Morgunblaðið - 01.07.1989, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
Evrópumótið í brids að hefjast:
Ánægður ef við lend-
um í miðjum hópi
segir Hjalti Elíasson landsliðsþjálfari
HJALTI Elíasson landsliðsþjálf-
ari í brids segir að Islendingar
geti verið ánægðir með að lenda
í miðjum hópi á Evrópumótinu í
brids, sem hefst í Turku í Finn-
landi á sunnudaginn.
„Við erum að byija nýtt tímabil
með 'endumýjað landslið og árang-
urinn kemur ekki á fyrsta móti.
En þetta verður innlegg í framtíð-
ina,“ sagði Hjalti við Morgunblaðið.
Hann hefur þjálfað bridslandsliðið
í 2 ár, og á þeim tíma hefur ísland
unnið Norðurlandamót og náð 4.
sæti á Evrópumóti.
Að þessu sinni taka 25 þjóðir
þátt í Evrópumótinu, sem er met-
þáttaka. Þar á meðal eru Sovétrík-
in, sem eru með í fyrsta skipti, en
spil vom til skamms tíma illa séð
þar í landi. Það eru Eistlendingar,
sem verða fulltrúar Sovétríkjanna.
Eitt par þeirra varð fyrir skömmu
í 2. sæti í sterku alþjóðalegu
tvímenningsmóti sem haldið var í
Bandaríkjunum. Það var í fyrsta
skipti sem sovéskir bridsspilarar
tóku þátt 1 móti utan Evrópu.
Íslenska liðið er skipað Aðalsteini
Jörgensen, Ragnari Magnússyni,
Guðmundi Páli Amarsyni, Þorláki
Jónssyni, Jónasi P. Eriingssyni og
Val Sigurðssyni. Hjalti Elíasson er
þjálfari og liðsstjóri en Sigurður
B. Þorsteinsson er fararstjóri.
Valur og Þorlákur vom í sigurlið-
inu á Norðurlandamótinu 1988 og
Aðalsteinn og Valur vom í liðinu
sem náði 4. sæti á Evrópumótinu
1987. Jónas og Ragnar taka nú
þátt í sínu fyrsta alþjóðamóti.
Hjalti Elíasson sagði að róðurinn
yrði þungur, sérstaklega í upphafi,
en þá mætir íslenska liðið sterkum
þjóðum sem spila framandi sagn-
kerfi. „Ég álít að það hafi töluvert
að segja ef við sleppum tiltölulega
áfallalaust úr þeim viðureignum,“
sagði Hjalti.
Núverandi Evrópumeistarar era
Svíar, sem mæta með sama lið og
vann, titilinn fyrir tveimur ámm.
Hjalti sagðist telja, að Svíar myndu
Morgunblaðið/Sverrir
Bridslandsiðið sem keppir í Turku næsta hálfa mánuðinn. Frá vinstri
eru Þorlákur Jónsson, Ragnar Magnússon, Hjalti Elíasson, Jónas
P. Erlingsson, Aðalsteinn Jörgensen, Guðmundur Páll Arnarson,
Sigurður B. Þorsteinsson og Valur Sigurðsson.
berjast um sigurinn í Finnlandi við
Austurríkismenn og Pólveija, sem
hvorir tveggja em fyrrverandi Evr-
ópumeistarar.
Mikíl umferð um
flugvöllmn í Eyjum
Vestmannaeyjum.
MIKIL umferð flugvéla var um Vestmannaeyjaflugvöll sl.
fimmtudag. 60 lendingar voru á vellinum sem er með því mesta
sem gerist.
Það var margt sem skapaði
þessa miklu umferð um völlinn.
Miklir flutningar fólks til Eyja
vegna Tommamótsins í knatt-
spyrnu áttu þar stærsta þáttinn.
Flugleiðir fóm 7 ferðir til Eyja á
Fokker og gerast ferðir þeirra
ekki fleiri, nema um þjðhátíð.
Leiguflug Vals Andersens var í
stöðugum fólksflutningum auk
þess sem þeir vom að flytja laxa-
seiði til Eyja, norðan úr Aðaldal,
fyrir fiskeldisstöð Isnó.
Þá var staddur i Eyjum al-
þjóðlegur flugklúbbur sem ferðast
hefur um landið síðustu daga.
Flugklúbbur þessi heitir „Inter-
national Comanche Sociation" og
er klúbbur eigenda Piper Comanc-
he-véla. Jón E.B. Guðmundsson
er eini íslendingurinn í klúbbnum
en með honum á ferð hér vom
m.a. Bretar, Svíar og Frakkar.
Grímur
Doktorsritgerð um
trúarhefð Islendinga
SIGURÐUR Árni Þórðarson hefur varið doktorsritgerð um trúar-
hefð íslendinga við Vanderbiltháskóla í Nashville, Tennessee í Banda-
ríkjunum. Ritgerðin nefiiist Liminality in Icelandic Religious Traditi-
on.
Aðalleiðbeinandi var Peter c.
Hodgson, en aðrir vom Jack,Forst-
man, Sallie McFague og Eugene
TeSelle, öll' prófessorar við guð-
fræðideild Vanderbilt, og John
Compton við heimspekideild sama
skóla. Ritgerðin fjallar um trúar-
túlkun fjögurra íslenskra höfunda,
Hallgríms Péturssonar, Jóns
Vídalín, Haraldar Níelssonar og
Jóns Helgasonar. Meginkenning rit-
gerðarinnar er, að þrátt fyrir að
þessir höfundar séu mjög ólíkir,
megi greina sameiginlega fmm-
áherslu í skrifum þeirra, áherslu á
takmörk alls; dauða, forgengileika,
hverfulleika og ógnir alls konar.
Samtímis reyna þeir að benda á
leiðir til að bregðast við þessum
þáttum. Rakin em ýmis atriði í
íslenskri menningu, sögu og nátt-
úm, sem gætu hafa valdið mæra-
hyggju Islendinga. Ein af ástæðum
þess, að þessi ritgerð var samin er
staða nútímamanna, í skugga
vigbúnaðar, hugsanlegrar gereyð-
ingar, mengunar og takmörkunar
auðlinda. Því er haldið fram, að
íslensk menning og trúartúlkun,
sem sprottið hefur fram úr ótrú-
legri baráttu við eyðingaröfl, sé rík
auðlind sem nýtast má fleimm en
íslendingum einum vegna þess, að
í þeirri menningu er fólgin ábyrg
glíma við eyðingar- og takmörkun-
aröfl.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson er
sonur Svanfríðar Kristjánsdóttur og
Þórðar Halldórssonar. Sigurður
lauk stúdentsprófi frá MR 1973 og
hóf síðan nám í guðfræði og trúar-
bragðasögu í Noregi, lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
1979. Hann lauk MA prófi frá
Vanderbilt University 1982 og
hlaut Ph.D. gráðu 1989. Maki Sig-
urðar er sr. Hanna María Péturs-
dóttir. Eiga þau tvö börn. Dr. Sig-
urður hefur verið sóknarprestur í
Ásaprestakalli í Skaftafellsprófast-
dæmi og Staðarfellsprestakalli í
Dr. Sigurður Árni Þórðarson.
Þingeyjarprófastdæmi. Hann er nú
rektor Skálholtsskóla.
Hafnarff örður:
Stéttarfélög gefa Skógrækt-
arfélaginu 200 þúsund
SEX félög hafnfirskra launþega hafa gefið Skógræktarfélagi Hafiiar-
Qarðar peningagjöf að upphæð tvö hundruð þúsund krónur og var
gjöfin afhent þriðjudaginn 27. júní á skrifstofu Verslunarmannafé-
lags HafnarQarðar, Strandgötu 33.
Orð fyrir gefendum hafði Kristín
Guðmundsdóttir formaður Starfs-
mannafélags Hafnarfjarðar, en eft-
irfarandi stéttarfélög stóðu að gjöf-
inni:
Félag byggingariðnaðarmanna í
Hafnarfirði, Sjómannafélag Hafn-
arfjarðar, Starfsmannafélag Hafn-
arfjarðar, Verkakvennafélagid
Framtíðin, Verkamannafélagið Hlíf
og Verslunarmannafélag Hafnar-
íjarðar. Sú ósk fýlgdi gjöfmni að
henni yrði varið til tijáplöntukaupa
og landgræðslu á þessu ári.
Hólmfríður Finnbogadóttir, for-
maður Skógræktarfélags Hafnar-
fjarðar, þakkaði gjöfina og einnig
tók til máls Ólafur Vilhjálmsson,
fyrrverandi formaður Skógræktar-
félagsins.
Það var samhljóða álit þeirra,
sem viðstaddir voru afhendingu
gjafarinnar að áhugi almennings
fyrir skógrækt og landgræðslu færi
nú ört vaxandi og er gjöf hinna
hafnfirsku stéttarfélaga raunar til
vitnis um það.
Slík gjöf frá stéttarfélögum mun
nánast einsdæmi og er gott for-
dæmi öðram til eftirbreytni.
Isafjörður:
Menntaskólinn út-
skrifar 28 stúdenta
Nemendur dagskola hafa matt þola
röskun vegna verkfallsaðgerða
kennara öll árin í skólanum
ísafirOi.
Menntaskólanum á Isafirði var slitið 17. júní að þessu sinni en það
er um þrem vikum síðar en venja er. Stúdentar voru 28, þar af
voru sex úr öldungadeild.
Hæst á stúdentsprófi var Hall-
dóra Þórðardóttir úr öldungadeild
með einkunnina 8,21. Hæstu eink-
unn þeirra sem brautskráðust úr
dagskóla hlaut Þuríður Pétursdótt-
ir, 8,16. Það sem ef til vill hefur
helst einkennt nám þeirra sem nám-
ið stunduðu í dagskólanum er að
öll árin hefur komið til röskunar á
kennslu vegna kjarabaráttu kenn-
ara. Þijú árin kom til verkfalla en
í fyrra vom boðuð verkföll stöðvuð
með lagaboði.
Auk stúdentanna útskrifuðust 5
nemendur af tveggja ára verslunar-
braut og tveir nemendur úr iðn-
námi, en iðnskólinn hefur í vetur
verið undir stjórn menntaskólans.
Þá útskrifuðust í haust 7 nemendur
með 30 tonna skipstjórnarréttindi.
í ræðu rektors, Björns Teitsson-
ar, kom meðal annars fram að í
haust verði menntaskólinn og iðn-
skólinn formlega sameinaðir í einn
skóla.
Elías Jónatansson flutti ávarp
fyrir 10 ára nemendur og afhenti
50.000 króna gjöf þeirra til kaupa
á slaghörpu. Ekki hefur fengist fé
til að fullgera fyrirlestrarsal skólans
þrátt fyrir að skólinn verði að deila
Nýstúdentar á tröppum menntaskólans. Fremst hægra megin er Halldóra Þórðardóttir sem hlaut hæstu
einkunn. Hún var í öldungadeild. Þuríður Pétursdóttir sem varð hæst í dagskóla er fjórða frá hægri í
annarri röð.
samkomusalnum með sóknamefnd um. í sumar verður unnið að frá- Af 14 fastráðnum kennurum
ísaijarðar, en allar kirkjulegar at- gangi lóðar og bílastæði lögð skólans láta nú fimm af störfum.
hafnir fara nú fram í samkomusaln- bundnu slitlagi. - Ulfar