sú sem
minnstri röskun veldur á högum
starfsfólksins. Bankarnir fjórir eiga
einfaldlega vel saman. Ég vil líka
benda á að með þessu samkomulagi
hefur verið dregið úr óvissu um
framtíðina. Nú vita allir hvað gert
verður.
í samkomulagi því sem hér verð-
ur undirritað felst það að við sam-
runa bankanna fjögurra hefur fast-
ráðið starfsfólk Útvegsbankans
sama rétt og starfsfólk Alþýðu-
bankans, Iðnaðarbankans og Versl-
unarbankans til starfa hjá hinum
nýja banka. Hér eiga allir samleið.
Þá er því lýst yfir að leitað verð-
ur samkomulags við starfsmanna-
félög um breytingar sem kunni að
verða á starfsmannahaidi og starfs-
aðstöðu við sameininguna. Jafn-
framt verður starfsmannafélögum
og Sambandi íslenskra banka-
manna greint frá fyrirhuguðum
breytingum af þessu tagi þegar á
undirbúningsstigi og fulltrúar
starfsmanna hafðir með í ráðum.
Það er einlæg von mín að gott sam-
starf takist með stjórnendum og
starfsmönnum um þau verkefni sem
framundan eru. Það er mikið í húfi
að vel takist til um sameiningu
bankanna og ekki síst að um hana
takist góður friður.
Við eigum samleið
Skrefið sem stigið verður með
sameiningu Alþýðubankans, Iðnað-
arbankans, Utvegsbankans og
Verslunarbankans er vissulega mik-
ilvægt en þó er það aðeins eitt af
mörgum á langri umbótaleið sem
við eigum fyrir höndum til þess að
bæta lífskjör okkar og búa í haginn
fyrir afkomendur okkar. Það er
ekki aðeins í bankamálunum sem
tímabært er orðið að bijótast út úr
sjálfheldu aðgerðaleysis. Við þurf-
um að sækja fram á ýmsum sviðum
atvinnumála, í sjávarútvegi, í land-
búnaði og ekki síst í hagnýtingu
orkulindanna í þágu atvinnuupp-
byggingar en einmitt á því sviði
hefur einnig orðið langt hlé á fram-
kvæmdum. Markmiðið er að skapa
á íslandi þjóðfélag sem byggir á
skynsamlegri skipan efnahagsmála
og býr öllum landsmönnum réttlát
og sanngjörn lífskjör. Þar eigum
við öll samleið.
ry
r\
cj&
aa
Success
GUARANTSED ^
FcRFtCTíN ftfgpPi
8MINUTES
Cfiicfien Almondine
'Cfííckén FUvaredn/rrwith Vasta&AÍmonis
FRABÆRAR
VÓRUR Á
NIÐURSPRENGI
1 VERÐI
Wj
Framandi og ógleymanlegur
hrísgrjónaréttur. Löng
hrísgrjón blönduð með ses-
am, möndlum og núðlum og
kryddað á afar sérstæðan
hátt. Svo sannarlega öðruvísi
kjúktingaréttur.
Fyrir 4 - suóufimi 8 mín.
Heildsölubirgðir:
KARL K. KARLSSONxCO.
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
FÖT
BLOM
SKOR
BARNAFOT
Ferðasalernl - Kemísk vatnssal-
erni fyrir sumarbústaði, hjólhýsi
og báta.
Atlas hf., Borgartúni 24, s(mi 621155,
pósthólf 8460, 128 Reykjavík.